Fréttablaðið - 24.11.2020, Blaðsíða 56
Þórunn býr ásamt fjölskyldu
sinni í fallegu raðhúsi á besta stað
í Fossvoginum þar sem þau hafa
komið sér vel fyrir. „Ég hef alla tíð
haft mikinn áhuga á jólaskrauti og
skreytingum, eða bara jólunum.
Innblástur sæki ég í blöð, Pinterest
sem ég skoða mikið, og svo er ég
tíður gestur hjá vinkonum mínum
í Magnoliu, sem hafa meðal annars
gert jólakransana mína í mörg ár,
og bæti ég við fyrir hver jól.
Þórunn segist vera fremur fast
heldin á liti og jólaskraut. „Ég held
mikið í sömu liti í mínum þema og
er ekki mikið fyrir að hafa mikla
liti í jólaskrauti, mér finnst alltaf
fallegast að vera með þessa nátt
úrulegu liti, nota mikið köngla, alls
kyns greni og svo auðvitað svart,
hvítt, grátt og beige, sem er litapall
ettan mín.“
Þórunn er með litapallettuna
og efnisval á hreinu fyrir þessi jól.
„Það eru þessir fallegu brúnu tónar,
flauel, hör með smá svörtu og auð
vitað jólagreni og mikið af kertum.
Svo einfalt og fallegt,“ segir Þórunn
og er mjög hrifin af einfaldleik
anum.
Jólakransarnir frá Magnoliu
Segðu okkur frá jólaskrautinu þínu í
ár og hvaðan þú færð innblásturinn.
„Ég á nokkra einstaklega fallega
jólakransa sem ég fékk í Magnoliu.
Fyrir hver jól fæ ég ávallt upp
lyftingu á þeim, þeir eru hér og þar
um húsið og mér finnst þeir skreyta
svo mikið. Ég hef skreytt minna
síðustu ár en ég gerði, finnst fallegra
að hafa minna af skrauti, og vil hafa
það frekar látlaust, einfalt, „keep it
simple“ eða „less is more“. Aðspurð
segist Þórunn oft fá innblástur í
fallegum verslunum, blöðum og á
netinu, og reyni ávallt að gera hug
myndirnar að sínum.
Fyrsta jólaskrautið kúla með
Maríu mey
Manstu eftir fyrsta uppáhalds jóla-
skrautinu þínu?
„Já, ég hélt alltaf upp á kúlu með
Maríu mey sem ég man eftir að
hafa skreytt tréð með sem krakki.
Ég á þessa kúlu enn í dag. Allir
jólakransarnir mínir eru í miklu
uppáhaldi hjá mér.“
Þórunn hefur mikið fyrir
jólunum og byrjar snemma að
undirbúa jólin. „Ég byrja mjög
snemma að undirbúa jólin, finnst
gott að vera skipulögð þegar kemur
að jólunum. Byrja að skreyta í
lok október, og bæti aðeins við í
kringum aðventuna, ég er mikið
jólabarn og er kölluð jólaálfurinn.
Get klárlega sagt að þetta sé mín
uppáhaldsárstíð.“
Það er margt sem Þórunni
finnst skemmtilegt við jólin og á
í vandræðum með að gera upp á
milli. „Eitt af því sem mér finnst
skemmtilegast við jólin er lyktin af
grenikertunum, fersku jólagreninu,
svo eru það öll fallegu ljósin, sam
verustundirnar með fjölskyldunni,
jólahlaðborðin, jólatónleikarnir
og svo má lengi telja. Nú hlakka ég
mikið til að halda jólin í bústaðn
um okkar sem við erum búin að
vera að vinna í að gera heimilis
legan og kósí.“
Það leynir sér ekki að Þórunn er
mikið jólabarn og fær alla fjölskyld
una í lið með sér. „Jólabarnið í mér
smitar út frá sér og nú eru börnin
mín þvílík jólabörn, í þessu húsi
byrja jólalögin að hljóma í septem
ber sem og jólamyndirnar að rúlla.“
Áttu þinn uppáhaldsjólasvein?
