Fréttablaðið - 24.11.2020, Blaðsíða 4
Öll dauðsföllin eru
rakin til fíns svifryks.
MÚLAÞING Heimastjórn Borgar-
fjarðar eystri í hinu nýja sveitar-
félagi Múlaþingi á Austurlandi vill
að sveitarstjórnin beiti sér fyrir því
að hafsvæði sem kallað er Skápur-
inn verði lokað fyrir togveiðum.
Togarar megi almennt veiða
á miðum tólf sjómílur frá landi.
Sums staðar megi togarar koma
nær, meðal annars á Borgarfjarðar-
miðum. „Þar mega togarar veiða
allt að sex sjómílur frá landi og er
umrætt svæði nefnt í daglegu tali
Skápur,“ segir í fundargerð heima-
stjórnarinnar. Á hverju hausti komi
togarar og veiði á heimamiðum
Borgfirðinga þannig að heimasmá-
bátar þurfi róa allt að 40 sjómílur
til að eiga von á afla. „Þetta er eina
slíka svæðið á landinu sem er svo
nálægt sjávarþorpi. Þetta ástand er
ógn við kjarnaatvinnugrein brot-
hættrar byggðar.“ – gar
Loki Skápnum
fyrir togveiðum
Lagt hefur verið til að banna tog-
veiði í Skápnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ TUMI
IÐNAÐUR Í fréttaskýringaþættinum
Kveik var í síðustu viku fjallað um
iðnnám og vandkvæðin sem fylgja
því fyrir nemendur að komast á
samning hjá meistara, áður en
þeir geta útskrifast. Ræddar voru
hugmyndir um að færa iðnnámið
alfarið inn í skólana og leggja niður
sveinspróf.
Finnbjörn A. Hermannsson, for-
maður Byggiðnar – félags bygginga-
manna, bendir á í pistli á vefsíðu
félagsins að hætta sé á að nem-
endur í byggingagreinum fái ekki
þá þjálfun sem atvinnulífið krefst,
verði þessi breyting að veruleika.
Vandséð sé að skólarnir geti reist
þök eða steypt í mót, svo dæmi séu
tekin. Hann geldur líka varhug við
að afnema sveinspróf, sem eru á for-
ræði atvinnulífsins. „Breytingarnar
mega ekki verða til þess að draga úr
gæðum iðnnáms, vegna eilífs skorts
á fjármagni, eða skerða þjálfun
nemenda. Með hjálp atvinnulífsins
öðlast nemendur í byggingagreinum
dýrmæta þekkingu sem vandséð er
að þeir geti aflað sér innan veggja
skólanna,“ segir Finnbjörn. – bþ
Vilja halda í
sveinsprófin
jeep.is
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
35” BREYTTUR 33” BREYTTUR ÓBREYTTUR
JEEP® GRAND CHEROKEE TRAILHAWK – VERÐ FRÁ: 11.690.000 KR.
• 3.0 V6 250 HÖ. DÍSEL, 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING
• 570 NM TOG
• HÁTT OG LÁGT DRIF
• RAFDRIFIN LÆSING Í AFTURDRIFI
• LOFTPÚÐAFJÖÐRUN AÐ FRAMAN OG AFTAN
• HLÍFÐARPLÖTUR UNDIR VÉL, KÖSSUM OG SKIPTINGU
• BI-XENON LED FRAMLJÓS MEÐ ÞVOTTAKERFI
• RAFDRIFIN OPNUN Á AFTURHLERA
ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
JEEP® GRAND CHEROKEE BREYTTIR OG ÓBREYTTIR
• ÍSLENSKT LEIÐSÖGUKERFI
• BAKKMYNDAVÉL MEÐ BÍLASTÆÐAAÐSTOÐ
• FJARLÆGÐASKYNJARAR AÐ FRAMAN OG AFTAN
• BLINDHORNSVÖRN
ALLAR BREYTINGAR UNNAR AF BREYTINGARVERKSTÆÐI ÍSBAND
UMHVERFISMÁL Umhverfisstofnun
Evrópu, EEA, áætlar að 60 ótíma-
bær dauðsföll verði á Íslandi vegna
útblástursmengunar. Þetta er sami
fjöldi og í skýrslu stofnunarinnar á
síðasta ári, en þá hafði dauðsföll-
unum fækkað um 20 frá fyrra ári.
Samkvæmt áætlun umhverfis-
ráðherra, Hreint loft til framtíðar,
er markmiðið að ná ótímabærum
dauðsföllum á Íslandi vegna meng-
unar undir fimm árið 2029, meðal
annars með rykbindingu gatna og
betri upplýsingagjöf um loftgæði á
hverjum tíma.
Í skýrslu EEA kemur fram að öll
dauðsföllin 60 séu vegna fíns svif-
ryks. Stofnunin mælir einnig köfn-
unarefnisdíoxíð og óson á jörðu
niðri. Áhrif þessa tveggja síðast-
nefndu efna á heilsufar Íslendinga
eru hverfandi.
