Íþróttablaðið - 01.07.1979, Side 33
firði, 18,9 sek. en Don, sem nú
hleypur sitt þriðja sumar í fola-
hlaupi, varð annar á 19,1 sek.
Engu er logið þótt sagt sé að
mikil spenna hafi verið í loftinu
fyrir úrslit í 350 m stökki. Sjónir
manna beindust aðallega að
hlaupadísunum Maju og Gjálp,
sem báðar hlupu frábærlega vel í
fyrra, og Kóng og Stormi sem
voru fremstir í folahlaupinu í
fyrra ásamt Reyk. Þessi fjögur
komust í úrslit ásamt tveim lítið
þekktum hestum, Silfurtopp og
Óla. Óli þessi hafði að vísu sigrað
á þeim tveim kappreiðum sem
verið höfðu fyrr í vor, en ekki á
sérstaklega góðum tíma og við
litla keppni. Nú hljóp hann sem
hinn öruggi sigurvegari og hrein-
lega stakk hina frægu hlaupa-
gikki af. Hann náði betri tíma en
nokkur hestur af hinu „sterkara“
kyni hefur áður gert, 25,0 sek.
Þetta er að vísu mjög góður tími,
en enn er erfið sekúndubrot yfir
að stíga áður en hann nær að
jafna eða bæta metið, sem er 24,4
sek. Hin hlupu líka vel, en voru
all fjarri sinu besta.
í 800 m stökki hafði Þróttur
yfirburði. Hann átti bestan tíma í
þessu hlaupi í fyrra og sannaði nú
að það var engin tilviljun. Það
kom meira á óvart að tvö ung
hross, sem voru í folahlaupi í
fyrra, skutu þeim eldri og reynd-
ari aftur fyrir sig og urðu í öðru
og þriðja sæti, þau Reykur og
Tinna.
í lokin fór fram viðvaninga-
skeið við lítinn glæsibrag og
orðstír.
III Hugleiðingar um
mótahald
Vandamál mótanna
Á seinni árum hefur keppnis-
greinum fjölgað og þátttaka auk-
ist svo á mótum hestamanna, að
þau eru orðin mjög umfangs-
mikil. Nú orðið er sá háttur
hafður á hjá flestum félögum að
gæðingar eru dæmdir og ung-
lingakeppni er háð áður en hið
auglýsta mót hefst. Það nægir þó
ekki til að halda mótum innan
þess ramma í tíma, sem æskilegt
er. Mót Fáks stóð t.d. fast að sex
tímum og þreytast menn á styttra
„prógrammi“ þótt í góðu veðri
sé. Það er vitanlega lofsvert að
mikil þátttaka skuli vera í mótum
og til þeirra er stofnað í þeim til-
gangi að efla félagsanda og að
sem flestir komi með hesta sína
og taki þátt í leikum. Ekkert má
gera til að setja hömlur á þátttöku
félagsmanna í félagsmótum, þau
bera grósku í hestamennskunni
gott vitni.
Nú á tímum eru öll mál, sem
krefjast úrlausnar, kölluð vanda-
mál, allir menn eru meira og
minna uppteknir af að finna
lausn á „vandanum“. Vandamál
hestamannafélaganna varðandi
mótin eru ekki ómerkilegri en
hver önnur og krefjast ekki síður
lausnar. Það er ekkert smámál
fyrir mót úti í sveitum, að stór
hluti áhorfenda og jafnvel þátt-
takendur verða að yfirgefa mótið
Framhald á bls. 82.
Frá verðlaunaafhendingu i kapp-
rleðum. Sigurvegari í 800 m stökki
tekur við bikar. I baksýn er knap-
inn á öðrum hesti að kallast á við
hóp áhorfenda og sá sem þriðja
sætið hlaut er lengst til vinstri. í
kring eru menn og hestar í
óreglulegum hópum. Það er
ósköp lítill hátíðarsvipur yfir at-
höfninni.
Hestakynning
Tökum börn á aldrinum 8—13 ára á námskeió í meðferð
og umgengni við hross. Hvert námskeið stendur í 12
daga.
1. 2. júlí—13. júlí.
2. 16. júlí— 27. júlí.
3. 30. júlí— 10. ágúst.
4. 13. ágúst — 24. ágúst.
Upplýsingar í síma 99-6555.
Tamningastöðin Þjótanda
við Þjórsárbrú.
33