Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.01.1979, Side 40

Íþróttablaðið - 01.01.1979, Side 40
Þórunn meö bræðrum sínum Hermanni og Axel. — Ástæðan er fyrst og fremst sú, að til þess að ná ár- angri í sundi þarf gífurlega æfingu. Þessar æfingar eru mjög bindandi og tímafrekar, og það er því auðskiljanlegt að fólk gefist upp. Helzt er það skólafólk sem æfir sund, reynslan er sú, að þegar fólk er búið í skólum og fer að vinna, þá gefst það strax upp á sund- iðkunum með keppni fyrir augum. — Hvernig æfir þú? — Segja má, að æfingar séu nær óslitnar 11 mánuði á ári. Það er aðeins í september sem við tökum okkur hlé. Oftast æfum við tvisvar á dag, einn og hálfan klukkutíma á morgnana og þrjá tíma á kvöldin. Það má aldrei slaka á þessum æfingum, ef árangur á að nást, og því ekki nema von að margir gefist upp. Víðast erlendis er komið svo, að keppnisfólk í sundi gerir ekk- ert annað en að æfa sig, og getur raunar ekkert gert ann- að, ef það ætlar að ná alla leiðina á toppinn. — Hvemig er aðstaðan til sundæfinga hér? — Það verður að segjast eins og er, að hún er engan veginn nægjanlega góð. Það má heita vonlaust að æfa sund í útilaug á veturna, eins og við verðum þó að gera. Hins vegar er aðstaðan til þrekæfinga, sem er undir stúku Laugar- dalssundlaugarinnar, sæmi- leg. Þar æfum við m.a. lyft- ingar og leikfimi, sem eru nauðsynlegir þættir í þjálfun- inni. — Hver var eftirminnileg- asta keppni þín á árinu? — Átta-landa sundlands- keppnin í ísrael var skemmti- legasta mótið sem ég tók þátt í. Bæði var afskaplega gaman að koma til ísrael, og eins gekk mér vel í því móti. Ég varð önnur í 200 metra flugsundi, fjórða í 400 metra fjórsundi og fimmta í 100 metra flugsundi. Það var líka gaman að fara á heimsmeistaramótið, en þar var árangur minn hins vegar ekki til þess að hrópa húrra fyrir. — Er flugsundið þín uppá- haldssundgrein? — Ég hef náð beztum ár- angri í því, en hins vegar finnst mér fjórsundið skemmtilegra. 1 þeim sundmótum sem Þórunn tekur þátt í hérlendis er hún oftast yfirburðasigur- vegari í sínum keppnisgrein- um. Hún var því spurð hvort henni leiddist ekki að fá svo sjaldan ærlega keppni? — Jú, mig vantar alveg keppni hér heima. Oftast hef ég engan við að keppa nema klukkuna, og þetta stendur árangri mínum líka fyrir þrif- um. Það er bara í 8-landa keppninni sem ég fæ harða keppni, og þá hef ég líka náð mínum bezta árangri. — Hvað er svo framundan hjá þér? — Ég æfi ágætlega um þessar mundir og ætla mér að vera með næsta sumar, hvað svo sem verður eftir það. Framundan er innanhúss- meistaramótið, sem er helzta sundmótið sem haldið er hér- lendis yfir vetrartímann. í sumar stendur svo til að taka þátt í 8-landa sundlands- keppninni sem fer fram í Belgíu að þessu sinni. Þá er einnig áformuð fjögurra landa landskeppni íslands, Portú- gals, ísraels og írlands næsta sumar og gæti þar orðið um skemmtilega keppni að ræða. Sundlandslið írlands og Portúgals eru mjög svipuð að styrkleika og íslenzka lands- liðið. ísraelar eiga ágætt karlalandslið, en hins vegar slakt kvennalandslið, svo við höfum möguleika gegn þeim. Slík landskeppni sem þessi er æskilegt verkefni fyrir okkur. Ennfremur eru uppi áform um þátttöku í hinni svonefndu Kalottkeppni í sundi, sem einnig er verðugt verkefni fyrir okkur. Hvað verður er ekki gott að segja á þessu stigi málsins. Sundsamband ís- lands býr við mjög erfiðan fjárhag, svo ekki s emeira sagt, og kann svo að fara að ekki verði unnt að sinna þessum verkefnum, af þeim ástæðum. 40

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.