Íþróttablaðið - 01.07.1979, Blaðsíða 17
*
;
■ i : m I'
■ »
-'•yy; y;ý ;
eS’ :: ::: : ’:::::: j::::
.
"
> ■ _ i
_ V s, * .
‘ia5»ðw>:^ffc
y t *M*s ->,i? t'is&eyfri'f' y^-”* • * <
■ -- - . '■
... *.•••■•
■•;
■
-****• j \ *' ir^-
Tómas er nú tvímælalaust einn skæðasti sóknarteikmaðurinn hérlendis.
og alltaf hætta á ferðum þegar hann náigast mark andstæðingsins.
Myndin er úr leik ÍBV og IBK í sumar.
einnig handbolta á veturna en er
nú hættur því. í staðinn hef ég æft
körfubolta og spila með IV í
körfunni en við munum víst spila
undir nafni ÍBV næsta vetur.“
— Hvernig gekk í yngri flokk-
unum?
„Okkur gekk alveg þokkalega.
Við urðum íslandsmeistarar í 4.
flokki, 1964, og það voru fyrstu
íslandsmeistarar sem ÍBV eign-
aðist í knattspyrnunni. Þá varð ég
tvisvar sinnum Islandsmeistari og
einu sinni bikarmeistari með 2.
flokki. Þá er hér árlega mót milli
Þórs og Týs þar sem spilaðir eru 5
leikir á sumri, í öllum flokkum.
Meðan ég var í yngri flokkunum
sigruðum við þetta mót í hvert
einasta skipti, að mig minnir, og
yfirburðir okkar sjást best á því
að nú eru aðeins 3 Þórarar í
meistaraflokksliðinu.“
11. árið með meistara-
flokknum
— Hvenær lékst þú svo þinn
fyrsta meistaraflokksleik?
„Það mun hafa verið árið 1968
við ÍBA hér í Eyjum. Það eina
sem ég man frá þessum leik var
að ég skoraði mark. Því miður
eru ekki til neinar skrár sem sýna
hvað ég hef skorað mörg mörk í
þessum leikjum. Og þar sem ég
hef líka trassað að halda þessu
saman veit víst enginn þetta.“
— En hvaða leikur er þér
eftirminnilegastur frá þínum ferli
með ÍBV?
„Ég held að það sé leikur sem
við lékum við ÍBK árið 1972 en
þann leik unnum við 6—1. Þetta
var sérstaklega sætur sigur því að
árið áður höfðu Keflvíkingar
unnið okkur í aukaleik um ís-
landsmeistaratitilinn með 4
mörkum gegn engu.
Það er mín skoðun að besta lið
sem ÍBV hefur átt hafi verið liðið
sem var á árunum 1971—72 en
þá urðum við í 2. sæti í íslands-
mótinu í 2 ár í röð.“
Ætlaði að fara
á Vopnafjörð
— Nú var ekki víst að þú
myndir spila með ÍBV í sumar.
Hvað kom til?
„Ég var að spá í að breyta til og
fara á Vopnafjörð og þjálfa þar
heimamenn og spila með þeim.
En það urðu miklar manna-
breytingar í ÍBV-liðinu og t.d.
fóru tveir framlínumenn, þeir
Karl Sveinsson og Sigurlás Þor-
leifsson, og ef ég hefði farið líka
hefði öll framlínan frá síðasta
keppnistímabili farið eins og hún
lagði sit. Ég breytti því áætlunum
mínum og ákvað að vera með
liðinu í sumar.
Við fórum alltof seint af stað
og það stóð aðallega á því að það
vantaði þjálfara. En þegar hann
loksins kom var tekið til við æf-
ingar af fullum krafti.“
— Hvað viltu þá segja um
Vestmannaeyjaliðið í sumar?
17