Fréttablaðið - 24.11.2020, Side 10

Fréttablaðið - 24.11.2020, Side 10
COVID-19 Bóluefni Oxford-háskóla og lyfjafyrirtækisins AstraZeneca, er með frá 70 til 90 prósenta virkni gegn kórónaveirunni. Þetta kemur fram í bráðabirgðaniðurstöðum úr þriðja fasa lyfjaþróunarinnar. Tveggja skammta bólusetning sýndi 70,4 prósenta virkni. Minni skammtur virkaði í 90 prósentum tilvika en þá fengu þátttakendur í rannsókninni hálfan skammt og svo heilan skammt mánuði síðar. Ísland tekur þátt fjármögnun rannsóknarinnar við Oxford með styrk til CEPI, samtaka Bill Gates, sem f jármagna rannsóknir og þróun bóluefna um allan heim. Með því hafa Íslendingar tryggt sér aðgang að þessu bóluefni. Ísland mun fá skammta fyrir 114 þúsund einstaklinga. Bóluefnið sem Pfizer hefur þróað virkar í 95 prósentum tilfella. Íslandi hefur einnig verið tryggður aðgangur að því bóluefni í gegnum Evrópusambandið. – ab Bóluefni Oxford með 90 prósenta virkni Talið er að Joe Biden hafi valið sér utanríkisráðherra Bandarískir fjölmiðlar fullyrða að Joe Biden muni tilnefna Anthony J. Blinken sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Þessi 58 ára lögfræðingur hefur unnið náið með Biden í gegnum tíðina. Blinken fær það verkefni að koma þíðu í samskipti við bandamenn þjóðarinnar og alþjóðastofnanir sem hafa verið stirð. SAMGÖNGUR Víðir Reynis son yfir- lög reglu þjónn segir yfir völd vera undir það búin að Ís lendingar komi heim í aðdraganda jólanna og að fjöldi farþega á Keflavíkurflugvelli muni aukast í kringum jólin. Gerðar hafi verið sér stakar á ætlanir og tvö sótt varna hús reiðu búin. Víðir bendir á að 18. desember sé síðasti dagurinn fyrir komu til Íslands ætli fólk að losna við að vera í sóttkví um hátíðarnar. Þetta sagði Víðir á blaðamannafundi almanna- varna í gær. Icelandair greindi frá því í til- kynningu sem fyrirtækið sendi frá sér að stefnt væri að því að fjölga áfangastöðum og f lugferðum yfir hátíðarnar. Jólaáætlun Icelandair er komin í sölu en áætlað er að fljúga til og frá ellefu áfangastöðum yfir jól og ára- mót. Flogið verður til og frá Kaup- mannahöfn, Osló, Stokkhólmi, Amsterdam, London, París, Frank- furt og Berlín. Þá verða Boston, New York og Seattle áfangastaðirnir í flugi til og frá Norður-Ameríku. – hó Áætlanir hafa verið gerðar um aukna umferð BANDARÍKIN Joe Biden mun tilnefna lögfræðinginn Antony Blinken sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna að sögn bandarískra fjölmiðla. Blinken, sem er 58 ára, kemur frá New York en hann hefur unnið fyrir Biden áður. Biden og Blinken hafa starfað saman í um það bil tvo áratugi. Blinken, sem hefur fréttaskýrandi hjá CNN síðustu árin með áherslu á alþjóðamál, var aðstoðarutanríkis- ráðherra í stjórn Baracks Obama en hann gegndi því embætti frá árinu 2015 til 2017. Þar áður var hann ráð- gjafi Bandaríkjastjórnar í þjóðar- öryggismálum á meðan Biden var varaforseti.  