Fréttablaðið - 24.11.2020, Blaðsíða 72
Ég hef gaman af því
að setja á borð
silfur sem amma mín
átti. Einn ig erum við
með gamlar jólaskeiðar
og veljum þá fæðingarár
okkar.
Elín
Albertsdóttir
elin
@frettabladid.is
Jóhann Gunnar er þekktur úr
þáttunum Allir geta dansað á Stöð
2 en þar sýndi hann eftirminni-
lega takta í fatavali og er hvorki
feiminn við glys né glimmer.
Hann er einnig þekktur sem
bötler enda starfaði hann sem
slíkur á Bessastöðum lengi.
Kristín, eða Kiddý, eins og hún er
kölluð, starfar sem upplifunar- og
þróunarstjóri Þjóðleikhússins
en bæði hafa ánægju af fallegum
hlutum.
Kiddý er menntaður blóma-
skreytir og framleiðslumaður svo
hún leggur sig fram af miklum
metnaði við jólaskreytingarnar.
Kiddý og Jói ráku blómabúð á
árum áður og kunna því vel til
verka þegar kemur að blóma-
skreytingum.
Hjónin eru sérstaklega samheld-
in og vinna hlut ina í samvinnu.
„Kiddý er náttúrlega helst með
blómaskreytingarnar. Við erum
pínulitlir nördar í þessu. Viljum
hafa allt samstætt. Leggjum áherslu
á að jólakúlur í skreytingum séu í
stíl við skraut í ljósa krónunni og á
jólatrénu. Þannig fáum við heild-
rænt útlit en ekki allt hvað úr sinni
áttinni,“ útskýrir Jói. „Stundum
erum við með túlípana á borðum,
en núna ákváðum við að vera með
fallega blómaskreytingu. Hún má
þó aldrei vera hærri en 23 cm, til að
fólk geti horfst í augu yfir borðið.
Oft er ég að elda jólamatinn á
meðan hún setur upp borðið með
fallegum skreytingum. Við viljum
hafa jólaborðið fallegt og erum
hrifin af glysi og glimmeri. Um
áramótin gerum við svo eitthvað
allt annað,“ segir Jói og bætir við að
hann sé svo mikill nörd að hann
mæli hversu langt hnífapörin eigi
að vera frá borðbrún.
Jói segir að þau skreyti matar-
borðið eftir því hvort bera eigi
matinn fram á fötum eða á
diskunum. „Það þarf meira pláss
þegar maður fer með allan matinn
á borðið í skálum og á fati. Við
vorum með hvítt, gyllt og silfurlitt
að þessu sinni og við erum oftast
með þá. Ég hef gaman af því að
setja á borð silfur sem amma mín
átti. Einn ig erum við með gamlar
jólaskeiðar og veljum þá fæðing-
arár okkar. Þetta er því blanda af
nýju og gömlu. Síðan röðum við
jólasveinum úr Jólahúsinu í Eyja-
firði á skenkinn fyrir aftan borðið.“
Jói og Kiddý hafa alltaf verið
með möndlugraut með karamellu-
sósu í forrétt á aðfangadag en núna
ætla þau að færa hann til hádegis
og hafa humar í staðinn. „Við erum
alltaf með rjúpu á aðfangadag og
síðan erum við með ís á eftir sem
er uppskrift frá ömmu Kiddýar.
Við viljum halda í gamlar hefðir.
Borðum til dæmis eftirréttinn eftir
að pakkar hafa verið teknir upp.“
Jói segir að hann leggi mikið
upp úr servíettubrotum og að
þessu sinni gerði hann jólatré úr
servíettunum. Hann sagðist hafa
gúgglað christmas tree napkin fold
og fengið upp Youtube-kennslu-
myndband. „Það var mjög einfalt
að gera þetta,“ segir hann. „Við
höfum mjög gaman af því að
skreyta hjá okkur og sérstaklega
núna á þessum skrítnu tímum.
Okkur veitir ekkert af að fá smá
gleði og birtu inn í lífið. Aðventan
er skemmtilegur tími.“
Nördar þegar kemur að skreytingum
Kristín og Jóhann Gunnar eru miklir snillingar þegar kemur að skreyting-
um. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Glæsilegt borðið þar sem litlu hlut-
irnir skipta öllu máli.
Gamalt sllfur
frá ömmu Jóa
og jólaskeiðar
fá sinn stað á
fallegu veislu-
borðinu.
Jói mælir lengdina frá borðbrún að
hnífapörum. Sömuleiðis eru glösin
á borðinu í réttri fjarlægð.
Það er ekki
amalegt að
setjast til borðs
við þetta borð.
Kristín er lærður blómaskreytir og kann að útbúa fallegar skreytingar með lifandi blómum.
Hjónin Jóhann Gunnar Arnars-
son og Kristín Ólafsdóttir eru
sannkallaðir fagurkerar og
leggja mikla áherslu á að hafa fal-
legt í kringum sig. Það á ekki síst
við um jólin. Þau úthugsa hvert
smáatriði.
24. nóvember 2020 JÓL 2020 50 FRÉTTABLAÐIÐ