Bændablaðið - 30.07.2020, Síða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 30. júlí 2020 41
Prjónaðir sokkar úr DROPS
Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá
og niður með norrænu mynstri.
Stærðir: 35/37 (38/40) 41/43
Lengd fótar: ca 22 (24) 27 cm.
Hæð á stroffi niður að hæl: ca 17 (18) 19 cm.
Garn: Drops Fabel (fæst í Handverkskúnst)
- Yfir hafið nr nr 604: 50 (50) 50 g
- Rjómahvítur nr 100: 50 (50) 50 g
- Gráblár nr 113: 50 (50) 50 g
- Blár nr 107: 50 (50) 50 g
- Eplagrænn nr 112: 50 (50) 50 g
Prjónfesta: 26 lykkjur á breidd í sléttu prjóni og
norrænu mynstri = 10 cm.
Prjónar: Sokkaprjónar nr 2,5.
Úrtaka / útaukning (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi
jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem
fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 72 lykkjur),
deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/
útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 9.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að
prjóna 8. og 9. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn
á eftir 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er upp-
slátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki
myndist gat.
Hælúrtaka
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 7 (8) 8
lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins
og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið
óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð
var slétt, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 7 (8)
8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins
og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin,
steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkj-
una, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt þar til 6 (7) 7
lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina
og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið
óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð
var slétt, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 6 (7)
7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og
prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið
óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið
stykkinu.
Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það
fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar
til 14 (14) 16 lykkjur eru eftir á prjóni.
SOKKUR: Fitjið upp 72 (72) 80 lykkjur á sokkaprjóna
2,5 með bláum. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir
í grábláan og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur
slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt
þar sem fækkað er um 8 (4) 4 lykkjur jafnt yfir – sjá
ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 64 (68) 76 lykkjur.
Prjónið A.1 hringinn (= 16 (17) 19 mynstureiningar
með 4 lykkjum). Í umferð merktri með ör-1 í A.1, er
lykkjufjöldinn jafnaður í 66 (66) 72 lykkjur. Haldið
áfram með A.1 (nú er pláss fyrir 11 (11) 12 mynstu-
reiningar með 6 lykkjum).
Í umferð merktri með ör-2, fækkið um 6 (6) 4 lykkjur
jafnt yfir = 60 (60) 68 lykkjur. Haldið áfram með A.1
(nú er pláss fyrir 15 (15) 17 mynstureiningar með 4
lykkjum). Í umferð merktri með ör-3, fækkið um 6
(2) 6 lykkjur jafnt yfir = 54 (58) 62 lykkjur eftir. Þegar
A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið slétt hringinn
með lit Yfir hafið
þar til sokkurinn
mælist ca 17 (18)
19 cm frá uppfitj-
unarkanti.
Prjónið nú hæl
eins og útskýrt
er að neðan.
Hæll: Haldið
eftir fyrstu 13
(14) 15 lykkjum
á prjóni fyrir hæl,
setjið næstu 28
(30) 32 lykkjur á
1 þráð án þess að
prjóna lykkjurnar
(= mitt á fæti)
og haldið eftir
síðustu 13 (14)
15 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 26 (28) 30 lykkjur á
prjóni fyrir hæl. Prjónið slétt prjón fram og til baka yfir
hællykkjur með lit Yfir hafið í 5 (5½) 6 cm. Setjið eitt
prjónamerki mitt í síðustu umferð, prjónamerkið er
notað aðeins síðar til að mæla lengd á fóti frá.
Prjónið HÆLÚRTAKA með Yfir hafið – sjá útskýringu að
ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig
(með Yfir hafið): Prjónið sléttar lykkjur yfir 14 (14) 16
hællykkjur, prjónið upp 13 (14) 16 lykkjur meðfram
hlið á hæl, prjónið sléttar lykkjur yfir 28 (30) 32 lykkjur
af þræði á fæti og prjónið upp 13 (14) 16 lykkjur með-
fram hinni hlið á hæl = 68 (72) 80 lykkjur í umferð.