Þrátt fyrir að tala dauðsfalla hafi
ekki lækkað milli ára hérlendis er
Ísland þó meðal þeirra fjögurra
landa sem eru undir strangari við-
miðunargildum álfunnar. Hin eru
Finnland, Eistland og Írland. Meðal
þeirra ríkja sem verst koma út má
nefna Ítalíu, Pólland og Rúmeníu.
Stofnunin gerir ráð fyrir 417
þúsund ótímabærum dauðsföllum
vegna mengunar í 41 Evrópulandi,
en gögnum er safnað saman á fjögur
þúsund stöðum. Þar af eru rúmlega
76 þúsund dauðsföll í Þýskalandi,
66 þúsund á Ítalíu og og 50 þúsund
í Póllandi. Miklar framfarir hafa þó
orðið í álfunni sem heild og tekist að
fækka árlegum dauðsföllum um 60
þúsund á tíu árum. – khg
Enn 60 dauðsföll árlega vegna svifryksmengunar
STJÓRNSÝSLA „Okkur finnst rétt
að þarna sé meira gagnsæi en ekki
svona babúskur þar sem hvert er
inni í öðru,“ segir Eyþór Arnalds,
oddviti Sjálfstæðismanna í borgar-
stjórn og stjórnarmaður í Orkuveitu
Reykjavíkur.
Eyþór ásamt Hildi Björnsdóttur
samf lokkskonu sinni bókaði í
stjórn Orkuveitunnar í lok októ-
ber að skoða ætti þá „sviðsmynd
að OR verði lagt niður í núverandi
mynd og verkefni verði f lutt til
dótturfélaga“ svo hver eining yrði
sjálfstæðari og hætta á hagsmuna-
árekstrum yrði minni.
Móðurfélag OR er í raun eins og
eignarhaldsfélag að sögn Eyþórs.
„Þarf af leiðandi er svolítið langt á
milli eigenda og þeirra eininga sem
eru raunverulega virkar. Við viljum
opna þetta, stytta boðleiðir og létta
á kerfinu,“ segir hann
Eyþór bendir á að Reykjavíkur-
borg sé meirihlutaeigandi í Orku-
veitunni sem eigi síðan einstaka
einingar í rekstri, meðal annars
Veitur, Gagnaveituna og Orku nátt-
úrunnar. „Fulltrúar borgarinnar
eru með beinan aðgang að Orku-
veitunni, sem er eignarhaldsfélag-
ið, en ekki með beinan aðgang að
rekstrareiningunum,“ segir hann.
Frá því Orkuveitunni var skipt
upp og dótturfélög stofnuð um mis-
munandi rekstur í ársbyrjun 2014,
hefur sú regla gilt að þrír af fimm
stjórnarmönnum í dótturfélögun-
um ásamt varamönnum séu starfs-
menn samstæðu Orkuveitunnar.
„Það á ekki gera þetta svona bara
af því að þetta hefur lengi verið
svona heldur skoða hvað sé best til
að tryggja samkeppni og að eining-
arnar séu óháðar. Það þarf meiri
skilvirkni og opna samkeppni í
staðinn fyrir að þetta sé lokað,“
segir Eyþór. Gera mætti dóttur-
félögin óháð eignarhaldsfélagi.
„Því ef þau eru alltaf undir einu
félagi þá er ekki víst að hagsmunirn-
ir séu alltaf óháðir. En þetta er líka
spurning um að einfalda félögin;
þetta er orðið dálítið þykkt millilag
– Orkuveitan. Og Orkuveituhúsið er
náttúrlega táknmynd fyrir mikla
yfirstjórn,“ segir Eyþór.
Í minnisblaði stjórnenda Orku-
veitunnar sem lagt var fram á fyrr-
nefndum stjórnarfundi segir að fyr-
irkomulagið frá 2014 til að tryggja
að samstæðan starfi sem heild í
samræmi við áherslur eigenda hafi
að því er virðist gefið góða raun.
„Í samræmi við framangreindar
skýringar er lagt til að ákvæði sam-
þykkta dótturfélaga um að þrír
af fimm stjórnarmönnum ásamt
varamönnum skuli vera starfsmenn
samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur,
skuli vera óbreytt,“ segir í minnis-
blaðinu. gar@frettabladid.is
Sjálfstæðismenn vilja að OR
verði ekki áfram móðurfélag
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn, segir að verði Orkuveita Reykjavíkur lögð niður
sem móðurfélag fengist opnari samkeppni og meira gagnsæi í rekstri dótturfélaga félagsins. Eigendur
fengju þá beinan aðgang að stjórnum dótturfélaganna. Stjórnendur OR leggja til óbreytt fyrirkomulag.
Eyþór Arnalds segir ekki víst að hagsmunir dótturfélaga OR séu alltaf óháðir hverjir öðrum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þetta er orðið
dálítið þykkt
millilag – Orkuveitan. Og
Orkuveituhúsið er náttúr-
lega táknmynd fyrir mikla
yfirstjórn.
Eyþór Arnalds, fulltrúi Sjálfstæðis-
flokks í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur
2 4 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð