Íþróttablaðið - 01.01.1979, Qupperneq 43
Erum ekki langt á eftir hinum
Norðurlandaþjóðunum
Berglind Pétursdóttir, 16
ára nemandi í Menntaskólan-
um í Hamrahlíð var nú annað
árið í röð valin „Fimleika-
maður ársins“. Berglind er
félagi í Gerplu í Kópavogi, en
fimleikastúlkur þess félags
hafa vakið mikla athygli á
þeim fimleikamótum sem
haldin hafa verið hérlendis, og
jafnan verið sigursælar. Varð
Berglind íslandsmeistari í fim-
leikum kvenna á árinu, og
sýndi umtalsverða yfirburði í
keppninni.
— Áhuginn á fimleikum
kom smátt og smátt hjá mér,
sagði Berglind, í viðtali við
íþróttablaðið. Ég fór á fim-
leikanámskeið þegar ég var
átta ára, en byrjaði hins vegar
ekki að æfa reglulega fyrr en
ég var 11 ára, og þá tók ég
fljótlega þátt í mínu fyrsta
móti.
Berglind sagði að nú væri
æfingaaðstaða hjá Gerplu
orðin ágæt. Félagið hefði tek-
ið á leigu húsnæði við
Skemmuveg í Kópavogi, og
1 1 1 1
Bergiind
Pétursdóttir
hefði það verið innréttað með
þarfir fimleikafólks í huga.
Áður hefði hún orðið að sækja
æfingar víða á Reykjavíkur-
svæðinu. — Við æfðum í
Kópavogsskóla, í Reykjavík
og í Garðabæ, sagði hún.
Berglind sagði, að það væru
mest stúlkur sem æfðu fim-
leika hjá Gerplu, og sennilega
væru mun fleiri stúlkur en
piltar sem legðu stund á fim-
leikaíþróttina hérlendis.
— Fær íslenzkt fimleika-
fólk nægjanlega mörg tæki-
færi til þess að spreyta sig í
keppni við erlent fimleika-
fólk?
— Ég býst við því að
möguleiki væri á því fyrir
okkur að komast á mót t.d. á
Norðurlöndunum, en það
helzta sem stendur þar í vegi
er hversu slík ferðalög eru
kostnaðarsöm.
— Eru íslendingar langt á
eftir Norðurlandaþjóðunum í
fimleikum?
— Ekki svo mjög, að mínu
áliti. Svíar og Norðmenn eiga
reyndar ágætt fimleikafólk,
sem við stöndum ekki nál-
ægt, en ég held að við séum
ekki langt á eftir þorra fim-
leikafólks hinna landanna.
Berglind Pétursdóttir sagði
að íslandsmótið sem haldið
verður í marz sé helzta verk-
efnið sem fram undan er hjá
fimleikafólkinu. Sjálf sagðist
hún ekki geta æft um þessar
mundir vegna meiðsla, og
þyrfti að gangast undir upp-
skurð á næstunni. — Það væri
því kraftaverk ef ég gæti tekið
þátt í íslandsmeistaramótinu
að þessu sinni, sagði hún, —
þótt auðvitað stefndi hugur-
inn til þess.
43