Fréttablaðið - 24.11.2020, Blaðsíða 58
Ég vil
að frá
jólaborð
inu mínu
stafi hlýja,
vinsemd
og kær
leikur.
Bjarni Viðar
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@
frettabladid.is
„Jólaóskin mín er gott, nýtt ár fyrir
okkur öll. Fyrir jólin í fyrra birtist
mér sýn þar sem hvít slikja lagðist
yfir heimsbyggðina og allt flug og
erill lagðist af. Ég skildi það ekki þá,
en ég gerði það fáeinum mánuðum
síðar,“ segir Bjarni Viðar Sigurðs-
son keramíker. Hann fær einatt
fyrirboða um það sem koma skal.
„Ég er algjört jólabarn, geri
árvisst eigin aðventukransa í eld-
húsið og stofuna, og legg mikið
upp úr jólakrásunum. Allur
aðfangadagur er undirlagður í
undirbúning frá því snemma
morguns. Í forrétt er hvítur aspas,
ef hann fæst, eða perusalat með
klettasalati, steiktum perum,
geitaosti og ristuðum furuhnetum,
og í aðalrétt borðum við danska
villiönd með heimalöguðu rauð-
káli, brúnuðum kartöflum, wal-
dorfsalati og sósu sem ég læt sjóða
upp tvisvar yfir daginn,“ upplýsir
Bjarni.
Eftirrétturinn er heimanmund-
ur frá æskujólunum og foreldrum
Bjarna.
„Við erum vön að gæða okkur á
marsipan-núggat ístertu á meðan
við opnum jólapakkana. Ég fór
sjálfur að laga tertuna í Danmörku
fyrir rúmum tuttugu árum og hef
gert hana æ síðan. Hún er algjört
lostæti, uppáhaldið mitt og nú er
ég orðinn svo vanur að ég geri tvær
í einu, eina fyrir okkur og eina fyrir
pabba og mömmu.”
Kærleikur, vinsemd og hlýja
Bjarni er einn af okkar dáðustu
leirlistamönnum og leggur mikið
upp úr fallegum borðbúnaði.
„Ég vil að frá jólaborðinu stafi
hlýja, vinsemd og kærleikur. Því
skiptir máli hvað er lagt á borð
og hvernig það virkar, en ég er
hallur undir danska jólasiði þegar
kemur að veitingum, borðsiðum
og skrauti,“ segir Bjarni og leggur
á borð undurfagurt keramíkstell
sem hann sjálfur skapaði.
„Ég vinn borðbúnað í miklum
tengslum við náttúruna, í jarð-
bundnum litum, sem og sterkum
og miklum glerungum. Mér finnst
yndislegt að njóta borðhaldsins
með stellinu mínu og náttúru-
legu skrauti jólanna. Mér finnst
líka gaman að leggja mismunandi
diska á borð því ég á aldrei sömu
diskana á milli ára þar sem gestirn-
ir mínir enda yfirleitt á að kaupa
diskana sem þeir borða af. Ég þarf
því sjálfur að velja mér borð-
búnað áður en jólamarkaðurinn
er haldinn, eða, eins og ég hef líka
gert, að gera mína eigin diska fyrir
jólin, en diskarnir eru það sem ég
held mest upp á.“
Hin eina sanna jólarós
Auður Árnadóttir lagði undurfög-
ur blóm á jólaborðið hans Bjarna.
Hún lærði blómaskreytingar í
Danmörku og á Auði Blómabúð &
blómaverkstæði á Garðatorgi, sem
nú er líka komin með blómasjálf-
sala þar sem hægt er að nálgast
fallegar blómaskreytingar allan
sólarhringinn.
„Ég valdi afskorna Helleborus-
jólarós sem ég setti í litla vasa og
einnig sem pottaplöntu þar sem ég
vafði mosa utan um rætur hennar.
Líka handgerðar kúlur úr mosa
og Corokia-silfurtré, sem minnir
á Bonsai-tré,“ segir Auður, sem
vinnur mikið með náttúrulegan
efnivið og á sinn eigin stíl. Hún
segir fallegt að blanda Amaryllis,
hýasintum, túlípönum, greinum,
Jólaóskin um þessi jól er gott
nýtt ár fyrir mannkynið allt
Vinirnir Bjarni
Viðar Sigurðs-
son keramíker
og Auður Árna-
dóttir blóma-
skreytir. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/ERNIR
Auður skreytti borðið hans Bjarna með könglum, mosa og Helleborus-jóla-
rós, sem hún segir vera hina einu sönnu jólarós, fulla dulúðar og sjarma.
Hver hlutur er valinn af gaumgæfni
og sönnu listfengi Bjarna og Auðar.Freistandi marsípan-, núggat- og marengsterta Bjarna.
Bjarni Viðar Sigurðsson kera
mík er býr svo vel að geta lagt sitt
eigið sköpunarverk á jólaborðið
og stundum leirar hann glænýtt
stell undir dýrindis jólamatinn.
Hann lagar líka marsípan, mar
engs og núggatís sem er heiman
mundur frá æskujólunum.
könglum og sígrænu efni við hefð-
bundin jólablóm.
„Það er mikið um að fólk skreyti
heimili sín með lifandi blómum og
kertum í stíl, enda fátt betra fyrir
hug og hjarta á aðventunni,“ segir
Auður sem ólst upp við blómahaf
á jólum.
„Móðir mín útbjó alltaf hýa-
sintu skreytingu og blómaskreyt-
ingu á tréplatta fyrir jólin og ég
horfði hugfangin á. Túlípana sá ég
líka stundum í vösum.“
Eftirlætis hátíðarblóm Auðar er
Helleborus sem er sígræn, fjölær
jurt. „Það er hin eina sanna jólarós.
Það er svo mikil dulúð og sjarmi
yfir henni.“
Í jólaskapi á jólamarkaði
Jólin hjá Bjarna byrja með árlegum
jólamarkaði sem hann heldur á
vinnustofu sinni að Hrauntungu
20 í Hafnarfirði dagana 3. til 6.
desember, frá klukkan 10 til 18.
„Fjölmargir sem leggja leið
sína á markaðinn eru að safna
sér diskum, bollum, glösum og
skálum. Fólk notar líka tækifærið
til að kaupa stærri verk og svo er
þetta frábært tækifæri til að hitta
fólk, gefa af sér, njóta og fá tilfinn-
ingu fyrir jólunum. Passað verður
upp á sóttvarnir og ef einhverjir
vilja koma á öðrum tíma má
alltaf hafa samband við mig,“ segir
Bjarni í jólaskapi.
Marsípan, núggat og
marengsísterta Bjarna
Marengsbotnar
4 eggjahvítur
150 g sykur
Marsípanís
4 eggjarauður
4 msk. sykur
1 vanillustöng
100 g marsípan
1/2 l rjómi
75 g hakkaðar möndlur
50 g suðusúkkulaði
Núggatís
100 g mjúkt núggat
2 eggjarauður
1 msk. sykur
3 dl rjómi
Marengsbotnar
Stífþeytið eggjahvíturnar. Þeytið
1/3 af sykrinum með eggjahvítun-
um en hrærið afganginum saman
við með sleif. Teiknið tvo hringi á
bökunarpappír með hringformi
og skiptið deiginu í tvennt á þá.
Bakið í 60 mínútur við 125 °C og
látið standa í ofninum á meðan
botnarnir kólna.
Marsípanís
Þeytið saman eggjarauður, sykur,
vanillukorn og rifið marsípan.
Þeytið rjóma. Blandið rjómanum
í eggjablönduna. Frystið í einn til
tvo tíma og blandið þá hnetum og
súkkulaði saman við ísinn til að
allt blandist sem best saman.
Núggatís
Bræðið núggat í vatnsbaði. Þeytið
eggjarauður og sykur saman. Þeyt-
ið rjóma. Kælið núggatið og þeytið
saman við eggjablönduna. Hrærið
saman við rjómann með sleif og
gætið þess að halda lyftingunni í
rjómanum. Setjið ísinn í frysti.
Samsetning
Setjið marengsbotn í botn á
springformi og helming af mar-
sípanísnum yfir. Frystið í klukku-
stund. Takið ísinn úr frystinum,
setjið lag af núggatís yfir og frystið
í klukkustund. Setjið síðasta lagið
af ísnum í formið, leggið marengs-
botn yfir og frystið í minnst fjóra
tíma. Þá er ísinn tilbúinn. Takið úr
frysti 20 til 30 mínútum áður en
tertan er borin fram.
24. nóvember 2020 JÓL 2020 36 FRÉTTABLAÐIÐ