Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.07.1979, Síða 43

Íþróttablaðið - 01.07.1979, Síða 43
 Til eru þeir menn í íþróttum sem um gildir að það virðist næstum sama hvaða íþróttagrein þeir byrja að stunda, alltaf kom- ast þeir á toppinn í þeirri grein. handknattleik, blak, borðtennis, skíðaíþróttina, badminton og svo auðvitað golfið. Fyrir utan golfið hefur árangurinn verið glæsileg- astur í knattspyrnunni. Hannes var valinn í unglingalandsliðið í knattspyrnu og spilaði þar við hliðina á nokkrum þeim mönnum sem fremstir eru í knattspyrnunni hérlendis í dag. Hér má nefna þá Guðmund Þorbjörnsson og Atla Eðvaldsson úr Val. Hannes er nú búsettur í Garðabænum en borinn og barnfæddur Kópavogsbúi. Hann lauk stúdentsprófi frá Verslunarskólanum nú í vor og þegar við spjölluðum við hann var hann nýkominn heim frá Miami Beaeh þar sem hann var að fagna þeim áfanga, ásamt skólafélögum sínum. Breiðablik var og er mitt félag „Ég er fæddur þann 30. júlí 1957 í Kópavogi,“ hóf Hannes sögu sína, „og þar bjó ég uns ég fluttist með foreldrum mínum hingað. Áhuginn á íþróttum kom um leið og ég fór að skynja um- hverfið en æfingar hóf ég þó ekki fyrr en ég gekk í gamla ÍK þar sem ég æfði knattspyrnu af mikl- um móð. Ég var þó ekki lengi í ÍK heldur skipti um félag um leið og ég kom upp í 5. flokk og gekk þá í Breiðablik. Ég var í fótboltanum alveg fram að meistaraflokki en þá lagði ég skóna á hilluna hvað hann varðaði. 12 ára gamall hóf ég svo að æfa handbolta, einnig með Breiðablik, og þar hef ég verið síðan og er að hugsa um að halda því áfram. Þá hef ég spilað blak með skólanum, og einnig hef ég gaman af borðtennis og skíðum.“ — En hvenær vaknar svo áhuginn fyrir golfinu? „Ég held að það hafi verið á árinu 1971 en þá fór ég að dútla í þessu með vinum og kunningj- um. Sérstaklega var ég mikið með Barða Valdimarssyni en hann var einn efnilegasti golf- leikari landsins hér í eina tíð. Ég gekk strax árið 1972 í Golfklúbb Reykjavíkur; GR, og í honum hef ég verið síðan. Ég man að þetta kom fljótt hjá mér og fljót- lega gekk mér mjög vel. Mér tókst að sigra í nýliðakeppninni, fyrsta árið mitt, og árið 1972 hóf ég markvissar æfingar og fór að taka þetta alvarlega. Ég lærði mest bara af sjálfum mér. Ég fór aldrei í neina form- lega kennslu og það var ekki nógu sniðugt, að ég tel. Ég er enn að lagfæra ýmislegt sem ég hef gert vitlaust í gegnum árin og ég vil skora á fólk ef það ætlar að byrja að stunda golfið að byrja á því að fara í kennslu og læra réttu tökin strax. Sérstaklega vil ég vekja athygli á John Nolan, en hann er nú golfkennari hjá GR. Hann er mjög fær kennari og skemmtilegur náungi.“ „Já, ég varð undrandi og ánægður ...“ — Og þetta hefur allt komið með tímanum? „Já, það má segja það. Árið 1974 varð ég unglingameistari og þá var þetta orðið reglulega spennandi og skemmtilegt. Ætli það hafi ekki komið til af því að þá var maður farinn að keppast við að sigra þá golfara sem voru á toppnum á þeim tíma. En æfing- ar urðu einnig strangari að sama skapi.“ — Síðan varðstu íslands- 43
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.