Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.07.1979, Page 54

Íþróttablaðið - 01.07.1979, Page 54
gengur með spænsku félagi hefði hann orðið að vera a.m.k. eitt ár annars staðar. Enska liðið Arsenal sýndi líka strax áhuga og framkvæmdastjóri félagsins og þjálfari þess, Terry Neill og Don Howe, gerðu sér ferð til Spánar til þess að ræða við Neeskens. Eftir þann fund sagði Neeskens: — Ég myndi heldur vilja leika í Eng- landi heldur en í Þýskalandi. Þessi ummæli voru túlkuð á þann hátt að hann væri tilbúinn að ganga í raðir Arsenal, ef félagið vildi greiða nógu háa upphæð fyrir hann. En Arsenal átti ekki nóga aura í buddu sinni til þess að kaupa hann, og var þá jafnvel búist við því að Neeskens myndi fara til síns heima, Ajax í Hollandi. Það vildi hann hins vegar ekki. — Ajax er ekki lengur neitt fyrir mig. Félagið verður aldrei aftur stórveldi í knattspyrnu, og það getur heldur ekki borgað. Áhorf- endur að leikjum í Hollandi eru svo fáir að félögin þar hafa yfir takmörkuðu fjármagni að ráða. Hið sama er að segja um félögin í Belgíu. Það sem þau geta boðið er aðeins skiptimynt á við það sem stóru félögin t.d. á Spáni og Ítalíu geta borgað, sagði Neesk- ens. Málalok urðu þau að Johan Neeskens fór til bandaríska fé- lagsins New York Cosmos. Gerði meira að segja fimm ára samning við félagið. Ekki hefur fengist upp gefið hvað bandaríska félag- ið gaf fyrir hann, en varla hefur þar verið um smáaura að ræða. Neeskens var hins vegar ekki ýkja hrifinn af þessum málalok- um, og lét þau ummæli falla að hann hefði enn of mikinn metn- að sem íþróttamaður til þess að leika í Bandaríkjunum. — Það eina sem ég hlakka til er að hitta félaga mína Rinus Michels og Johan Cruyff hjá Los Angeles Aztecs, sagði Neeskens. Simonsen kemur í staðinn Leikmaðurinn sem Barcelona keypti í stað Neeskens var enginn annar en Daninn Allan Simon- sen. Simonsen hefur leikið allan sinn feril sem atvinnumaður hjá vestur-þýska félaginu Borussia Mönchengladbach og sannarlega gert garðinn frægan hjá því fé- lagi. Hann hefur m.a. verið val- inn „knattspyrnumaður ársins í Evrópu“, sem tvímælalaust er einn eftirsóknarverðasti titill sem knattspyrnumanni getur hlotn- ast. En Simonsen verður tæpast fagnað sem þjóðhöfðingja þegar hann kemur til félagsins. Áhang- endum þess finnst sem hann hafi rutt úr vegi eftirlætisgoðinu Johan Neeskens, og segja að þótt Simonsen kunni að vera eins góður knattspyrnumaður og Hollendingurinn, þá sé hann ör- ugglega ekki eins góður drengur og mikill félagi. Leikmenn Framhald á bls. 39. 54 j

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.