Fjölrit RALA - 10.01.1979, Side 12

Fjölrit RALA - 10.01.1979, Side 12
Afbrigði -10- voru góðar kartöflur af þroskamestu plöntunum teknar frá og geymdar til út- sæðis sérstaklega. Þetta virtist bera árangur, því að þessar kartöflur, svo- kallaðar Orvalskartöflur, stóðu sig nokkuð vel miðað við önnur afbrigði, en ekki er hægt að segja nákvæmlega til um árangurinn, því að afbrigðið, sem valið var úr, var ekki haft til samanburðar. írið 1913 höfðu verið prófuð um 50 afbrigði á Akureyri, og nokkuð verið valið úr þeim. Afbrigði, sem þá er einkum mælt með, eru Beauty of Hebron, Mossros, Helguhvammskartöflur, Remarkable og Orvalskartöflur■ A árunum 1913-1918 reynist afbrigðið Beauty of Hebron best, en Orvals- kartöflur, Lónskartöflur og Undirfellskartöflur stóðu sig einnig ágætlega. Skýrslur um tilraunir með kartöfluafbrigði á Akureyri vantar að mestu árin 1919 til 1923, en á árinu 1924 er svo komið, að engin hrein afbrigði eru til í stöðinni og munu þá flest hinna gömlu afbrigða vera glötuð. Sýnist slæmt að missa afbrigðin Beauty of Hebron, sem hafði haft talsverða yfirburði yfir önnur afbrigði, svo og Orvalskartöflur. A árinu 1925 er aftur byrjað á afbrigðatilraunum. Voru þá fjögur afbrigði prófuð, en ári seinna níu. Þá voru Tjdlig Rosen og Up to date uppskerumest. Var nú farið að flokka afbrigðin í snemmvaxnar og seinvaxnar kartöflur. I árs- ritinu 1933 er mælt með Tidlig Rosen sem fljótvaxinni og árvissri kartöflu. A eftir henni koma svo afbrigðin Great Scot og Skán, sem einnig eru fljótvaxin. Af þeim afbrigðum, sem seinvaxin teljast, eru Akureyrarjarðepli, Rauðar íslenskar og Blárauðar kartöflur ofarlega. Haustið 1936 byrjar Ölafur Jónsson á úrvalsræktun úr Rauðum íslenskum. Aður hefur komið fram, að úrvalsræktun, sem byrjað var á árið 1904, virtist bera árangur, en það úrval glataðist. ölafur valdi kartöflur undan 29 grösum, sem gáfu mikla uppskeru og lítið smælki. Uppskerunni undan hverju grasi var haldið sér og prófuð aftur sumarið 1937. Þá var enn valið eftir uppskerumagni, en einnig með hliðsjón af meðal- stærð kartaflanna. Sumarið 1938 voru 5 bestu stofnarnir bornir saman við óvald- ar og samsafn úr tilrauninni 1937. Þá báru 2 stofnar af, með mesta uppskeru, vænstar kartöflur en minnst smælki. Þeir stofnar voru svo reyndir áfram næstu árin. Þeir stóðu sig vel, einkum annar þeirra, og gaf hann lítið minni uppskeru en afbrigðin Up to date og Gular Akureyrar, sem þá undanfarin ár höfðu gefið einna mesta uppskeru af seinvöxnu afbrigðunum. Þurrefnisuppskeran fór reyndar langt fram úr Up to date, en stóð þeim gulu jafnfætis. Þessi stofn varð svo þekktur undir nafninu ölafsrauður■ Telja verður, að úrval þetta hafi tekist ágætlega. Ölafsrauður var upp- skerumeiri (15-18% meiri uppskera) en Rauðar íslenskar, sem hann var valinn úr.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Fjölrit RALA

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.