Fjölrit RALA - 10.01.1979, Page 10
Afbrigði
-8-
hvert afbrigði, sem reynst hefur vel áður fyrr, er hæpið, að það sé ennþá
til sem slíkt hár á landi.
Framan af öldinni var orðið kartöflukyn oft notað um kartöfluafbrigði
(sbr. fjárkyn, sára Guðmundarkynið). Nú er hins vegar einatt talað um
"afbrigði** og er það orð því notað hér, þott við teljum engu verra að tala
um kyn í þessu sambandi.
I. TILRAUNIR MED KARTÖFLUAFBRIGÐI A FYRSTA HLUTA 20. ALDAR.
Fyrstu skipulögðu tilraunir með afbrigði kartaflna voru gerðar í Gróðrar-
stöðinni í Reykjavík á vegum Búnaðarfélags íslands og á Akureyri á vegum
Ræktunarfélags Norðurlands. Frá tilraununum í Reykjavík er skýrt í Búnaðar-
ritinu, en á Akureyri í Ársriti Ræktunarfélags Norðurlands.
1. Tilraunir í Reykjavík og að Laugarvatni.
Árið 1900 voru fyrstu tilraunir með kartöfluafbrigði gerðar í Gróðrar-
stöðinni í Reykjavík að frumkvceði Einars Helgasonar garðyrkjuráðunauts. Var
þá gerður samanburður á 19 afbrigðura. Uppskerumestu afbrigðin voru þá
Queen of the Wally og Wonder of the World.
Fljótlega vatt þessi tilraun upp á sig. Sumarið 1902 voru 74 afbrigði
reynd, og svipaður fjöldi á næstu árum. Lökustu afbrigðunum var jafnan fleygt,
er ljóst var, að þau stóðu hinum ekki á sporði. Árið 1907 telur Einar Helgason
óhætt að mæla með nokkrum afbrigðum. Ekki var eingöngu tekið tillit til upp-
skerumagns, heldur og útlits, stasrðar og bragðgæða. Þessi afbrigði voru:
Bóðinjarkartöflur, Akureyrarkartöflur, Remarkable, Próf. Dr. Orth, Reading giant,
og Snemmvaxin rósakartafla.
Á næstu árum var tilraunum haldið áfram með svipuðu sniði, þó fór fjölda
afbrigða í tilraunum fækkandi, því að mörg helltust ilr lestinni. Nokkur af-
brigði spjöruðu sig þó bærilega svo sem Akraneskartöflur, Rauðblá, Beauty of
Hebron, Leksands, Kvæfjord, Akureyrarkartöflur og Early Puritan.
Árið 1920 fær Einar Helgason tvö afbrigði frá Edinborg, sem voru kölluð
Chile-kartöflur. Annað þeirra var blátt, en hitt bleikt, og hið síðarnefnda
var síðar talið vera sama afbrigðið og Eyvindur (Kerr's Pink). Á árunum 1920-
1928 óx afbrigðið Sharpless Express með ágætum í tilraunum og í garði á Eyrar-
bakka gaf það rúmlega 20 falda uppskeru.
Árið 1920 tók Ragnar Ásgeirsson við tilraunastöð ríkisins og flutti hana
austur að Laugarvatni. Á áratugnum 1920-1930 stóðu eftirtalin afbrigði sig vel: