Fréttablaðið - 24.11.2020, Blaðsíða 6
REYK JANESBÆR Velferðarnefnd
Reykjanesbæjar synjaði erindi
Öruggs skjóls – félagasamtaka um
fjárhagsstuðning upp á 65,6 millj-
ónir króna vegna starfsmannahalds
sem tengist opnun áfangaheimilis í
bæjarfélaginu. Þetta kemur fram í
nýjustu fundargerð velferðarráðs
Reykjanesbæjar. Þrátt fyrir það er
engan bilbug að finna hjá forráða-
mönnum Öruggs skjóls sem stefna
að því að opna heimilið í næsta
mánuði og verði þá í boði úrræði
fyrir þá sem hafi lokið áfengis- eða
vímuefnameðferð, fyrrverandi
fanga eða þá sem ekki eigi í nein hús
að venda á Suðurnesjunum.
Öruggt skjól var sett á laggirnar
sem minningarsjóður Þorbjörns
Hauks Liljarssonar og segir Guðrún
Hauksdóttir Schmidt, talsmaður
Öruggs skjóls og móðir Þorbjörns
Hauks, að stefnan sé enn að opna
í desembermánuði. „Við fengum
veður af þessum fréttum og erum
að skoða hvort við getum minnkað
umfang styrktarbeiðnarinnar. Þetta
var há upphæð og það er ekkert
útséð um að við getum lækkað hana
að einhverju leyti, til dæmis með því
að fá inn sjálf boðaliða. Þá myndi
launakostnaðurinn minnka þótt
hann yrði að sjálfsögðu einhver,“
segir Guðrún sem verður forstöðu-
maður heimilisins ef þeim tekst að
opna.
Í rökstuðningi Reykjanesbæjar er
hugmyndum Öruggs skjóls hrósað
fyrir metnað og tekið undir mikil-
vægi verkefnisins. Hins vegar hafi
óvissan sem fylgir kórónaveiru-
faraldrinum þau áhrif á fjármál
sveitarfélagsins að nefndin sjái ekki
fram á að geta veitt þennan styrk og
var styrkbeiðninni því hafnað.
Guðrún segir að Öruggt skjól sé
einnig búið að setja sig í samband
við ráðuneyti í von um að hefja
samstarf þegar áfangaheimilið verði
opnað.
„Við erum búin að sækja um
aðstoð heilbrigðisráðuneytisins,
um að við fáum hjúkrunarfólk til
að aðstoða okkar og þau sjái um
launakostnaðinn sem fylgir þeim.
Markmiðið er enn þá að opna í
næsta mánuði. Við gefumst ekki
upp og höldum áfram að vinna að
markmiði okkar að opna áfanga-
heimilið.“ – kpt
Fá launakostnaðinn ekki greiddan
Velferðarnefnd Reykja-
nesbæjar hefur synjað
beiðni Öruggs skjóls um að
fá kostnað við starfsmanna-
hald greiddan úr bæjarsjóði.
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Skemmtilegasta
spurning dagsins ...
HVAÐ ER Í
MATINN?
Skiptastjóri í þrotabúi ACE FBO ehf. auglýsir
eftirfarandi eignir þrotabúsins til sölu:
Matarlyftari (Catering Truck) af gerðinni Mercedes Benz, árg. 1992,
skráningarnr. JV0140.
Afísing (Delcer) af gerðinni Ford, árg. 1991, skráningarnr. DK0666.
Töskufæriband (Belt Loader) af gerðinni Mulag, árg. 1989,
skráningarnr. JV0132.
Matarlyftari (Catering Truck) af gerðinni Mercedes Benz, árg. 1987,
skráningarnr. JV0136.
Salernislosunarbíll (Lavatory Truck) af gerðinni Iveco, árg. 1990,
skráningarnr. JV0130.
Dráttartöggur (Push Back Tug) af gerðinni Goldhofer, árg. 2000,
skráningarnr. IT0031.
Dráttartöggur (Push Back Tug) af gerðinni Goldhofer, árg. 2000,
skráningarnr. IT0030.
Dráttartöggur (Push Back Tug) af gerðinni Goldhofer, árg. 2000,
skráningarnr. IT0029.
Dráttartæki (Baggage Tug) af gerðinni Still, árg. 2003,
skráningarnr. IA0348.
Dráttartæki (Baggage Tug) af gerðinni Linde, árg. 2001,
skráningarnr. IA0349.
Dráttartæki (Baggage Tug) af gerðinni Linde, árg. 2001,
skráningarnr. IA0351
Dráttartæki (Baggage Tug) af gerðinni Linde, árg. 2001,
skráningarnr. IA0350.
Dráttartæki (Baggage Tug) af gerðinni Linde, árg. 2001,
skráningarnr. IA0353.