Blinken  einbeitti sér þá að því hlutverki að miðla málum í Mið- austurlöndum á meðal annars í  Eg y ptalandi, Írak, Sý rlandi og Líbýu. Þegar Blinken starfaði í ríkis- stjórn Obama var hann í lykilhlut- verki þegar ákvörðun var tekin um áhlaupið sem varð til þess að Osama Bin Laden var felldur árið 2011 og í baráttunni gegn hryðjuverkasam- tökunum ISIS. Þá var Blinken falið að sjá um samskipti við Rússa í kjöl- far innrásarinnar á Krímskaga árið 2014. Ákvörðun Bidens um að tilnefna Blinken í embættið verður tilkynnt á þriðjudaginn en öldungadeild Bandaríkjaþings þarf svo að sam- þykkja tilnefninguna til þess að Blinken geti hafið störf sem utan- ríkisráðherra. Verði af þessum áformum Bidens er talið að Blinken muni breyta utanríkisstefnu sem Mike Pompeo, fráfarandi utanríkisráðherra, hefur rekið undanfarin ár. Sem dæmi má nefna er að lík- legt þykir að Biden og Blinken muni freista þessa að milda sam- skipti Bandaríkjanna við Kína, Íran og  f leiri rótgróna banda- menn landsins. Þá muni fjölþjóða- hyggja eigi ríkari sess í stefnu Bandaríkjanna í utanríkismálum undir stjórn Blinkens, ef af verður.  Honum verði þannig  falið að lappa upp á samskiptin við banda- menn Bandaríkjanna og alþjóða- stofnanir sem hefur gramist sú stefna Trumps sem hefur sett Ameríku í fyrsta  sæti hvað sem það  kostar.  Blinken mun  koma því til leiðar að  Bandaríkin virði Parísarsáttmálann og verði með í því  alþjóðasamstarfi sem fram undan er í umhverfismálum. Hann  mun svo  fá það verk- efni að bæta samskipti Bandaríkja- stjórnar við Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunina (WHO) en það kastaðist í kekki á milli Trumps og stofnunarinnar þegar deilt var um skynsamleg viðbrögð við kóróna- veirufaraldrinum. Trump lét stöðva fjárframlag Bandaríkjanna til WHO eftir að stofnunin gagnrýndi aðgerð- ir landsins í faraldrinum.   Bandarískir fjölmiðlar greina einnig frá því að annar náinn sam- starfsmaður Bidens, Jake Sullivan, verði ráðinn þjóðaröryggisráð- gjafi. Sullivan, sem er 43 ára gam- all, starfaði fyrir Hillary Clinton á meðan hún var  utanríkisráherra en hann var ráðandi í stefnumótun Bandaríkjanna í utanríkismálum í stjórnartíð hennar.   Ríkt traust er á milli Blinkens og Sullivans  en þeir deila sömu sýn á alþjóðamál.  Biden hefur á stjórnmálaferlinum  treyst mikið á  þá  félaga þegar kemur  að utan- ríkismálum. Hin 35 ára gamla Linda Thomas-Greenfield, sem þrátt fyrir ungan aldur er reynd í utanríkis- þjónustu, verður sendiherra Banda- ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. Hennar hlutverk verður fyrst og fremst að liðka fyrir samskiptum Bandaríkjanna við Sameinuðu þjóð- irnar sem hafa verið stirð í stjórnar- tíð Trumps. hjorvaro@frettabladid.is COVID-19 Enn er beðið eftir nýju PCR-greiningartæki sem vonast var til að kæmi til landsins í byrjun nóvember. Karl G. Kristinsson, yfir- læknir sýkla- og veirufræðideildar Landspítala, segir óvíst hvort hægt verði að setja tækið upp fyrir ára- mót. Koma tækisins muni gjör- breyta getu deildarinnar til þess að greina COVID-19 sýni. Tækið getur greint allt að fjögur þúsund sýni á sólarhring og mun þrefalda afkastagetu deildarinnar. Karl segir greiningartækið, sem nefnist Roche Cobas 8800, vera hið eina sinnar tegundar í heiminum og áætlaðan kostnað vegna þess vera í kringum hundrað milljónir króna. Íslensk erfðagreining (ÍE) hefur hlaupið undir bagga  við skimun fyrir COVID-19 frá því í sumar og lánað Landspítala aðstöðu og tækjabúnað. Karl á von á því að dregið verði úr því samstarfi þegar nýja tækið er komið í gagnið. „Það var aldrei ætlunin að við myndum verða þar endalaust og ég reikna með því að þegar við erum komin með þetta í gott stand hjá okkur þá bara tökum við yfir þetta.“ Sýkla- og veirufræðideildin getur nú greint um tvö þúsund sýni á sólarhring með tækjakosti sínum í Ármúla og tæp fimm þúsund sýni hjá ÍE. Karl segir að áætla megi að afkastagetan verði um sex þúsund sýni á sólarhring með tilkomu Cobas 8800. Þá verði einnig hægt að sameina sýni til að auka getuna enn frekar líkt og gert var í sumar. – eþá Bíða enn eftir að geta þrefaldað afkastagetuna Karl G. Kristinsson, yfirlæknir sýkla- og veirufræðideildar, er ekki viss um að greiningartækið verði komið í notkun fyrir áramót. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR Von er á auknum fjölda farþega í kringum jólin. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Anthony Blinken hefur mikla reynslu af utanríkismálum en sýn hans er ólík fráfarandi ráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Ísland mun fá 114 þúsund skammta af bólu- efninu sem Oxford og AstraZeneca er að þróa. STJÓRNSÝSLA Úrskurðarnefnd í umhverf is- og auðlindamálum hefur í tvígang úrskurðað inn- heimtu Hafnarf jarðar á stöðu- leyfisgjöldum vegna gáma ólög- lega. Annars vegar vegna gáma fyrirtækis á Hringhellu og hins vegar á Steinhellu. Var gjaldskrá bæjarins talin stangast á við mann- virkjalög og byggingarreglugerð og þar af leiðandi sú ákvörðun að innheimta stöðugjöld fyrir gámana ógildanleg. „Nú eru komnir fram tveir úrskurðir á stuttum tíma þar sem framkvæmd Hafnarfjarðarbæjar á innheimtu stöðuleyfisgjalda er ekki talin standast lög. Þetta þýðir að gjöldin eru endurkræf,“ segir Björg Ásta Þórðardóttir, lögfræð- ingur hjá Samtökum iðnaðarins. Samtök in hafa ítrekað gert athugasemdir við gjaldtökuna hjá Hafnarfjarðarbær og f leiri sveitar- félögum sem hafa sambærilega framkvæmd. Má þar nefna Akra- neskaupstað og Fjarðabyggð. Hafnarf jörður haf i innheimt stöðuleyfisgjöld á hvern gám sem standist ekki lög því eðli málsins samkvæmt sé um að ræða þjón- ustugjald fyrir leyfi. Í ú rsk u rðu m nef ndar innar kemur fram að bærinn hafi inn- heimt um 15 milljónir króna árlega vegna stöðuleyfis gáma. Gjald fyrir 20 feta gám hafi verið tæplega 32 þúsund krónur á ári og fyrir 40 feta gám tæplega 64 þúsund krónur. „Við höfum kallað eftir því að sveitarfélög breyti framkvæmd sinni til samræmis við leiðbein- ingar Húsnæðis- og mannvirkj- astofnunar frá árinu 2018 en það hefur ekki gengið eftir,“ segir Björg. „Hvert og eitt sveitarfélag virðist hafa sinn háttinn á hvernig og hvort þetta gjald sé innheimt.“ – khg Gjaldheimta vegna gáma í Hafnarfirði úrskurðuð ólögleg Hvert og eitt sveitar- félag virðist hafa sinn háttinn á hvernig og hvort þetta gjald sé inn- heimt. Björg Ásta Þórðar- dóttir, lögfræð- ingur Samtaka iðnaðarins Bæði málin snerta gáma fyrirtækja á Völlunum. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR 2 4 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.