Bændablaðið - 30.07.2020, Side 19

Bændablaðið - 30.07.2020, Side 19
Bændablaðið | Fimmtudagur 30. júlí 2020 19 Margar gerðir gróðurhúsa - fást í ál lit, svörtu og grænu. 4 mm hert gler eða 10 mm ylplast GRÓÐURHÚS TÖLVUPÓSTUR sala@bkhonnun . is SÍMI 865-9277 VEFFANG www .bkhonnun . is Smiðjuveg 12 - græn gata 200 Kópavogi Sími 517-7718 www.topplausnir.is Gerð:1339. HA 133015: 303x150x35cm 1.300 kg á einum öxli. Verð kr. 475.000 m/vsk og skráningu. Gerð: 2326 .HA 203015:303x150x35cm 2.000 kg á tveimur öxlum. Verð kr. 555.000 m/vsk og skráningu. Gerð: 2331. HA 253015: 303x150x35cm 2.500 kg á tveimur öxlum. Verð kr. 590.000 m/vsk og skráningu. Gerð: 2605. HT 203116: 310x165x30 cm 2.000 kg á tveimur öxlum. Verð kr. 640.000 m/vsk og skráningu. Gerð: 2632 . HT 254118: 410x185x35 cm. 2.500 kg á tveimur öxlum. Verð kr. 795.000 m/vsk og skráningu. Humbaur kerrur eru til afgreiðslu núna! Stærsti kerruframleiðandi Þýskalands Mótorar og varahlutir á lager Hröð og góð þjónusta Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON á ÍSLANDI MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi Sími 544-4656 | www.mhg.is Smáframleiðendur á ferðinni á Norðurlandi vestra: Ekið um með gæðavarning – Grænmeti, blóm, bætiefni, krem, kjöt, blóm og garn selt beint úr bílnum „Það hefur gengið alveg glimrandi vel, viðtökur hvarvetna mjög góðar og við fáum hrós fyrir þetta framtak,“ segir Þór hildur M. Jónsdóttir, verkefna stjóri hjá Vörusmiðju BioPol á Skaga­ strönd, en hún stýrir verkefninu Framleiðendur á ferðinni sem nú stendur y fir. Verkefnið fékk styrk úr Sóknar­ áætlun Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Ákveðið var í kjölfar kórónuveirufaraldurs á liðn­ um vetri að styrkja aukalega nokkur verkefni í héraði til að fá hjólin til að snúast hraðar og var verkefnið Smáframleiðendur á ferðinni eitt þeirra sem hlutu styrk. Alls taka þrettán smáfram­ leið endur í landshlutanum þátt í verkefninu í samstarfi við Vörusmiðju BioPol, sem hefur yfir að ráða vottuðu vinnslurými sem margir úr hópi framleiðendanna nýta sér til að útbúa sína vöru. Í boði í bílnum er fjölbreytt gæðavara, grænmeti, blóm, bætiefni, krem og kjöt, blóm og garn svo dæmi séu tekin. Smáframleiðendurnir eru Breiðar gerði, Gandur, Garð yrkju ­ stöðin Laugamýri, Grill lausnir Kambakoti, Gróðurhúsið Starra­ stöðum, Hraun á Skaga, Kaldakinn ll, Kjötvinnslan Birkihlíð, Pure Natura, Rúnalist, Skrúðvangur og Sölvanes. „Allir þessir framleiðendur vinna með sína frumframleiðslu og hráefni úr heimabyggð. Þeir hafa að leiðarljósi fullnýtingu hráefnis til að skapa gæðavöru,“ segir Þórhildur. Frá Borðeyri að Ketilási Þórhildur segir að verkefnið standi yfir í tvo mánuði, júlí og ágúst, og er fyrirkomulagið þannig að ekið er á milli staða í héraðinu aðra hvora viku. Hver ferð tekur fimm daga, hefst á mánudegi og lýkur á föstudegi, og er staldrað við á tveimur stöðum á hverjum degi, í þrjá tíma í senn. Eftir vikuna hefur bíll því haft viðkomu á tíu stöðum í fjórðungnum, frá Borðeyri í vestri til Ketiláss í Fljótum í austri. Leiðarkerfið er hægt að skoða inni á heimasíðu Vörusmiðjunnar. „Þetta er mjög mikilvæg leið fyrir þá framleiðendur sem taka þátt til að koma vöru sinni á framfæri, koma framleiðslunni á kortið og gera hana sýnilega. Þetta gerir einnig að verkum að aðgengi að vörunum verður auðveldara og betra en áður. Við erum á ferðinni og komum með vörurnar til fólksins og þannig skapast tengsl á milli framleiðenda og viðskiptavina,“ segir Þórhildur. Grundvöllur fyrir framhaldi? Hún segir að viðbrögð hafi farið fram úr björtustu vonum, fólk kunni svo sannarlega að meta það að fá bíl fullan af alls kyns kræsingum nánast heim á hlað til sín. „Við fengum þennan styrk núna til að halda verkefninu úti í tvo mánuði. Að þeim loknum munum við fara yfir málið, gera tímabilið upp og meta stöðuna. Líklega verður skoðað hvort grundvöllur er fyrir framhaldi, það er ómögulegt að segja fyrir um það núna hvort framhald verði á en hægt að fullyrða að þetta hefur gefið góða raun,“ segir Þórhildur. /MÞÞ Bíll smáframleiðenda á Norðurlandi vestra. Alls taka þrettán framleiðendur þátt í verkefninu og bjóða varning sinn til sölu í bílnum sem er á ferðinni frá Borðeyri og að Ketilási í Fljótum. Myndir / Aðsendar Þórhildur M. Jónsdóttir, verkefna­ stjóri hjá Vörusmiðju BioPol á Skagaströnd. Grænmeti og sultur af ýmsu tagi er meðal þess sem hægt er að fá í sölubíl smáframleiðenda.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.