Fjölrit RALA - 10.01.1979, Qupperneq 18
Afbrigði
-16-
Afbrigðið Alaska Frostless er aðeins ílangt og talsvert flatt. Hýðið er
ljósgrábleikt, stundum með blábrúnum oreglulegum flekkjum. Nafli og augu grunn.
Kjötlitur beingulur eða grágulur. Uppskera er mikil, hnýðin meðalstór og mörg
undir. Sæmilegar til matar. Grasið er fremur lágt, en breiðir mjög úr sár.
Laufblöðin eru stór. Blómgast fljótt, blóm blá.
III. NÖVERANDI TILRAUNASKIPULAGNING OG TILLÖGUR UM BREYTINGAR.
Tilraunir með kartöfluafbrigði eru nú gerðar á tvennan hátt. I tilraun
nr. 390 eru öll afbrigði, sem álitleg þykja. Tilraunin er lögð út í fjórum
blokkum (endurtekningum) með tilviljanakenndri röðun afbrigðareita í hverri
blokk og með varðbeltum til enda. Uppskera úr hverjum reit er vegin sár og fást
þannig fjórar uppskerumælingar á sárhverju afbrigði. Við útreikninga má þá
beita sveiflufræðilegum aðferðum. Frostþol og sjúkdómar eru og athugaðir.
Þui'refni eða sterkja eru mæld, en í ljós hefur komið, að sterkju- eða þurrefnis-
hlutfall stendur í nokkuð nánu sambandi við bragðgæði.
Afbrigði, sem lakari þykja, eru í tilraun nr. 4600, sem er lögð út án
endurtekninga. Uppskera er vegin að hausti, frostþol metið og sjúkdómar athug-
aðir. Ef eitthvert afbrigðið virðist uppskerumikið má taka það inn í tilraun
nr. 390.
Tilraunir þessar eru gerðar á Korpu, Skriðuklaustri og Möðruvöllum.
Gallar við núverandi tilraunaskipulag eru einkum þeir, að of fáar kart-
öflur eru af hverju afbrigði (u.þ.b. 20 útsæðiskartöflur settar niður að vori).
Ef einhver afföll verða, rýrir það gildi uppskerusamanburðarins. Þá er og
lítið hægt að bragðprófa afbrigðin, vegna lítillar uppskeru. Ekki er heldur
hægt að meta áhrif slæmrar meðferðar.
Hár er því lagt til, að einni tilraun verði bætt við þær, sem þegar eru
gerðar. Valin verði 4-6 álitlegustu afbrigðin og þeim fjölgað, þannig að hægt
sá að setja þau niður með niðursetningarválum í t.d. 20-100 m langa garða. Upp-
skeran verður þá það mikil, að uppskerusamanburðurinn verður öruggari, auðveld-
ara verður að hreinsa afbrigðið með tilliti til sjúkdóma og hægt verður að
framkvcBma kerfisbundna bragðprófun. Slíka tilraun mætti einnig gera hjá kart-
öflubændum.
Lagt er til að afbrigðaprófanir í framtíðinni verði þá með eftirfarandi
sniði:
1. Viðhald uppskeruminni afbrigða, þar sem settar eru niður árlega 20-30
kartöflur af hverju afbrigði án endurtekninga. Hár er einnig hægt að
setja ný afbrigði, er fengin verða til landsins og fylgjast með þeim