Ground Power Unit (GPU) af gerðinni Lecmotoren, raðnr. 1541002.
Air Start Unit (ASU) af gerðinni Steward&Stevenson, TMAC 250,
raðnr. A1A0048769.
Tilboð í framangreindar eignir skulu berast á tölvupóstfangið
magnus@landslog.is fyrir föstudaginn 27. nóvember 2020.
Magnús Ingvar Magnússon lögmaður, f.h. Ívars Pálssonar skipta-
stjóra.
HEILBRIGÐISMÁL Rúmlega þrjátíu
einstaklingar leituðu á bráðamót-
töku Landspítalans um liðna helgi
vegna hálkuslysa. Slysin voru flest
minni háttar en Jón Magnús Krist-
jánsson, yfirlæknir bráðalækninga
á spítalanum, segir álagið hafa verið
mikið um helgina. „Þetta eru aðal-
lega beinbrot, skurðir og mar, og svo
höfuðhögg þar sem fólk er að detta
og reka höfuðið í,“ segir hann.
Jón Magnús segir f lest slysin
verða við heimili fólks eða þegar
fólk er að fara inn í og út úr bílum.
„Við hvetjum fólk til þess að salta
eða sanda tröppur við heimili sín
og nota mannbrodda þegar það er
á göngu,“ segir hann. Þá segir hann
fæsta þá sem lenda í hálkuslysum
þurfa á innlögn á spítalann að
halda, fjölgun slíkra slysa auki þó
álag á biðtíma á bráðamóttökunni.
„Núna erum við hins vegar að
sjá það, þegar starfsemi spítalans
er að aukast að nýju, að fjöldi ein-
staklinga sem bíða eftir innlögn fer
vaxandi,“ segir hann. Í gærmorgun
biðu 20 einstaklingar á bráða-
móttökunni þess að leggjast inn á
legudeildir spítalans. „Það er mjög
mikill fjöldi og við höfum ekki séð
slíkan fjölda síðan í upphafi þessa
árs,“ bætir Jón Magnús við.
Í janúar á þessu ári var skipaður
átakshópur á vegum heilbrigðis-
ráðuneytisins og Landspítala
til að finna lausnir á álagsvanda
bráðamóttökunnar og fólust til-
lögur hópsins, sem kynntar voru
í febrúar, einkum í því að auka
heimahjúkrun og að opnuð yrði
líknardeild á Landakoti.
Þá var sett fram stefnumarkandi
ákvörðun af hálfu spítalans um að
þeir sjúklingar á bráðamóttöku sem
þarfnist innlagnar flytjist sem fyrst
á viðeigandi legudeildir, gert verði
ráð fyrir að sjúklingar bíði ekki
innlagnar lengur en í sex klukku-
stundir að hámarki.
Jón Magnús segir fjölda þeirra
sjúklinga sem nú bíði innlagnar
koma til vegna aukins álags vegna
COVID-19 en einnig vegna þess að
ekki sé hægt að útskrifa fjölda sjúkl-
inga sem í raun hafi lokið sjúkra-
húsdvöl sinni, slíkur sé skortur á
hjúkrunarrýmum.
„Á Vífilsstöðum, sem er skil-
greind biðdeild, eru í heildina 50
einstaklingar á bið eftir hjúkrunar-
heimili og því til viðbótar bíða 35
einstaklingar í bráðaleguplássum,“
segir hann. „Ef þessir einstaklingar
hefðu geta komist í rétta þjónustu
þá væru ekki 20 einstaklingar að
bíða hér á bráðamóttökunni,“ bætir
Jón Magnús við.
„Þessir einstaklingar fá þjónustu
á bráðamóttökunni en hún er bæði
verri og dýrari en ef hún væri veitt
á réttum stað. Við auðvitað reynum
okkar besta en við getum ekki veitt
einstaklingi sem þarf á legudeildar-
þjónustu að halda þá þjónustu sem
hann þarf á bráðamóttökunni,“
segir hann. birnadrofn@frettabladid.is
Álagið jókst töluvert
vegna slysa í hálkunni
Um síðastliðna helgi leituðu um það bil 30 einstaklingar á bráðamóttöku
Landspítalans vegna slysa sem áttu rót sína að rekja til hálku. Yfirlæknir
bráðalækninga segir álagið hafa verið mikið á spítalanum síðustu dagana.
Þó nokkur fjöldi fólks leitaði á Landspítalann um síðastliðna helgi vegna hálkuslysa. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Við hvetjum fólk til
þess að salta eða
sanda tröppur við heimili
sín og nota mannbrodda
þegar það er á
göngu.
Jón Magnús Krist-
jánsson, yfirlæknir
bráðalækninga á
Landspítalanum
2 4 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð