Íþróttablaðið - 01.01.1979, Side 47
að koma fram á sjónarsviðið.
Það sem helzt hefur fælt fólk
frá því að þjálfa þessa íþrótta-
grein reglulega er það hvað
það hefur haft fá tækifæri til
þess að fá skipulega tilsögn.
Um aðstöðuna til æfinga,
sagði Tómas m.a.
— Borðtennis er íþrótta-
grein sem krefst ekki mikillar
aðstöðu í sjálfu sér. Þeir sem
famir eru að ná sæmilegum
árangri í íþróttinni þurfa þó
að hafa töluvert rými. Ég held,
að það megi segja, að aðstaða
íslenzkra borðtennismanna til
æfinga, sé yfirleitt fullnægj-
andi og að yfir engu sé að
kvarta í þeim efnum.
Að lokum sagði Tómas
Guðjónsson:
— Borðtennis er íþrótt sem
byggist mjög mikið upp á
tækni, og því er nauðsynlegt
að þeir sem iðka íþróttina fái
mikla og góða tilsögn. Eins og
áður segir hefur hana skort
hérlendis. Þá háir það ís-
lenzkum borðtennismönnum
ekki síður hversu reynslulaus-
ir þeir eru. Hér heima erum
við alltaf að keppa við sömu
mennina, og erum farnir að
þekkja þá út og inn. Þegar við
keppum svo við útlendinga
sem hafa ef til vill öðru vísi
hreyfingar og tækni, kemur
það oftsinnis fyrir að við töp-
um fyrir þeim, jafnvel þótt við
séum í sjálfu sér ekki verri í
íþróttinni en þeir. Okkur er
því mikil nauðsyn að fá fleiri
tækifæri til keppni við útlend-
inga, ekki bara að fara á mót
erlendis, heldur ekki síður að
fá útlendinga til að keppa hér.
Ég tel að slíkt sé raunar for-
senda þess að um verulegar
framfarir i borðtennisíþrótt-
inni verði að ræða.
Tómas Guðjónsson, borðtenn-
ismaður ársins 1978
47