Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.07.1979, Síða 13

Íþróttablaðið - 01.07.1979, Síða 13
Ungu Eyja-stúlkurnar gáfu sér tíma til þess að líta upp og brosa til tjósmyndarans meðan hann smellti af þeim mynd. En á augabragði var hann svo gleymdur og mikill buslugangur og ,,sjóorrusta“ hófst í laug- inni. um starfsemi íþróttamiðstöðvar- innar brugðum við okkur í heim- sókn þangað og hittum þar að máli Vigni Guðnason, forstöðu- mann hússins. Vignir er þekktur fyrir vasklega framgöngu í starfi sínu og gengur jafnvel stundum undir nafninu Hitler þó að það eigi tæplega við. En árangur af starfi hans sést best á því að allt viðhald við húsið hefur verið í algjöru lágmarki og einnig lítur húsið út sem nýtt, þrátt fyrir mikla notkun í 3 ár. Við báðum Vigni í upphafi að gera grein fyrir upphafi byggingar miðstöðvar- innar. — Það má eiginlega rekja upphaf málsins til gossins eins og svo margt annað hér á staðnum. Fyrir gos var ekkert íþróttahús hér í Eyjum, sem staðið gat undir nafni, því að þau sem fyrir voru, voru vart nothæf sökum smæðar. En síðan var hér ágætis sundlaug sem var vel sótt, meðan að hún var og hét. Síðan var ákveðið að reisa nýja íþróttamiðstöð eftir gos og var leitað tilboða í hana, bæði hérlendis og erlendis. Nokkur tilboð bárust og var tilboð frá dönskum aðilum hagstæðast og var því tekið. Danirnir stóðu sig mjög vel og stóðu við allar sínar skuldbindingar. Uppkomið kost- aði mannvirkið síðan um 450 milljónir og var það svipað og verð á skuttogara á þeim tíma. Samkvæmt því ætti hún að kosta ný um 13 til 14 hundruð milljón- ir, í dag. Eins og fram kom hér áðan var sundlaugin opnuð í júlí, 1976, rúmu ári eftir að fyrsta skóflu- stungan var tekin, og annan dag- inn sem sundlaugin var opin komu hvorki fleiri né færri en 1400 gestir í hana. Til gamans má svo geta þess að Vignir sýndi okkur dagbók eina sem hann hélt á meðan bygging hússins stóð yfir og þar er nákvæmlega skráð hvað var gert þennan og þennan dag- inn. Það hefur tekið all drjúgan tíma að skrifa þessar klausur, svo ekki sé meira sagt. íþróttamiðstöðin er í allt 3300 m2 að stærð, en það sem helst vantar er geymslurými og bíla- stæði. Miðstöð af þessari stærð er talin geta þjónað 12000 manna bæ. Eins og nærri má geta fer margvísleg starfsemi fram í hús- inu. Þarna er stór íþróttasalur, sundlaug, aðstaða til þrekþjálf- 13
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.