Fréttablaðið - 24.11.2020, Blaðsíða 98
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@
frettabladid.is
Védís Kara Reykdal Ólafsdóttir
stofnaði Facebook-hópinn Jóla-
kraftaverk árið 2014 til að hjálpa
fólki sem er í vandræðum með að
gefa börnum undir 18 ára aldri
jólagjafir. Í dag fer starfsemin fram
undir stjórn stjórnenda hópsins,
þeirra Öldu, Hafrúnar, Hólm-
fríðar og Elsu. Jólin eru mörgum
mjög erfiður tími og því miður eru
margar fjölskyldur á Íslandi sem
hafa ekki fjármagn til að gera eins
vel við sína nánustu og þau langar.
„Hópurinn þjónar í rauninni
eins og milliliður og tengir saman
fólk sem þarf hjálp og fólk sem vill
hjálpa. Fólk sem veit að það mun
eiga erfitt um jólin leitar til hans og
það er auglýst eftir fólki sem hefur
áhuga á að hjálpa,“ segir Védís. „Í
ár var settur af stað spurninga-
listi mjög snemma til að athuga
hverjir væru til í að hjálpa og það
var mikill fjöldi fólks sem ætlaði
að gera það. Það er magnað að sjá
hversu margir vilja leggja fram
hjálparhönd.
Þeir sem sjá fram á að eiga erfitt
geta sent skilaboð á stelpurnar í
stjórninni og sagt hvernig gjöfum
er óskað eftir. Við höfum reyndar
lítið verið í matargjöfum, það eru
aðrir sem sinna því,“ segir Védís.
„Svo er auglýst eftir ákveðinni
gerð af gjöf í hópnum og þá getur
einhver tekið að sér að gefa hana,
annaðhvort með beinu sambandi
við þann sem bað um hjálp eða í
gegnum stelpurnar. Það er samt
aldrei nein pressa á neinn eða
skylda að gera neitt.
Við vitum að það eru fjölskyldur
um allt land sem þurfa hjálp um
jólin og ég vissi að þetta yrði erfitt
ár út af COVID og það hefur sýnt
sig, það hafa margar beiðnir um
hjálp komið snemma og núna
erum við að auglýsa eftir jólaálfum
Andvökuhugmynd sem vatt upp á sig
Védís Kara
Reykdal Ólafs-
dóttir stofnaði
Facebook-hóp-
inn Jólakrafta-
verk árið 2014
og ætlaði fyrst
bara að hjálpa
með jólakjóla,
en hugmyndin
fór á flug og
vatt upp á sig.
Margir vildu
hjálpa og marga
vantaði aðstoð
og eitt árið voru
afgreiddar yfir
1.000 gjafir.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SGTRYGGUR ARI
Védís Kara Reykdal Ólafsdóttir
stofnaði hóp sem heitir Jóla-
kraftaverk á Facebook. Hópur-
inn gerir fólki sem þarf aðstoð
við að kaupa jólagjafir fyrir börn
og þeim sem vilja hjálpa þeim
kleift að ná saman.
sem geta hjálpað,“ segir Védís. „Ég
hef heyrt það frá fólki sem tekur
þátt, til dæmis einni sem tók þátt
í þrjú ár, að það gefi þeim mjög
mikið að geta hjálpað einhverjum.“
Leiddist í fæðingarorlofi
Védís segir að hugmyndin á bak
við þetta hafi fæðst á andvökunótt
um jólin 2014.
„Þetta voru fyrstu jólin hjá næst-
yngstu stelpunni minni og hún var
búin að sofa mjög illa. Fyrst ætlaði
ég bara að hjálpa með jólakjóla,
ekkert meira, en svo vatt þetta
svona svakalega upp á sig eftir að
þessi hópur fór eins og eldur í sinu
um allt Facebook,“ segir Védís. „Ég
saumaði nokkra kjóla og fékk svo
hjálp við aðrar gjafir. Ég týndist í
þessu á þessum tíma, ég var búin
að klára allan minn jólaundirbún-
ing og var að finna leiðir til að láta
mér ekki leiðast. Maðurinn minn
var að vinna 12 tíma vaktir og ég
var í fæðingarorlofi.
Ég kunni enga fatahönnun né að
sauma kjóla, þetta kom bara með
æfingunni. Það er kannski skrítið
að taka upp á því að sauma kjóla,
en ég er puttaóð og þarf að gera
eitthvað með höndunum og þetta
var leið til þess,“ segir Védís. „Svo
stigmagnaðist þetta út í það sem
þetta er í dag.“
Védís segist aldrei hafa þurft að
leitast eftir að fá fólk til að taka
þátt í starfinu.
„Þetta varð mjög stór hópur
mjög fljótt og við erum enn að fá
beiðnir um inngöngu. Ég veit ekki
hvort það er fólk sem er að leita
eftir hjálp, vilja hjálpa eða eru
bara að fylgjast með. Við hleypum
öllum inn. Núna eru meðlimirnir
yfir sex þúsund og við erum fimm
í stjórninni,“ segir Védís. „Umfang
verkefnisins er breytilegt á milli
ára en þetta er sífellt að stækka og
eitt árið voru afgreiddar yfir 1.000
gjafir.“
Einn gaf 30 þúsund
alveg nafnlaust
Védís segir að það sé ein minning
úr starfinu sem standi sérstaklega
upp úr.
„Ég held að það hafi verið á
þriðja árinu sem ég fékk símtal frá
einhverjum manni sem vildi gefa
peninga til fjölskyldu í neyð algjör-
lega nafnlaust,“ segir hún. „Þetta
situr smá í mér, en ég held að hann
hafi gefið þremur fjölskyldum 10
þúsund krónur og náði einhvern
veginn að gera millifærsluna í
bankanum alveg nafnlausa, sem ég
vissi ekki að væri hægt.
Ef þú vilt leggja fram hjálpar-
hönd ræðurðu alveg hversu mikið
þú gefur og hversu mikið þú
treystir, þetta er bara spurning
um hvort þú vilt hjálpa eða ekki,“
segir Védís. „Auðvitað er alltaf
hætta á skemmdum eplum sem
reyna að misnota svona starf-
semi, en það hafa komið upp mjög
fá tilfelli þess á þeim langa tíma
sem við höfum staðið fyrir þessu,
að minnsta kosti sem við höfum
orðið varar við.
Sumir kjósa að leggja frekar inn
fyrir gjöfum og þá sendum við
alltaf kvittanir til að sýna að við
setjum ekki krónu í eigin vasa,“
segir Védís. „Við höfum líka fengið
hjálp frá fyrirtækjum og tökum
bara allri aðstoð opnum örmum.“
Við vitum að það
eru fjölskyldur um
allt land sem þurfa hjálp
um jólin og ég vissi að
þetta yrði erfitt ár út af
COVID og það hefur sýnt
sig, það hafa margar
beiðnir um hjálp komið
snemma og núna erum
við að auglýsa eftir
jólaálfum sem geta
hjálpað.
Védís Kara Reykdal Ólafsdóttir
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Eldhúsinnréttingar
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
24. nóvember 2020 JÓL 2020 76 FRÉTTABLAÐIÐ