Fjölrit RALA - 10.01.1979, Page 51

Fjölrit RALA - 10.01.1979, Page 51
-49- Lega ræktunarstaða veitir þó verulega uppbót fyrir takmarkaðan sólskinsstundafjölda. Enda getur uppskeran stundum náð að verða allt að því jafn mikil að vöxtum hér og í löndum, sem njóta langt um fleiri sólskinsstunda, og búa þannig við mun hærri lofthita. Skortur á nægum sumarhita gerir nauðsynlegt, að garðlönd njóti sem best sólarátta. Garðstæði í jöfnum en dálítið líðandi halla gegn suðri eða suð- vestri nýtur að öðru jöfnu best sólar. Jarðvegshitinn verður þar meiri en á flötu landi eða gegnt öðrum áttum, þá sólar gætir. Garðstæðið þiðnar, þornar og hitnar fyrr að vori, og er því fyrr hæft til vinnslu og niðursetningar. Hæðardrög á móti sólarátt geta einnig reynst ákjósanleg garðstæði svo fremi halli sé ekki mikill. Þar stígur lofthitinn oft mjög hátt og góð hreyfing er jafnan á lofti, sem ver frostskemmdum, þegar sú hætta er yfirvofandi. Oft get- ur munað verulega miklu, hvað þetta snertir, og þannig jafnvel ráðið úrslitum um sprettu í köldum og lélegum sumrum. En um þetta bera margir heimilisgarðar vitni. Forðast ætti að velja garðland, sem hefur halla á móti austri eða suð- austri, ef annað betra býðst. Aðalástæðan er sú, að eftir frostnætur verða þar ávallt sneggri umskipti á milli kulda og hita en í görðum, sem liggja við öðrum áttum. Nái sól að skína á plöntur snemma og snögglega eftir frostnætur, verða frostskemmdir alltaf mun meiri, en ef plöntur þiðna hægt upp. Mjög hallandi garðstæði ber að varast, bæði sakir þess að öll störf verða þar fyrirhafnarsöm og tímafrek. Raka- og næringarskilyrði vilja einnig verða misjafnari, auk þess sem hætta getur verið á burtskolun gróðurmoldar sé garður- inn staðsettur á úrkomusvæði og jarðvegur hans mjög léttur og laus. Þar sem kartöflurækt er umtalsverð og stunduð með fullkomnum vélakosti, eins og nú tíðkast, getur reynst miklum vandkvæðum bundið að velja land, sem stuðlar að því að jafna á sem æskilegastan hátt óhagstæðar sveiflur í tíðarfari og skapa sem fullkomnasta ræktunaraðbúð. Eigi að síður skal þess ávallt kapp- kostað eins og möguleikarnir í hverju tilviki leyfa að meta og vega sem best allar aðstæður. III. YFIRLIT. Kartöflurækt getur seint orðið með öllu árviss sem búgrein, nema ef vera kynni á tiltölulega afmörkuðum svæðum í veðursælustu héruðum landsins. Löng ræktunarreynsla hefur leitt í ljós, að þannig góðsveitir eru alla vega fyrir hendi á stöku stað í lághéruðum á Suðurlandi og á afmörkuðum svæðum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.