Fréttablaðið - 24.11.2020, Blaðsíða 116
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og bróðir,
Ólafur K. Eiríksson
Hlíðarhvammi 12, Kópavogi,
lést á Hrafnistu í Laugarási
sunnudaginn 15. nóvember sl.
Útför fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 26. nóvember kl. 13.
Vegna aðstæðna í samfélaginu geta aðeins nánir
aðstandendur og vinir verið viðstaddir. Athöfninni verður
streymt á slóðinni https://promynd.is/olafur
Erik Bo Eiríksson Tove Andersen
Alex Örn Eiríksson
Racel Eiríksson Oddur Garðarsson
Svava Eiríksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Pálmar Vígmundsson
verkstjóri,
Hlaðhömrum 2,
áður Árholti, Mosfellsbæ,
lést 15. nóvember sl.
Útförin fer fram frá Lágafellskirkju
föstudaginn 27. nóvember kl. 13.00.
Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu
aðstandendur viðstaddir athöfnina. Streymt verður frá
útförinni á slóðinni: promynd.is/palmar
Ragnheiður Jónasdóttir
Ingi Ragnar Pálmarsson Guðrún Ólafsdóttir
Vígmundur Pálmarsson Anna Hansdóttir
Sigrún Pálmarsdóttir Þröstur Þorgeirsson
og afabörn.
Ástkær móðir okkar, amma
og langamma,
Margaret Ross Scheving
Thorsteinsson
hjúkrunarfræðingur,
lést á Landspítalanum 13. nóvember.
Útför fer fram frá Lindakirkju
miðvikudaginn 25. nóvember klukkan 11,
að nánustu ættingjum viðstöddum.
Athöfninni verður streymt á netinu á
youtu.be/l-wKMIncp9Y
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Rauða kross Íslands.
Gunnar Bent Scheving Thorsteinsson
Carol Ann Scheving Thorsteinsson
Guðrún M. Scheving Thorsteinsson
Ósk Scheving Thorsteinsson
Þorsteinn Scheving Thorsteinsson
Ástríður Scheving Thorsteinsson Karl Trausti Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
Halldór Þór Grönvold
aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ,
lést á Landspítalanum 18. nóvember.
Útför auglýst síðar.
Greta Baldursdóttir
Eva Halldórsdóttir Björgvin Ingi Ólafsson
Arnar Halldórsson
barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þórir Sigurðsson
frá Geysi í Haukadal,
lést á Hjúkrunarheimilinu Ási í
Hveragerði fimmtudaginn 19. nóvember.
Útförin fer fram frá Skálholtskirkju
fimmtudaginn 26. nóvember klukkan 14, að viðstöddum
nánustu ættingjum. Streymt verður frá athöfninni á
Facebook-síðu Skálholts.
Þórey Jónasdóttir
Sigrún María Þórisdóttir
Jónas Sigþór Þórisson Jessica Daníelsson
Ágústa Þórisdóttir Einar Tryggvason
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ásdís Eyrún Sigurgeirsdóttir
Skipastíg 22, Grindavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð,
laugardaginn 14. nóvember.
Útförin hefur farið fram. Innilegt þakklæti
til starfsfólks Víðihlíðar fyrir góða umönnun.
Einar Björn Bjarnason Sæunn Kristinsdóttir
Guðrún Bjarnadóttir Pétur Gíslason
Þórkatla Bjarnadóttir Lúðvík Gunnarsson
Sigurgeir Þór Bjarnason Kristjana Halldórsdóttir
Sveinbjörn Bjarnason Ingibjörg S. Steindórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Minningarkort á hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Mig er búið að dreyma um þetta frá því ég man eftir mér,“ segir Stígur Berg Sophusson sem á nú farþegaskip til að
sigla á um Ísafjarðardjúp og norður
á Hornstrandir, ásamt unnustu sinni
Hennýju Þrastardóttur. Það gerðist 20.
þessa mánaðar er þau keyptu tvo báta
og bryggjuhús af fyrirtækinu Sjóferðir
Hafsteins og Kiddýjar. Nú heitir fyrir
tækið einfaldlega Sjóferðir ehf. og ætlar
að halda áfram ferðum á Hornstrandir
og um Djúp. Frá þessu er greint á bb.is.
Stígur hefur unnið hjá Hafsteini og
Kiddýju frá árinu 2006, fyrst sem háseti
og svo skipstjóri frá árinu 2010. „Ég byrj
aði bara pínulítill polli að horfa á skip
stjórnarstrákana þegar ég var að fara
með afa mínum, Stíg Stígssyni í Horn
víkina. Hann var fæddur þar og uppal
inn og ég fór mína fyrstu ferð þangað
vestur nokkurra mánaða gamall,“ lýsir
Stígur sem ef laust fer með sín börn á
svæðið, þau eru þrjú, þar af eitt á fyrsta
ári og Henný er í fæðingarorlofi.
Skipin sem Stígur og Henný keyptu
eru Guðrún Kristjáns, nefnt eftir Kiddý
– og Ingólfur, sem nefnt var eftir föður
Hafsteins. „Ég er svo hjátrúarfullur að ég
þori ekki að breyta nöfnum skipanna,“
segir Stígur. „Þetta hafa verið happa
f leytur og það borgar sig ekki að taka
neina sénsa. Það eru svo sterk öf l hér
fyrir vestan.“
Stígur segir áætlunarferðirnar frá Ísa
firði hefjast 1. júní og standa til 31. ágúst.
Auk þess sé hægt að panta sérferðir. „Við
erum rúman klukkutíma í Jökulfirðina
og rúman klukkutíma í Aðalvík en tvo
tíma og kortér í Hornvík. Það eru ekki
bryggjur í friðlandinu svo við förum á
slöngubátum í land ef sjólag leyfir – sem
oftast er.“ gun@frettabladid.is
Hafa verið happafleytur
Stígur Berg Sophusson og Henný Þrastardóttir keyptu nýlega tvö af þremur farþega-
skipum sem Sjóferðir Hafsteins og Kiddýjar á Ísafirði hafa gert út í áætlunarferðir.
Hafsteinn og Kiddý, Stígur og Henný við undirritun kaupsamningsins síðasta föstudag. MYND/AÐSEND
„Drottningin“ Guðrún Kristjáns, nefnd
eftir Kiddý og tekur 48 farþega.
Ég er svo hjátrúarfullur að
ég þori ekki breyta nöfnum
skipanna.
2 4 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R20 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT