Bændablaðið - 30.07.2020, Qupperneq 19
Bændablaðið | Fimmtudagur 30. júlí 2020 19
Margar gerðir gróðurhúsa - fást í ál lit, svörtu og
grænu. 4 mm hert gler eða 10 mm ylplast
GRÓÐURHÚS
TÖLVUPÓSTUR
sala@bkhonnun . is
SÍMI
865-9277
VEFFANG
www .bkhonnun . is
Smiðjuveg 12 - græn gata
200 Kópavogi
Sími 517-7718
www.topplausnir.is
Gerð:1339. HA 133015: 303x150x35cm
1.300 kg á einum öxli.
Verð kr. 475.000 m/vsk og skráningu.
Gerð: 2326 .HA 203015:303x150x35cm
2.000 kg á tveimur öxlum.
Verð kr. 555.000 m/vsk og skráningu.
Gerð: 2331. HA 253015: 303x150x35cm
2.500 kg á tveimur öxlum.
Verð kr. 590.000 m/vsk og skráningu.
Gerð: 2605. HT 203116: 310x165x30 cm
2.000 kg á tveimur öxlum.
Verð kr. 640.000 m/vsk og skráningu.
Gerð: 2632 . HT 254118: 410x185x35 cm.
2.500 kg á tveimur öxlum.
Verð kr. 795.000 m/vsk og skráningu.
Humbaur kerrur eru til afgreiðslu núna!
Stærsti kerruframleiðandi Þýskalands
Mótorar og varahlutir á lager
Hröð og góð þjónusta
Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON
á ÍSLANDI
MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi
Sími 544-4656 | www.mhg.is
Smáframleiðendur á ferðinni á Norðurlandi vestra:
Ekið um með gæðavarning
– Grænmeti, blóm, bætiefni, krem, kjöt, blóm og garn selt beint úr bílnum
„Það hefur gengið alveg glimrandi
vel, viðtökur hvarvetna mjög
góðar og við fáum hrós fyrir
þetta framtak,“ segir Þór hildur
M. Jónsdóttir, verkefna stjóri
hjá Vörusmiðju BioPol á Skaga
strönd, en hún stýrir verkefninu
Framleiðendur á ferðinni sem nú
stendur y fir.
Verkefnið fékk styrk úr Sóknar
áætlun Samtaka sveitarfélaga á
Norðurlandi vestra. Ákveðið var í
kjölfar kórónuveirufaraldurs á liðn
um vetri að styrkja aukalega nokkur
verkefni í héraði til að fá hjólin til
að snúast hraðar og var verkefnið
Smáframleiðendur á ferðinni eitt
þeirra sem hlutu styrk.
Alls taka þrettán smáfram
leið endur í landshlutanum þátt
í verkefninu í samstarfi við
Vörusmiðju BioPol, sem hefur yfir
að ráða vottuðu vinnslurými sem
margir úr hópi framleiðendanna
nýta sér til að útbúa sína vöru. Í
boði í bílnum er fjölbreytt gæðavara,
grænmeti, blóm, bætiefni, krem og
kjöt, blóm og garn svo dæmi séu
tekin. Smáframleiðendurnir eru
Breiðar gerði, Gandur, Garð yrkju
stöðin Laugamýri, Grill lausnir
Kambakoti, Gróðurhúsið Starra
stöðum, Hraun á Skaga, Kaldakinn
ll, Kjötvinnslan Birkihlíð, Pure
Natura, Rúnalist, Skrúðvangur og
Sölvanes. „Allir þessir framleiðendur
vinna með sína frumframleiðslu og
hráefni úr heimabyggð. Þeir hafa að
leiðarljósi fullnýtingu hráefnis til að
skapa gæðavöru,“ segir Þórhildur.
Frá Borðeyri að Ketilási
Þórhildur segir að verkefnið standi
yfir í tvo mánuði, júlí og ágúst, og
er fyrirkomulagið þannig að ekið er á
milli staða í héraðinu aðra hvora viku.
Hver ferð tekur fimm daga, hefst á
mánudegi og lýkur á föstudegi, og
er staldrað við á tveimur stöðum á
hverjum degi, í þrjá tíma í senn. Eftir
vikuna hefur bíll því haft viðkomu
á tíu stöðum í fjórðungnum, frá
Borðeyri í vestri til Ketiláss í Fljótum
í austri. Leiðarkerfið er hægt að skoða
inni á heimasíðu Vörusmiðjunnar.
„Þetta er mjög mikilvæg leið fyrir
þá framleiðendur sem taka þátt til að
koma vöru sinni á framfæri, koma
framleiðslunni á kortið og gera
hana sýnilega. Þetta gerir einnig
að verkum að aðgengi að vörunum
verður auðveldara og betra en áður.
Við erum á ferðinni og komum
með vörurnar til fólksins og þannig
skapast tengsl á milli framleiðenda
og viðskiptavina,“ segir Þórhildur.
Grundvöllur fyrir framhaldi?
Hún segir að viðbrögð hafi farið
fram úr björtustu vonum, fólk kunni
svo sannarlega að meta það að fá
bíl fullan af alls kyns kræsingum
nánast heim á hlað til sín. „Við
fengum þennan styrk núna til að
halda verkefninu úti í tvo mánuði.
Að þeim loknum munum við fara yfir
málið, gera tímabilið upp og meta
stöðuna. Líklega verður skoðað hvort
grundvöllur er fyrir framhaldi, það
er ómögulegt að segja fyrir um það
núna hvort framhald verði á en hægt
að fullyrða að þetta hefur gefið góða
raun,“ segir Þórhildur. /MÞÞ
Bíll smáframleiðenda á Norðurlandi vestra. Alls taka þrettán framleiðendur þátt í verkefninu og bjóða varning sinn
til sölu í bílnum sem er á ferðinni frá Borðeyri og að Ketilási í Fljótum. Myndir / Aðsendar
Þórhildur M. Jónsdóttir, verkefna
stjóri hjá Vörusmiðju BioPol á
Skagaströnd.
Grænmeti og sultur af ýmsu tagi
er meðal þess sem hægt er að fá í
sölubíl smáframleiðenda.