Fréttablaðið - 24.11.2020, Blaðsíða 82
Elín
Albertsdóttir
elin
@frettabladid.is María segist vera alin upp á kristi-
legu heimili. „Ég undirbý og fagna
komu Frelsarans, hátíð ljóssins á
ýmsan hátt. Skreyti heimilið mitt
og sumarbústaðinn,“ segir hún og
bætir við að hún leggi mikla áherslu
á að skreytingarnar séu vel gerðar
og fallegar. „Ég geri jólainnkaupin
tímanlega og vel að njóta frekar
aðventunnar og komu jólanna í
rólegheitum. Mér finnst gaman að
fara á jólatónleika, nýt þess að baka,
elda góðan mat og nýt félagsskapar
minna nánustu,“ segir hún. „Þar sem
ég er alin upp á kristnu heimili var
okkur systkinunum kennt um gildi
jólanna.“
María segist hafa fengið áhuga á
jólaskreytingum frá móður sinni.
„Mamma hafði ljós í öllum gluggum.
Síðan var jólatréð skreytt á Þorláks-
messu og var aldrei kveikt á því fyrr
en klukkan sex á aðfangadag um
leið og kirkjuklukkurnar hringdu
Jólafegurð
í sveitinni
Glæsileg
stofan í sumar-
bústaðnum
hjá Maríu og
Tryggva. Arinn-
inn gerir þetta
enn meira kósí.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
María Marta
stendur hér
fyrir framan
sælureitinn í
sveitinni sem
hún hefur
skreytt hátt og
lágt. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/VALLI
Trén bera falleg ljós og sömuleiðis potturinn. Það er
notalegt að vera í svona umhverfi á vetrarkvöldum.
Meira að segja sauna-klefinn er skreyttur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLIMaría leggur líka áherslu á að hafa fallegt borðskraut,
hvort sem það er heima eða í bústaðnum.
María er mikill fagurkeri eins og sjá má á handverki
hennar. Hún skreytir gjarnan með greni úr náttúrunni.
Gestahúsið fær einnig að njóta sín í jólaljósum.
Aðventukrans
sem er skreytt-
ur af Elísu í 4
árstíðum sem
heillaði Maríu
og skreytir nú
bústaðinn.
MYND/AÐSEND
María Marta Sigurðardóttir er
mikið jólabarn og segir að jóla-
hátíðin sé mikilvægur tími lífs
síns á hverju ári. Hún skreytir
ekki einungis heimili sitt heldur
einnig fallegan sumarbústað.
inn jólin. Það veitir mér mikla gleði
að hafa fallegt og hreint í kringum
mig. Ég hef það kannski svolítið
í mér og hef lært að búa til ýmsar
skreytingar, hvort sem það eru jóla-,
haust- eða sumarskreytingar. Ég
notfæri mér náttúruna í kringum
bústaðinn og tíni þar ýmislegt sem
nýtist í skreytingarnar,“ segir hún.
Fallegi bústaðurinn hennar
Maríu er ekki langt frá borginni.
Hún og eiginmaður hennar, Ásgeir
Markús Jónsson, sem nú er látinn,
keyptu bústaðinn árið 2008 af
dönsku fyrirtæki, EBK, en hann kom
í tveimur gámum. Tveir danskir
smiðir settu hann upp fullbúinn á
fjórum vikum. „Fjölskyldan notar
bústaðinn árið um kring enda stutt
að fara. Á aðventunni höfum við
alltaf átt saman dag í bústaðnum,
borðum hangikjöt með tilheyrandi
meðlæti. Stundum bökum við
piparkökur, spilum og hlustum á
jólatónlist. Svo er farið í góða göngu-
túra um nágrennið,“ segir María,
sem á þrjú börn, tvö tengdabörn og
eitt barnabarn. Öll hafa þau ánægju
af sælureitnum, eins og hún kallar
bústaðinn.
María segist hafa orðið þeirrar
gæfu aðnjótandi að kynnast góðum
manni, Tryggva Þorsteinssyni,
sem hafði farið í gegnum sömu
lífsreynslu og hún, að missa maka.
„Tryggvi á dóttur, tengdason og
barnabarn en saman skapa fjöl-
skyldur okkar áframhaldandi minn-
ingar og samveru. Við sóttum ein-
mitt barnabörnin, litlu stelpurnar
okkar, í leikskólann um daginn
og fórum í bústaðinn, drukkum
heitt súkkulaði, borðuðum vöfflur,
spiluðum og tókum myndir af þeim
með nýju jólasveinahúfurnar sem
ég prjónaði. Lífið er dásamlegt. Guð
gefi Íslendingum gleðiríka aðventu
og jólahátíð,“ segir María, en
myndirnar lýsa best jólafegurðinni
í sveitinni hennar.
24. nóvember 2020 JÓL 2020 60 FRÉTTABLAÐIÐ