Bændablaðið - 30.07.2020, Side 41

Bændablaðið - 30.07.2020, Side 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 30. júlí 2020 41 Prjónaðir sokkar úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærðir: 35/37 (38/40) 41/43 Lengd fótar: ca 22 (24) 27 cm. Hæð á stroffi niður að hæl: ca 17 (18) 19 cm. Garn: Drops Fabel (fæst í Handverkskúnst) - Yfir hafið nr nr 604: 50 (50) 50 g - Rjómahvítur nr 100: 50 (50) 50 g - Gráblár nr 113: 50 (50) 50 g - Blár nr 107: 50 (50) 50 g - Eplagrænn nr 112: 50 (50) 50 g Prjónfesta: 26 lykkjur á breidd í sléttu prjóni og norrænu mynstri = 10 cm. Prjónar: Sokkaprjónar nr 2,5. Úrtaka / útaukning (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 72 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/ útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 9. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 8. og 9. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er upp- slátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Hælúrtaka UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 7 (8) 8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 7 (8) 8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkj- una, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt þar til 6 (7) 7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 6 (7) 7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 14 (14) 16 lykkjur eru eftir á prjóni. SOKKUR: Fitjið upp 72 (72) 80 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með bláum. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir í grábláan og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8 (4) 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 64 (68) 76 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn (= 16 (17) 19 mynstureiningar með 4 lykkjum). Í umferð merktri með ör-1 í A.1, er lykkjufjöldinn jafnaður í 66 (66) 72 lykkjur. Haldið áfram með A.1 (nú er pláss fyrir 11 (11) 12 mynstu- reiningar með 6 lykkjum). Í umferð merktri með ör-2, fækkið um 6 (6) 4 lykkjur jafnt yfir = 60 (60) 68 lykkjur. Haldið áfram með A.1 (nú er pláss fyrir 15 (15) 17 mynstureiningar með 4 lykkjum). Í umferð merktri með ör-3, fækkið um 6 (2) 6 lykkjur jafnt yfir = 54 (58) 62 lykkjur eftir. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið slétt hringinn með lit Yfir hafið þar til sokkurinn mælist ca 17 (18) 19 cm frá uppfitj- unarkanti. Prjónið nú hæl eins og útskýrt er að neðan. Hæll: Haldið eftir fyrstu 13 (14) 15 lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 28 (30) 32 lykkjur á 1 þráð án þess að prjóna lykkjurnar (= mitt á fæti) og haldið eftir síðustu 13 (14) 15 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 26 (28) 30 lykkjur á prjóni fyrir hæl. Prjónið slétt prjón fram og til baka yfir hællykkjur með lit Yfir hafið í 5 (5½) 6 cm. Setjið eitt prjónamerki mitt í síðustu umferð, prjónamerkið er notað aðeins síðar til að mæla lengd á fóti frá. Prjónið HÆLÚRTAKA með Yfir hafið – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig (með Yfir hafið): Prjónið sléttar lykkjur yfir 14 (14) 16 hællykkjur, prjónið upp 13 (14) 16 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttar lykkjur yfir 28 (30) 32 lykkjur af þræði á fæti og prjónið upp 13 (14) 16 lykkjur með- fram hinni hlið á hæl = 68 (72) 80 lykkjur í umferð. Prjónið áfram að mitt undir hæl, umferðin byrjar nú hér. Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við 28 (30) 32 lykkjur mitt ofan á fæti. Prjónið slétt hringinn með Yfir hafið og fækkið lykkjum hvoru megin við 28 (30) 32 lykkjur á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjurnar á undan fyrsta prjónamerki á fæti slétt saman og prjónið 2 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á fæti snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8 (8) 10 sinnum = 52 (56) 60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18 (19) 21 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 4 (5) 6 cm til loka, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokk þannig að það verða 26 (28) 30 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið slétt hringinn með lit Yfir hafið og fellið af fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið úrtöku við hitt prjónamerkið (= 4 lykkjur færri í umferð). Fækkið lykkjum svona hvoru megin við bæði prjóna- merkin í annarri hverri umferð alls 4 (7) 9 sinnum og síðan í hverri umferð alls 6 (3) 2 sinnum = 12 (16) 16 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjurnar prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6 (8) 8 lykkjur eftir. Klippið frá, dragið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22 (24) 27 cm frá prjónamerki á hæl. Prjónið hinn sokkinn alveg eins. Prjónaðir sokkar HANNYRÐAHORNIÐ Sudoku Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Létt Þung Miðlungs 4 9 3 1 6 5 6 1 7 2 9 5 4 8 8 9 3 1 7 3 2 6 6 4 1 5 2 6 3 9 4 2 7 5 3 5 2 8 6 7 4 Þyngst 5 2 8 6 8 6 9 1 7 4 2 9 9 2 5 3 4 1 8 5 2 3 7 4 8 9 7 2 7 5 6 3 3 1 6 4 7 4 1 5 6 2 7 9 4 1 5 9 8 2 4 7 3 6 9 8 2 6 5 1 9 8 3 1 9 8 6 4 3 5 2 9 2 7 9 8 3 7 5 2 8 9 6 7 2 4 5 3 1 8 9 6 6 7 5 Ugla er auðvitað uppáhaldsdýrið FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ Hrafn Sölvi Vignisson er 8 ára fjörkálfur sem fæddist í Reykjavík, bjó fyrstu 4 árin á Sauðárkróki en hefur síðan búið á Bifröst. Hann var snemma altalandi og hefur afskaplega gaman af að tala, hann hefur ríkt ímyndunarafl og sterkar og skemmtilegar skoðanir. Hann er mikill áhugamaður um dýr og segist iðulega vera dýrafræðingur þegar hann kynnir sig fyrir fólki. Nafn: Hrafn Sölvi Vignisson. Aldur: 8 ára. Stjörnumerki: Meyja. Búseta: Bifröst. Skóli: Varmalandsskóli. Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Mér finnst íþróttir skemmti legastar. Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Auðvitað ugla. Uppáhaldsmatur: Pastasalat með beikoni. Uppáhaldshljómsveit: Daði og gagna­ magnið. Uppáhaldskvikmynd: Green Lantern. Fyrsta minning þín? Þegar ég labbaði niður stigann og fékk mér vatn með klaka. Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóð færi? Ég spila á blokkflautu og þverflautu og langar að vera DJ. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Ég ætla að verða DJ og dýralæknir. Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Ég fór niður kreisí vatnsrennibraut í Danmörku – Lalandia. Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt í sumar? Ég ætla að fara til ömmu minnar, gera eitthvað skemmtilegt með fjölskyldunni minni, hjóla og kannski byggja kofa. Næst » Ég skora á vinkonu mína, Töru Kristínu, að svara næst.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.