Íþróttablaðið - 01.01.1979, Page 50
— Stórir og vel búnir bátar
kosta vitanlega töluvert mikið,
en eru þó ekki dýrari en t.d.
jeppabifreið. Minni bátarnir
kosta hins vegar ekki mikið,
auk þess sem þeir sem hafa
áhuga á, hafa möguleika á að
fá þá leigða. Það er mjög al-
gengt að þeir sem stunda sigl-
ingar smíði sér sína báta sjálf-
ir, og séu vinnulaun ekki
reiknuð inn í það dæmi, er
kostnaðurinn ekki mikill. Þá
er einnig algengt að fleiri en
einn eigi sama bátinn, og léttir
það vitanlega undir.
Um mótahald siglinga-
manna sagði Jóhann m.a.:
— í sumar var haldið ís-
landsmót fyrir kænusiglingar,
og því skipt í nokkra flokka
eftir stærð og gerð bátanna.
Ekki var um að ræð íslands-
mót í siglingu kjölbáta, eins og
við erum með, en hins vegar
voru haldin þrjú mót og tókst
okkur að sigra í þeim öllum.
Það var mikil og góð kynning
fyrir íþróttina að sjónvarpið
tók ágætar myndir af einni
þessari keppni.
Þá sagði Jóhann ennfremur
að nokkuð hefði verið um það
að íslenzkir siglingamenn
hefðu tekið þátt í mótum er-
lendis. — Það er ekki ólíklegt
að það fari í vöxt á næstunni
að íslenzkir siglingamenn taki
þátt í mótum, t.d. Norður-
landamótinu, á „flipper“ bát-
um og eldhnöttum, sagði Jó-
hann, — en auðvitað er við
ramman reyp að draga í slík-
um mótum, þar sem siglingar
eru mjög vinsæl og mikið
stunduð íþrótt víða um lönd,
og þá ekki hvað sízt á Norð-
urlöndunum.
HISAVÍK
nýr hvíldar- og mótsstaöur
Á Húsavík er góð aðstaða fyrir þá sem
hafa gaman af aö renna sér á skíðum.
Þægilegar brekkur með skíðalyftum og
kvöldlýsingu.
Á Húsavík er vel búið, þægilegt, nýtt hótel
með 34 herbergjum. Auk veitingasalar og
setustofu með sjónvarpi er þar veitinga-
búö og notalegur bar. Einnig er á staðn-
um útisundlaug og sauna.
Á Húsavík er vinalegt umhverfi og hentug
aðstaða fyrir ráðstefnur og fundi. Á Hótel
Husavík eru fundaherbergi af mismun-
andi stærð. Hóteliðgerirtilboð í ráðstefn-
ur og fundi sem fara fram utan annatim-
ans á sumrin. ( þeim er innifalinn allur
kostnaður: flugfargjöld, gisting, fæði og
fundahúsnæði.
HOTEL
4VIIISAVÍK
Húsavik Simi 9641220 Simnefni: Hotelhusavik Telex 2152fyrirHH
Hagkvæmar helgarferðir
með flugleiðum