Fréttablaðið - 24.11.2020, Blaðsíða 8
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | WWW.VR.IS
VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum eða orlofs-
íbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsmenn sína.
Við leitum að húsnæði á landsbyggðinni fyrir
næsta sumar.
Áhugasöm sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 15. desember 2020.
Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir og lýsing á umhverfi fylgi með.
Öllum tilboðum verður svarað.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði:
– Lýsing á eign og því sem henni fylgir
– Ástand eignar og staðsetning
– Stærð, öldi svefnplássa og byggingarár
– Lýsing á möguleikum til útivistar og
afþreyingar í næsta nágrenni
SAMFÉLAG Hagstofa Íslands hefur
birt upplýsingar um hlutfallslegt
misræmi menntunar þeirra sem eru
starfandi, samanborið annars vegar
við atvinnulausa og hins vegar þá
sem standa utan vinnumarkaðar.
Mælingin segir til um hversu hátt
hlutfall atvinnulausra eða þeirra
sem eru utan vinnumarkaðar þarf
að auka við menntun sína til þess
að dreifing menntunar sé sam-
bærileg við þá sem eru starfandi.
Þannig sést hvort aukin menntun
þeirra sem eru utan vinnumark-
aðar eða atvinnulausir myndi auka
samkeppnishæfni þeirra á vinnu-
markaði.
„Þessi mæling er fyrsti fasi í
stærra verkefni Hagstofunnar
sem hefur það að markmiði að
gera og þróa færnispá til að kort-
leggja tengsl milli vinnumarkaðar
og menntakerfis. Slík spá veitir
innsýn í þróun framboðs og eftir-
spurnar á færni á vinnumarkaði og
stuðlar að því að hægt sé að meta
ójafnvægi á vinnumarkaði og mis-
ræmi á menntunarstigi miðað við
starf,“ segir Ragnhildur Guðrún
Finnbjörnsdóttir, sérfræðingur hjá
Hagstofunni.
Þeir sem hvorki fullnægja skil-
yrðum til þess að teljast starfandi
né eru atvinnulausir standa utan
vinnumarkaðar. Misræmi mennt-
unar á milli starfandi og þeirra sem
standa utan vinnumarkaðar náði
lágmarki á öðrum ársfjórðungi
2008 (15,6%) en fór hækkandi fram
til ársloka 2019 (27,9%). Þetta bendir
til þess að samsetning menntunar
hafi breyst milli starfandi og þeirra
sem standa utan vinnumarkaðar.
Hlutfall þeirra sem standa utan
vinnumarkaðar á aldrinum 25-64
ára og hafa grunnmenntun lækkaði
úr 51,2% á fyrsta ársfjórðungi 2003
í 38,9% á þriðja ársfjórðungs 2020.
Þá minnkaði hlutfall einstaklinga
með framhaldsmenntun úr 39,2% í
31,3% á sama tímabili.
Á sama tímabili jókst hlutfall ein-
staklinga sem standa utan vinnu-
markaðar og eru með háskóla-
menntun úr 9,6% í 29,8%. „Þessar
tölur geta gefið ríkisstjórninni og
stefnumótandi aðilum í mennta-,
vinnumarkaðs- og atvinnumálum
vísbendingu um hvað gera þurfi til
að auka samkeppnishæfni atvinnu-
lausra og þeirra sem standa utan
vinnumarkaðar.
Það er hlutverk Hagstofunnar að
miðla tölfræðilegum upplýsingum
á borð við hlutfallslegt misræmi
menntunar til að stuðla að upplýstri
umræðu og lýðræðislegum ákvörð-
unum en svo er það fyrrgreindra
aðila að taka boltann og bregðast
við í samræmi við þær upplýsingar,“
segir hún um niðurstöðu mæling-
anna um misræmi menntunar milli
starfandi og þeirra sem standa utan
vinnumarkaðar.
„Gögnin sýna enn fremur að mis-
ræmi menntunar atvinnulausra og
þeirra sem eru starfandi minnkaði
eftir bankahrunið árið 2008. Það
gefur mögulega vísbendingar um að
f leiri með framhaldsmenntun og/
eða háskólamenntun voru í virkri
atvinnuleit á þeim tímapunkti en
samanborið við tímabilið fyrir
hrun,“ segir Ragnhildur enn fremur
um niðurstöður mælinganna.
hjorvaro@frettabladid.is
Vantar hvata
til menntunar
Mælingar Hagstofunnar benda til að auka þurfi
hvata þeirra sem standa utan vinnumarkaðarins
til að auka samkeppnishæfni með meiri menntun.
Hagstofan kannar tengsl vinnumarkaðar og menntunar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þessi mæling er
fyrsti fasi í stærra
verkefni Hagstofunnar sem
hefur það að markmiði að
þróa færnispá til að kort-
leggja tengsl milli vinnu-
markaðar og menntakerfis.
Ragnhildur G. Finnbjörnsdóttir
sérfræðingur hjá Hagstofu Íslands
Landsbankinn hf. býður til sölu, í heild eða að hluta, allt að 12,1% eign-
arhlut í Stoðum hf.
Stoðir hf. er fjárfestingarfélag í meirihlutaeigu einkafjárfesta.
Söluferlið fer fram í samræmi við stefnu Landsbankans um sölu eigna
og er öllum opið sem uppfylla skilyrði um að teljast hæfir fjárfestar.
Áhugasamir fjárfestar geta haft samband við Fyrirtækjaráðgjöf Lands-
bankans með því að senda tölvupóst á netfangið soluferli@landsbank-
inn.is. Þá má nálgast trúnaðaryfirlýsingu, eyðublað vegna hæfismats og
tilboðsskilmála á vef bankans, www.landsbankinn.is.
Fjárfestar sem undirritað hafa trúnaðaryfirlýsingu og uppfylla hæfis-
skilyrði fyrir þátttöku í söluferlinu fá afhent kynningargögn um Stoðir
hf. og gera tilboð á grundvelli þeirra. Eingöngu verður tekið við til-
boðum á sérstöku tilboðsformi og samkvæmt þeim skilmálum sem þar
koma fram. Tilboðsformið má nálgast hjá umsjónaraðila söluferlisins,
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans.
Tilboðsfrestur er til kl. 17.00, þriðjudaginn 8. desember 2020.
Opið söluferli á eignarhlut
Landsbankans í Stoðum
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
2 4 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð