Fréttablaðið - 24.11.2020, Page 70
Elín
Albertsdóttir
elin
@frettabladid.is
Davíð segir að fólk borði oft
yfir sig af þungum jólamat með
kartöflum, sósu og öðru meðlæti.
„Afgangarnir þurfa ekki að vera
það líka,“ segir hann. „Fólk á oft
og tíðum eitthvað eftir af ham-
borgarhrygg og ananas þannig að
ég ákvað að hafa hann með sem
gefur góða ávaxtasætu í réttinn.
Það getur verið svolítið misjafnt
hversu mikið hryggurinn er
saltaður og því þykir mér gott að
nota svolítið af sýru á móti til að
stilla saltið af. Dressingin er súr
en fær kjallarabragð frá sojanu.
Kimchi er náttúrlega gerjað kál og
er einnig súrt í sjálfu sér en gefur
gott umami-bragð og smá sterkt
bragð,“ segir hann um jólasalatið
sem hann gefur hér uppskrift að.
„Þetta er hinn fullkomni réttur til
að geta sest niður við jólaborðið og
nýtt það sem er til í ísskápnum án
þess að fá velgju,“ segir hann.
Davíð er veitingastjóri og yfir-
matreiðslumaður á Hótel Húsa-
felli. Þar hefur hann starfað síðan
í nóvember á síðasta ári. Einnig er
Ekki-jólahamborgarhryggur
Ótrúlega girnilegt salat með hamborgarhrygg og ananas sem meistara-
kokkurinn Davíð býður upp á.
Davíð Örn Hákonarson mat-
reiðslumaður segir að það sé ein-
falt að klæða jólamatinn í léttari
búning þegar allir hafa fengið
nóg af þungum mat. Hann hefur
stýrt sjónvarpsþáttum þar sem
hann gerir allt úr engu. Hér notar
hann afganga af hamborgar-
hrygg til að gera einkar girnilegt
salat sem væri spennandi að
prófa yfir hátíðarnar.
hann þáttastjórnandi og höfundur
þáttanna Allt úr engu, sem voru
sýndir á Stöð 2 í haust og hægt er
að nálgast á Stöð 2 Maraþon. „Þar
er ég að leika mér með að nýta það
sem fólk á í ísskápnum hjá sér og
gefa því nýtt líf,“ segir hann.
En er hann duglegur að nýta
afganga?
„Það eru eiginlega aldrei
afgangar hjá mér nema ég geri það
viljandi að búa til of mikið. Ef það
er eitthvað eftir klára ég það yfir-
leitt fyrir miðnætti af einhverjum
ástæðum. Ef ég geng fram hjá boxi
með afgöngum hika ég ekki við að
stinga upp í mig einni eða tveimur
skeiðum og held svo áfram að
gera það sem ég var að gera. Svona
gengur þetta yfir kvöldið þangað
til allt er búið. Hins vegar er alltaf
mikið til af grænmeti sem er að
eyðileggjast í ísskápnum hjá mér
þar sem vinnutíminn gefur mér
kannski ekki færi á að elda á hverju
kvöldi. Ég á það því til að elda það,
varðveita, frysta eða hvað það sem
mér dettur í hug til að gefa því nýtt
og lengra líf.
Þegar Davíð er spurður um
uppáhaldsjólamat, svarar hann:
„Fjölskylda mín hefur borðað
kalkún með fyllingu, sósu og
waldorfsalati á jólunum síðan
ég fæddist og við höfum ekkert
ætlað okkur að hætta því. Ég held
þess vegna að kalkúnninn sé mitt
uppáhalds en mér finnst samt líka
eitthvað kósí við það að borða
hangikjöt með uppstúf, rauðrófu-
salati, laufabrauði og rauðkáli
og grænum baunum frá Ora. Það
verður að vera Ora. Annars eru
ekki jól.“
Grænt salat með
hamborgarhrygg,
sesam og ananas
fyrir um það bil fjóra
Undirbúningstími 15–20 mínútur.
Salatdressingin
Gott að gera daginn áður en virkar
líka að neyta samdægurs)
1 msk. fínt saxað engifer
1/4 hvítlauksgeiri – rifinn fínt eða
pressaður
1/4 eldpipar – fínt saxað (er einnig
hægt að sleppa þar sem það er
eldpipar í kimchi)
2 stk. wasabi paste (má sleppa ef
fólk fílar ekki wasabi er samt klár-
lega betra með)
1 stk. lime – safi og fínt rifinn
börkur
2 msk. sojasósa – kikkoman helst
2 tsk. ristuð sesamolía eða önnur
olía sem hendi er næst
6 msk. ólífuolía
2 tsk. hunang
Topparnir af vorlauknum sem
verður notaður í salatið hér á eftir.
Setja allt saman í skál og hræra
þangað til hunangið og wasabi er
búið að leysast upp í vökvanum.
Geyma til hliðar á meðan maður
græjar restina af salatinu.
Marinerað kínakál
Gott að gera daginn áður en er
ekki nauðsynlegt.
1/2 stk. íslenskt kínakál – skorið
þvert í 1/2 strimla
2 msk. íslenskt kimchi
10–12 stangir kóríander – saxað
gróft
1/4 tsk. fínt salt
Allt blandað vel saman og leyft að
marinerast á meðan maður græjar
restina af salatinu.
1/2 ferskur ananas – eða það
sem er til afgangs frá ham-
borgarhryggnum, skorinn í þunna
strimla eða sneiðar.
1/2 íslensk agúrka, skorin í helm-
inga, svo þvert. Eða í það form
sem þig dreymir um á nóttunni.
4–5 stangir vorlaukur – saxaður
þvert í þunnar skífur
1/2 poki íslenskt og lífrænt spínat
1/2 poki grænkál – rifið af stöngl-
inum í minni stykki og lagt í vatn
í 10–15 mínútur til að gera það
stökkara
Það sem til er af afgöngunum af
hamborgarhryggnum sem svo
er skorinn í þunnar sneiðar eða
strimla
Svört sesamfræ eftir smekk.
Setjið allt saman í stóra plast-
skál og blandið vel saman. Borið
fram í fallegri skál beint á borðið
eða í skálum fyrir hvern og einn.
Skreytið hamborgarhrygginn með
kóríander og ananas og sáldrið
smá sesam yfir.
Munið að það er alltaf skemmti-
legra að borða fallegan mat en þó
mikilvægara að hann bragðist vel,
þannig að smakkið salatið áður en
þið berið herlegheitin fram.
Einnig mæli ég með að borða
þetta á fallegu jólaborði.
Ps. Ég hef heyrt að þetta sé fárán-
lega gott daginn eftir líka. Afgang-
ur á afgang ofan.
Davíð Örn bauð
voffa að setjast
til borðs með
sér. Ekki fór
sögum af því
hvort hann fékk
sér salat. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/VALLI
Syndsamlega góð kaka
með engri fyrirhöfn!
24. nóvember 2020 JÓL 2020 48 FRÉTTABLAÐIÐ