Íþróttablaðið - 01.07.1979, Page 20
Gunnar Ólafsson og
Co. Vestmannaeyjum
1. Rekur matvöru- og kostaaf-
greiðslu að Strandvegi 44,
gott vöruval í allri matvöru og
búsáhöldum.
2. Leikfanga- og gjafavöru-
verslun að Strandvegi 47.
3. Matvöruversiun að Hóla-
götu 28 (Litla búðin með lága
verðið).
Önnumst afgreiðslu fyrir h.f.
Eimskipafélag íslands.
„Fyrsti landsleikur minn með
A-landsliðinu var á móti áhuga-
mannaliði Englendinga, árið
1971. Mér gekk sæmilega í þeim
leik og skoraði fyrsta mark leiks-
ins. Þrátt fyrir það töpuðum við
leiknum 1—3. Síðan lék ég
nokkra landsleiki í viðbót á ár-
unum 1971 og 2.“
— En þú lékst með unglinga-
landsliðinu áður?
„Já, ég lék með unglinga-
landsliðinu á Norðurlandamóti í
Reykjavík árið 1968 og þar gekk
okkur mjög vel. Við komumst í
,,Landsliðið þarf meiri samæf-
ingu.“
úrslit á móti Svíum en töpuðum
leiknum eftir vítaspyrnukeppni.“
— Hvað finnst þér um íslenska
landsliðið nú?
„Ég tel að við getum eignast
mjög gott landslið, þ.e.a.s. ef liðið
fær einhverja samæfingu. Það
gefur auga leið að hún fæst ekki
meðan liðið er skipað „útlend-
ingum“ nær eingöngu og því
finnst mér að það mætti vera
minna um íslenska atvinnumenn
í liðinu. Við eigum fullt af fram-
bærilegum leikmönnum hér
heima. í framhaldi af þessu vil ég
koma því að að Ásgeir Sigur-
vinsson er okkar besti knatt-
spyrnumaður og hann á svo
sannarlega heima í landsliðinu."
20