Íþróttablaðið - 01.07.1979, Side 52
Knattspyrnusamband Spánar
hafði á sjötta áratugnum sett
bann við því að þarlend knatt-
spyrnufélög réðu erlenda knatt-
spyrnumenn í sína þjónustu til
þess að vernda heimamenn, en
það lá í loftinu að þessum reglum
yrði breytt. Sumarið 1971 fram-
lengdi þó sambandið bannið i
eitt ár til viðbótar. Montal lifði
eftir kenningunni, „þegar ég get
ekki fengið það besta tek ég það
næst besta“, og nú réð hann í
þjónustu sína hinn 43 ára hol-
lenska þjálfara Rinus Michels,
sem leitt hafði Ajax til sigurs í
Evrópubikarkeppninni gegn
gríska liðinu Panathinaikos á
Wembley-leikvanginum í Lund-
únum. Rinus Michels gerði
þriggja ára samning við FC
Barcelona, og sagði að minni tími
dygði honum ekki til að skapa
stórlið. Fyrsta árið hans hjá fé-
laginu lenti það í fjórða sæti í
spænsku 1. deildar keppninni, en
árið eftir náði það öðru sæti. Það
sumar var svo upphafið bann
knattspyrnusambandsins á er-
lenda leikmenn, en sett þau skil-
yrði að ekki mættu nema tveir
útlendingar vera í hvejru liði.
FC Barcelona keypti þegar í
stað tvo útlendinga, Perúmann-
inn Hugo Sotil og Argentínu-
manninn Juan Carlos Heredia,
jafnframt því sem félagið hóf
samningaviðræður við Johan
Cruyff. Fljótlega gaf félagið út þá
yfirlýsingu að þær viðræður
hefðu farið út um þúfur. Cruyff
myndi ekki koma til Barcelona.
Þetta var þó ekki sannleikanum
samkvæmt, þar sem búið var að
semja er þessi yfirlýsing var gefin
út. Samningsaðilar höfðu hins
vegar orðið sammála um að gera
málið ekki opinbert fyrr en
keppnistímabilinu væri lokið á
Spáni og í Hollandi. Verðið sem
FC Barcelona greiddi fyrir Johan
Cruyff var ekkert smáræði, um
700 milljónir króna. Þegar á átti
að herða virtist um tíma ekki geta
orðið um þessi viðskipti félag-
anna að ræða þar sem hollenska
knattspyrnusambandið neitaði
að gefa Cruyff leyfi til félaga-
skipta. Var það ekki fyrr en eftir
að hann hafði hótað því að hætta
að leika knattspyrnu að það lét
undan.
Frelsarinn
Fyrsti leikurinn sem Johan
Cruyff lék með FC Barcelona var
vináttuleikur gegn belgíska fé-
laginu Cercle Brúgge. I þeim leik
fór Cruyff á kostum og átti mest-
an þátt í yfirburðasigri Barce-
lona, 6—0. Þeir sem lengi höfðu
fylgst með Cruyff sögðu eftir
leikinn að þeir hefðu aldrei séð
hann leika betur.
Með frammistöðu sinni í þess-
um leik vann Johan Cruyff einn-
ig hug og hjörtu áhangenda
Barcelona. 90.000 manns komu
til þess að sjá þennan leik, og sagt
er að upphæðin sem þeir greiddu
í aðgangseyri hafi numið um