Íþróttablaðið - 01.01.1979, Qupperneq 64
Ihálfleik
Koch bezt
Hið þekkta bandaríska
frjálsíþróttatímarit valdi
austur-þýzku stúlkuna Maritu
Koch „Frjálsíþróttakonu árs-
ins 1978“. Hlaut hún 271 stig í
atkvæðagreiðslu blaðsins. í
öðru sæti varð ítalska stúlkan
Sara Simeoni sem setti nýtt
heimsmet í hástökki á árinu,
stökk 2,01 metra. í þriðja sæti
varð svo sovézka stúlkan
Vilma Bardauskienne sem
setti nýtt heimsmet í lang-
stökki kvenna á árinu stökk
7,09 metra. Hlaut Simeoni 248
stig í atkvæðagreiðslu blaðsins
og Bardauskienne 231 stig. í
næstu sætum urðu svo Marlies
Gohr, A-Þýzkalandi, Tatyana
Zelentsova, Sovétríkjunum,
Evelin Jahl, A-Þýzkalandi,
Ruth Fuchs, A-Þýzkalandi,
Rosemarie Ackermann,
A-Þýzkalandi, Grazyna
Rabsztyn, Póllandi og Jo-
hanna Klier, A-Þýzkalandi.
Svo sem sjá má af þessari
upptalningu eru hvorki fleiri
né færri en 7 af 10 beztu frá
Austur-Þýzkalandi.
Metið er 23 marka
munur
Sigur íslendinga í landsleik
þeim við Bandaríkjamenn
sem fram fór í Laugardalshöll
28. desember sl., 38—17, eða
21 marks munur, er ekki
stærsti landsliðssigur íslend-
inga í handknattleik. Tvívegis
áður hafa íslendingar unnið
leiki með meiri mun. Mest er
við sigruðum Luxemburgara í
landsleik sem fram fór í
Reykjavík 10. janúar 1970, en
þá vann landslið okkar með 23
marka mun, eða 35—12, og
16. júní 1966 unnu íslendingar
Bandaríkjamenn með 22
marka mun í leik sem fram fór
í New Jersey, 41—19. Er það
jafnframt í eina skiptið sem
íslendingar hafa skorað yfri
40 mörk í landsleik. Tvívegis
hafa íslendingar tapað fyrir
Bandaríkjamönnum. Var það
er íslendingar fóru í keppnis-
ferð til Bandaríkjanna í júní
1976, og tóku þátt í móti sem
fram fór í Milwaukee. Fyrri
leiknum tapaði ísland 19—24,
en seinni leiknum 20—22. Alls
hafa íslendingar og Banda-
ríkjamenn leikið 18 hand-
knattleikslandsleiki, og er
markatalan í þeim 413—296
— íslendingum í vil.
Nýju reglumar
reyndust vel
Sovétmenn gripu til þess
ráðs að breyta alþjóðlegum
knattspyrnureglum í keppn-
inni um sovézka meistaratitil-
inn á árinu 1978. Sú regla var
tekin upp að eftir að lið hafði
gert átta sinnum jafntefli, fékk
það ekki lengur stig úr jafn-
teflisleikjum. Varð þetta til
þess að hressa verulega upp á
sóknarleikinn og fjölga mörk-
um í keppninni. Árið 1977
lyktaði alls 107 leikjum í
sovézku meistarakeppninni
með jafntefli, þar af 43 sem
voru markalaus. 1978 urðu
aðeins 59 leikir jafntefli, og
ekkert mark var skorað í 19
þeirra. Dynamo Tbilissi varð
sovézkur meistari i ár.
Hermann efstur á blaði
Hermann Gunnarsson, nú-
verandi íþróttafréttamaður
útvarpsins er sá íslenzkur
handknattleiksmaður sem
skorað hefur flest mörk í ein-
um og sama handknattleiks-
landsleiknum. I leiknum sem
íslendingar unnu 41—19 í
Bandaríkjunum árið 1966
skoraði Hermann hvorki fleiri
né færri mörk en 17, og má
mikið vera ef slíkt er ekki ná-
lægt heimsmeti. Nokkrum
sinnum hefur sami leikmað-
urinn skorað yfir 10 mörk í
leik, t.d. Axel Axelsson í
38—17 leiknum við Banda-
ríkjamenn á dögunum, en þá
skoraði hann 12 mörk.
Mismunandi aðsókn
Mjög mismunandi aðsókn
varð að einstökum leikjum í 3.
umferð UEFA-bikarkeppn-
innar í knattspyrnu. Sá leikur
sem dró til sín flesta áhorf-
endur í þeirri umferð var
viðureign vestur-þýzka liðsins
VfB Stuttgart og tékkneska
liðsins Dukla Prag. Þann leik
sáu rösklega 71.000 áhorfend-
ur. Minnst aðsókn var hins
vegar að leik Hertha Berlin og
danska liðsins Esbjerg, en að-
eins 3.295 áhorfendur greiddu
aðgangseyri að leik liðanna í
V estur-Þýzkalandi.
64