Prjónið áfram að mitt undir hæl, umferðin byrjar nú
hér. Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við 28 (30)
32 lykkjur mitt ofan á fæti. Prjónið slétt hringinn með
Yfir hafið og fækkið lykkjum hvoru megin við 28 (30)
32 lykkjur á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjurnar á
undan fyrsta prjónamerki á fæti slétt
saman og prjónið 2 lykkjur á eftir
síðasta prjónamerki á fæti snúnar
slétt saman (= 2 lykkjur færri).
Fækkið lykkjum svona í annarri
hverri umferð alls 8 (8) 10 sinnum
= 52 (56) 60 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist
18 (19) 21 cm frá prjónamerki á hæl
(nú eru eftir ca 4 (5) 6 cm til loka,
mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að
óskaðri lengd).
Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á
sokk þannig að það verða 26 (28)
30 lykkjur bæði ofan á og undir
fæti. Prjónið slétt hringinn með lit
Yfir hafið og fellið af fyrir tá hvoru
megin við bæði prjónamerkin þannig: Prjónið þar
til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2
lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki
situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur snúnar
slétt saman.
Endurtakið úrtöku við hitt prjónamerkið (= 4 lykkjur
færri í umferð).
Fækkið lykkjum svona hvoru megin við bæði prjóna-
merkin í annarri hverri umferð alls 4 (7) 9 sinnum og
síðan í hverri umferð alls 6 (3) 2 sinnum = 12 (16)
16 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjurnar
prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6 (8) 8 lykkjur eftir.
Klippið frá, dragið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem
eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist
ca 22 (24) 27 cm frá prjónamerki á hæl. Prjónið hinn
sokkinn alveg eins.
Prjónaðir sokkar
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
4 9 3 1 6 5
6 1 7 2 9
5 4 8
8 9 3 1 7
3 2 6
6 4 1 5 2
6 3 9
4 2 7 5 3
5 2 8 6 7 4
Þyngst
5 2 8 6
8 6 9 1
7 4 2 9
9 2 5 3 4
1 8
5 2 3 7 4
8 9 7 2
7 5 6 3
3 1 6 4
7 4 1 5
6
2 7 9 4
1 5 9 8 2 4
7 3 6
9 8 2 6 5 1
9 8 3 1
9
8 6 4 3
5 2 9
2 7
9 8 3 7
5 2 8 9
6 7 2 4
5 3 1 8
9 6
6 7 5
Ugla er auðvitað uppáhaldsdýrið
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Hrafn Sölvi Vignisson er 8 ára
fjörkálfur sem fæddist í Reykjavík,
bjó fyrstu 4 árin á Sauðárkróki en
hefur síðan búið á Bifröst.
Hann var snemma altalandi og hefur
afskaplega gaman af að tala, hann
hefur ríkt ímyndunarafl og sterkar og
skemmtilegar skoðanir. Hann er mikill
áhugamaður um dýr og segist iðulega
vera dýrafræðingur þegar hann kynnir
sig fyrir fólki.
Nafn: Hrafn Sölvi Vignisson.
Aldur: 8 ára.
Stjörnumerki: Meyja.
Búseta: Bifröst.
Skóli: Varmalandsskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast
í skólanum? Mér finnst íþróttir
skemmti legastar.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Auðvitað ugla.
Uppáhaldsmatur: Pastasalat með
beikoni.
Uppáhaldshljómsveit: Daði og gagna
magnið.
Uppáhaldskvikmynd: Green Lantern.
Fyrsta minning þín? Þegar ég labbaði
niður stigann og fékk mér vatn með
klaka.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóð færi? Ég spila á blokkflautu og
þverflautu og langar að vera DJ.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Ég ætla að verða DJ og
dýralæknir.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Ég fór niður kreisí
vatnsrennibraut í Danmörku – Lalandia.
Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt
í sumar? Ég ætla að fara til ömmu
minnar, gera eitthvað skemmtilegt með
fjölskyldunni minni, hjóla og kannski
byggja kofa.
Næst » Ég skora á vinkonu mína, Töru
Kristínu, að svara næst.