„Kertasníkir er minn jólasveinn,
hann færði mér ávallt svo veglegar
gjafir í skóinn þegar ég var krakki,
en svo tók maðurinn minn við og
gefur mér gjöf í nafni hans.“
Fastar jólahefðir og venjur eru
Þórunni hugleiknar.
„Gegnum árin höfum við ávallt
farið á jólatónleika, ég baka sörur
með systur minni, svo er alveg
ómissandi að baka jólaterturnar
hennar mömmu. Svo förum við
einnig og höggvum okkar eigið
jólatré í Haukadalsskógi sem er
alltaf jafn gaman. Á Þorláksmessu
tökum við svo jólahlaðborð með
fjölskyldunni og svo rölt í mið
bænum og svo er það skatan hjá
systur minni. Mér þykir mjög vænt
um þessar hefðir, en nú í ár verður
þetta aðeins öðruvísi, þessi jól
verða öðruvísi en öll önnur jól.“
Öðruvísi jól í New York
Ertu til í að deila með okkur
lesendum minningum um öðru-
vísi jól en þið áttuð að venjast? Já,
það er tvennt sem stendur upp úr.
Við fjölskyldan höfum nokkrum
sinnum verið á Flórída yfir jólin
og einu sinni flugum við í gegnum
New York og gistum eina nótt.
Okkur langaði til að upplifa jóla
stemninguna þar. En svo var það
fyrsta sem við þurftum að gera
þegar við fórum út að fara í fyrstu
búðina sem við sáum og kaupa
okkur húfur, trefla og vettlinga,
því kuldinn var svo rosalegur. Ég
held að við höfum aldrei labbað
eins hratt í gegnum Central Park og
þá. Ég man að við stukkum reglu
lega inn í búð til að hlýja okkur
og við þekkjum nú alveg kulda
hér en þetta var nístingskuldi.
Síðan ein jólin lentum við í því að
öll jólatrén voru búin nema bara
pínulítil, ég var smá leið, en þetta
var mjög skrítið þar sem allt er nú
til í Ameríku og mikið af öllu. Mér
fannst svolítið eins og við værum
í jólamyndinni „Christmas with
the Cranks“. Annars hlakka ég
mikið til að vera með fólkinu mínu
og fjölskyldu yfir hátíðarnar í ár
og njóta eins vel og hægt er,“ segir
Þórunn að lokum.
Ég held mikið í
sömu liti í mínum
þema og er ekki mikið
fyrir að hafa mikla liti í
jólaskrauti, mér finnst
alltaf fallegast að vera
með þessa náttúrulegu
liti.
Rómantísk
jól þar sem
einfaldleikinn
ræður ríkjumMæðgurnar hafa gaman af því að skreyta saman og undirbúningur jólanna er í hávegum hafður. Birgitta Líf og Leah Mist Brandsdætur hafa erft áhugann, hæfileikana og listsköpunina frá móður sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Embla tekur ávallt þátt og nýtur þess að stilla sér upp.
Þórunni er margt til lista lagt og hér má sjá fallega jóla-
köku sem hún bakaði og skreytti.
Þórunn er hugmyndarík í bakstr-
inum og gerir fallegar jólakökur
sem heilla yngri kynslóðina upp úr
skónum. Hér má sjá jólatréspinna
sem gleðja bæði auga og munn.
Þórunn hefur líka mjög gaman af því að pakka inn
jólagjöfum og nostra við pakkana. Listrænir hæfileikar
hennar skína í gegn þegar kemur að innpökkun jóla-
gjafanna.
Grenið spilar stórt hlutverk á jólunum hjá Þórunni og einfaldleikinn er í forgrunni.
Þórunn Högnadóttir, stílisti og
fagurkeri með meiru, byrjar
snemma að setja upp aðventuna
og veit fátt skemmtilegra en að
fegra heimilið fyrir hverja árstíð
en jólin eru í sérstöku uppáhaldi.
Sjöfn þórðardóttir
24. nóvember 2020 JÓL 2020 34 FRÉTTABLAÐIÐ