Íþróttablaðið - 01.01.1979, Qupperneq 53
Eyþór Pétursson, glímumaður ársina:
Takmarkið að vinna
Grettisbeltið
Eyþór Pétursson bóndi
að Baldursheimi í Mý-
vatnssveit var kjörinn
Glímumaður ársins.
Hann er aðeins 22 ára
gamall og hóf búskap á sl.
ári, en hann er fæddur og
uppalinn í Baldursheimi,
þó að hann hafi komið í
heiminn í sjúkrahúsinu á
Húsavík. Hefur hann alla
tíð dvalið í heimabyggð
sinni utan tveggja vetra
fyrir sunnan og annarra
tveggja vetra á Héraðs-
skólanum að Laugum.
íþróttablaðið sló á þráðinn
til hans um kaffileytið dag
nokkurn í byrjun janúar og
spurði hann, er við höfðum
óskað honum til hamingju
með heiðurinn, hvenær hann
hefði byrjað að glíma.
„Ætli ég hafi ekki verið 9
ára í barnaskólanum hérna, er
ég byrjaði fyrst að glíma undir
tilsögn Þráins Þórarinssonar,
sem leiddi flesta okkar hér
fyrstu skrefin í glímunni. Síð-
an held ég að ég hafi verið 14
ára, er ég keppti fyrst í lands-
flokkaglímunni og varð þá
sveinameistari. Upp frá því
held ég að ég hafi aldrei misst
úr ár í landsflokkaglímunni.
— Hvernig hefur þér
gengið almennt?
— Vel held ég að segja
megi, ég hef aldrei orðið fyrir
óhappi eða stórslysi i keppni
en oft getað staðið mig betur.
— Er ekki erfitt að stunda
glímu samfara búskapnum?
— Ég er búinn að fást við
Þingeyskir glímumenn hafa
verið mjög atkvæðamikiir und-
anfarin ár, og hafa hug á að
halda Grettisbeltinu hjá sér,
svo sem fram kemur í viðtalinu
við Eyþór Pétursson
búskap alla mína tíð og ein-
hvern veginn hefur maður
fundið tíma í þetta. Það er
mikill áhugi hér í sveitinni
fyrir glímu og Grettisbeltið
hefur oft gist hér hjá okkur.
— Þér hefur ekki enn tekist
að vinna beltið?
— Nei, það er það mark-
mið sem ég stefni að nú og við
hér í sveitinni höfum mikinn
hug á að heimta það aftur úr
greipum Ómars Úlfarssonar,
sem vann það í fyrra.
— Hvernig gekk þér i ís-
landsglímunni?
— Mér gekk ekki nógu vel
þar, en ég tel að ég hafi verið
felldur á dómum, mér fannst
Ómar níða mig niður tvisvar,
en dómararnir voru ekki á
sama máli.
— Hvernig er æfingum hjá
ykkur háttað um þessar
mundir?
— Við æfum tvisvar í viku.
Höfum aðstöðu í félagsheim-
ilinu í Skjólbrekku á mánu-
dags- og föstudagskvöldum.
Við erum yfirleitt 6 á æfing-
um. Fyrir utan mig bræðurnir
Pétur, Ingi, Kristján og Björn
Ingasynir og svo Hjörleifur.
Yfirleitt glímum við í l-l'/i
klukkustund, en þá eru menn
yfirleitt búnir að fá nóg. Hver
glíma stendur í 10-15 mínútur,
en til samanburðar er hver
keppnisglíma 2-3 mínútur.
— Hafið þið einhvern
þjálfara?
— Ekki er það nú eins og
stendur. Sigurður Jónsson var
með okkur nokkurn tíma um
árið.
— Er mikill áhugi á glímu
hjá ykkur?
— Já, hann er mjög mikill,
jafnt meðal unglinga, sem
eldri manna. Okkur finnst
skorta á að mót séu haldin
Framhald á bls. 66
53