Íþróttablaðið - 01.11.1991, Síða 44
Innlit í splunkunýja
I íkamsræktarstöð
Ármanns
Texti: Atli Hilmarsson
Júdódeild Ármanns opnaði nú í
september mjög fullkomna líkams-
ræktarstöð að Einholti 6 í Reykjavík.
Ármenningar hafa haft aðstöðu fyrir
júdómenn sína í húsinu síðustu tvö
árin en hafa nú stórbætt allan að-
búnað sinn með opnun tækjasalar-
ins.
Húsnæðinu er skipt í tvennt. Á efri
hæðinni er júdósalurinn og búnings-
klefar með gufubaði og fleiri þægind-
um. Á neðri hæðinni er svo tækjasal-
urinn. Hvor hæð fyrir sig er um 250
fermetrar.
Margrét Sigurðardóttir, íslands-
meistari í vaxtarrækt, er leiðbein-
andi í líkamsræktarstöð Ármanns.
í stöðinni hittum við fyrir Halldór
Hafsteinsson forstöðumann og sagði
hann þetta gerbyltingu í allri þjálfun
hjá félaginu. „Við sáum fram á það
að geta ekki haldið okkar mannskap
ef við hefðum ekki tækjasal hér hjá
okkur. Tækjaþjálfunin er orðin svo
stór þáttur í þjálfun júdómanna að
LÍKAMSRÆKTAR-
STÖÐ ÁRMANNS
Glæsileg aðstaða er fyrir júdómenn í húsakynnum Ármanns.
við urðum að taka af skarið og fjár-
festa í tækjunum. Það hefur komið í
Ijós að ákvörðunin var rétt því að
aðsóknin hefur verið mjöggóðfrá þvf
að við opnuðum."
Stöðin er búin mjög fullkomnum
tækjum af Dynavit-gerð og finna þar
allir eitthvað við sitt hæfi. Júdódeild-
in á tækin og rekur stöðina og sagði
Halldór þetta vera mjög kostnaðar-
samt fyrirtæki en bætti við að hann
væri bjartsýnn á að reksturinn ætti
eftir að ganga vel.
Stöðin er öllum opin, jafnt júdó-
mönnum sem öðrum og þeir íþrótta-
hópar sem æfa hjá þeim fá góðan
afslátt.
í stöðinni er mjög fullkomið
hlaupabretti sem hefur reynst mjög
vel. Á brettinu eru um 100 hlaupa-
möguleikareðastillingar. Hægter að
hlaupa t.d. í 12 gráðu halla og á 17,4
km. hraða. Einnig eru í stöðinni þrír
Lifestep þrekstigar sem njóta mikilla
vinsælda. Hægt er að fara í Ijós á
staðnum og í framtíðinni stendur til
að bæta við sal sem er ætlaður fyrir
teygjuæfingar. Leiðbeinendur í stöð-
inni eru Margrét Sigurðardóttir, ís-
landsmeistari í vaxtarrækt, og Freyr
Gauti Sigmundsson, sem þjálfar
einnig júdómennina. Þau taka á móti
fólki sem kemur í stöðina, leiðbeina
Stöðin er öllum opin og boðið er upp
á fjölbreyttar æfingar.
öllum í notkun tækjanna og setja
saman æfingaáætlanir fyrir hvern og
einn.
Stöðin er hin vistlegasta og ber
þess ekki merki að í þessu húsi hafi
áður verið t.d. prentsmiðja, krydd-
verksmiðja og lýsisátöppun. Eftir æf-
ingar er hægt að slappa af í setustofu,
horfa á sjónvarp og fá sér svaladrykk.
Stöðin er opin virka daga frá kl.
8-22 og um helgarfrá kl. 11-16. Fasta-
gestirgetaeinnigkomiðáöðrum tím-
um að höfðu samráði við þá hjá Ár-
manni.
44