Íþróttablaðið - 01.07.1979, Side 69
Kippir í kynið
Marvis Frazier, 18 ára sonur
Joe Frazier, fyrrverandi
heimsmeistara í hnefaleikum
þungavigtar vann sinn 26. leik
sem áhugamaður fyrir
skömmu. Var það úrslitaleik-
urinn í hinni svonefndu Golden
Gloves móti. Marvis gerir sér
vonir um að verða olympíu-
meistari í Moskvu.
Ekki dauður úr
öllum æðum
Gamli maðurinn sir Stanley
Matthews er ekki af baki
dottinn. Hann hélt nýlega upp
á 65 ára afmælisdag sinn með
því að leika með liði sínu á
Möltu, Paolo. Því liði hefur
ekki vegnað alltof vel að und-
anförnu, en færði þó aðals-
manninum kærkomna afmæl-
isgjöf, 1-0 sigur í leiknum. Ef
menn halda að sir Stanley
Matthews sé elsti knatt-
spyrnumaður í heimi, þá er það
misskilningur. A.m.k. er Otto
Elsner sem leikur öðru hverju
með þýzka liðinu Hamburg
1916, enn eldri, eða 72 ára. Má
geta þess að hann hefur tekið
þátt í rösklega 1.000 opinber-
um knattspyrnuleikjum.
Engir vinir
Hollensku landsliðsmenn-
irnir Robbie Rensenbrink og
Arie Haan leika báðir með
belgíska 1. deildar liðinu
Anderlecht, og þurfa því að
hafa mikið saman að sælda.
Þeir eru samt sem áður engir
vinir, og sagði eitt belgísku
dagblaðanna fyrir skömmu að
þeir hefðu ekki talast við eitt
einasta orð síðan heimsmeist-
arakeppninni í Argentínu lauk
í fyrra sumar. Það vakti líka
athygli í þeirri keppni að þeir
félagar óskuðu aldrei hvor
öðrum til hamingju, ef mark
var skorað, eða einhverju
þurfti að fagna. Talið er að
annar hvor þeirra muni leita
eftir því að fara frá Anderlecht
í vor.
Strangt prógramm
Leikmenn brasilíska knatt-
spyrnuliðsins Cruzeiro of Belo
Horizonte eiga ekki sjö dag-
í hálfleik
ana sæla, ef marka má pró-
gramm, það sem þjálfari liðs-
ins hefur sett leikmönnum.
Þeir eiga að fara á fætur
klukkan sex á morgnana, kl.
6.15 eiga þeir að fara í sund,
hvernig sem viðrar. Kl. 7.20 er
morgunverður, kl. 8.30 þrek-
æfing, kl. 11.30 hádegisverður,
kl. 14 er æfing hjá varaliðinu
og kl. 15 æfing hjá aðalliðinu.
Kl. 18.30 er svo kvöldverður,
kl. 21 er fundur og háttatími
hjá leikmönnum er svo kl.
23.00.
Sepp Maier bítur ungu
markverðina af sér
Vestur-þýzka knattspyrnu-
félagið Bayern Miinchen, hef-
ur nú fest kaup á ungum
markverði, Toni Schroben-
hauer að nafni. Er honum ætl-
að það hlutverk að leysa Sepp
Maier af hólmi. Má geta þess
að Schrobenhauer er sjöundi
markvörðurinn sem Bayern
Miinchen kaupir i þessum til-
gangi, en hinir sex hafa allir
orðið leiðir á biðinni eftir að
Maier legði skóna á hilluna og
óskað eftir sölu. Sepp Maier
hefur nú leikið með liðinu í 13
ár, og má mikið vera ef hann
bítur ekki þennan markvörð af
sér, eins og hina sex.
69