Fréttablaðið - 24.11.2020, Blaðsíða 78
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@
frettabladid.is
Jólin í ár verða sérstök hjá Þórdísi
en þetta eru fyrstu jólin eftir að
hún varð móðir.
„Ég er 25 ára og nýbökuð móðir.
Ég bý í Vesturbænum ásamt
unnusta mínum, sjö mánaða
gömlum orkubolta og kisu,“ segir
Þórdís. „Ég er með BA-gráðu í arki-
tektúr og stunda nú meistaranám í
umhverfis- og náttúrusiðfræði við
HÍ. Áhugasvið mitt er ansi vítt og
ég veit ekki enn „hvað ég vil verða
þegar ég verð stór“ en ég mun
sennilega alltaf vilja vera með þó
nokkur járn í eldinum.“
Elska allt við jólin
Þegar Þórdís er spurð hvort hún sé
svokallað jólabarn segir hún svo
heldur betur vera. „Það er nánast
of vægt til orða tekið að kalla mig
jólabarn, en frá því ég var lítil hef
ég hlakkað til jólanna allt árið.
Ég elska einfaldlega allt við jólin,
hvort sem það eru jólaþrifin, jóla-
maturinn eða jólagjafirnar. Ein
uppáhaldsjólahefðin mín byrjaði
árið sem fjölskyldan mín fékk sér
hund en þá fórum við öll saman í
göngutúr eftir matinn á aðfanga-
dag. Ég veit ekkert hátíðlegra en
að ganga um snævi þakið hverfið á
aðfangadagskvöld þegar enginn er
á ferli, sjá jólaljósin kveikt í hverju
húsi og fjölskyldur borða saman
eða opna gjafir.“
Þórdís neytir engra dýraafurða
og ólíkt mörgum sem gerast vegan
hægt og rólega yfir ákveðið tímabil
ákvað Þórdís einfaldlega að demba
sér beint í djúpu laugina. „Ég tók
þá ákvörðun að gerast vegan á
einu kvöldi. Eftir á að hyggja hafði
þessi hugsun verið lengi að malla
í kollinum á mér en allt í einu var
eins og það hefði kviknað á peru
og ég fann að ég var ekki að lifa
í samræmi við mín gildi. Nú eru
komin tæp fimm ár síðan og ég hef
aldrei litið til baka, enda líður mér
betur á líkama og sál en nokkru
sinni fyrr.“
Hún segir margt hafa breyst frá
þessu augnabliki og greinir sívax-
andi áhuga fólks á þessum mikil-
væga og margþætta málaflokki. „Á
þessum tæpu fimm árum sem ég
hef verið vegan hefur margt breyst.
Úrval á vegan matvörum hefur
stóraukist og upplifi ég að flestir séu
að einhverju leyti að reyna að borða
meira grænmetis- eða vegan fæði.
Veitingastaðir bjóða langflestir
upp á einn eða fleiri vegan rétti og
Hægt að útbúa vegan útgáfu af öllu sem er ómissandi
Þórdís segir hnetusteikina fullkomna á jólaborðið, hún sé bæði hátíðleg og gómsæt. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Meðal hráefna
sem Þórdís
notar í steikina
eru sveppir,
kartöflur,
gulrætur,
linsubaunir,
pekanhnetur,
heslihnetur,
tómatpúrra og
krydd. MYND/
ARON GAUTI
SIGURÐARSON
Þórdís Ólöf Sigurjónsdóttir
heldur úti matarblogginu „Græn-
kerar“ þar sem hún birtir alls
konar gómsætar vegan upp-
skriftir.
má nú finna vegan veitingastaði,
kaffihús og meira að segja vegan
matvöruverslun á þessu litla landi.
Mér finnst virkilega gaman að
fylgjast með þessari hröðu þróun
og gaman að geta verið hluti af
henni,“ segir Sigrún glöð í bragði.
Frá lambahrygg yfir í hnetusteik
„Fjölskyldan mín hefur alltaf verið
með lambahrygg á aðfangadag en
það var eitthvað það allra besta sem
ég fékk. Fyrstu vegan jólin mín var
ég sú eina í fjölskyldunni sem ekki
borðaði lambahrygginn og til að
hafa hlutina sem einfaldasta keypti
ég hnetusteik og borðaði á aðfanga-
dag. Keypta hnetusteikin var ágæt
en bragðið var gjörólíkt því sem ég
var vön á aðfangadag, auk þess sem
mér fannst vanta hátíðlega braginn
sem fylgir vanalega jólamáltíðinni.“
Að ári liðnu hafði margt breyst og
fjölskyldan sameinuð í því að hafa
jólin dýraafurðalaus. „Næstu jól
voru mamma og pabbi líka orðin
vegan og ákváðum við mamma að
gera almennilegan vegan jólamat.
Við útbjuggum hnetusteik sem var
innblásin af meðlæti og kryddum
hefðbundnu jólamáltíðarinnar
og niðurstaðan var betri en ég get
lýst. Síðan þá höfum við alltaf haft
heimagerða hnetusteik á jólunum
og ég veit ekkert betra eða hátíð-
legra.“
Einfalt að vegan-væða
Þórdís segir það geta verið ein-
manalegt að vera vegan á jólunum
og vera umkringd/ur ástvinum
sem borða annars konar mat. Það
þurfi þó ekki að vera svoleiðis og
þetta geri verið tilvalið tækifæri
til þess að útbúa gott meðlæti
sem allir geti borðað og eins til að
útfæra hefðbundnari jólamat á
vegan máta. „Mörgum grænkerum
reynist hátíðirnar erfiðar vegna
jólaboðanna og finnst leiðinlegt að
vera með allt öðruvísi mat en allir
aðrir. Í slíkum aðstæðum mæli ég
með að horfa á meðlætið, en oft er
auðvelt að gera meðlætið vegan, og
mæta svo með eitthvað sem passar
við meðlætið. Ég er til dæmis með
hangi-Oumph á jóladag, hamborg-
ar-Oumph annan í jólum og vegan
Wellington á áramótunum og get í
öllum tilvikum borðað sama með-
læti og aðrir. Það er nefnilega hægt
að útbúa vegan útgáfu af öllu því
sem ykkur finnst ómissandi á jól-
unum og ættu allir að geta haldið
frábær jól án dýraafurða.“
Þórdís hvetur þau sem eru
áhugasöm að vera óhrædd við að
prófa vegan mat um hátíðarnar og
að þá sé einnig kjörið að prófa að
leggja dýraafurðir til hliðar í janúar
og létta þannig á líkama og sál á
meðan stigið er inn í nýtt ár. „Ég
óska að lokum öllum gleðilegrar
hátíðar og vona að sem flestir prófi
vegan fæði, hvort sem það er tíma-
bundið eða til frambúðar. Frábær
leið til þess að byrja nýtt ár er að
taka þátt í veganúar!“
Hnetusteik Þórdísar
„Þegar ég bý til hnetusteik geri
ég vanalega tvöfalda eða þre-
falda uppskrift til að eiga í frysti.
Mér finnst einnig gott að baka
hnetusteikina í muffinsformum
úr sílíkoni til að geta tekið litlar
sætar hnetusteikur með mér í
nesti. Í þetta sinn gerði ég tvöfalda
uppskrift og sýna meðfylgjandi
myndir því tvöfalt magn af hrá-
efnum.
Mér finnst hnetusteik æðisleg á
jólunum en ég veit ekki hátíðlegri
mat. Það skemmtilega við að elda
sína eigin hnetusteik er að geta
smakkað til og kryddað og gert
jólamatinn þannig algjörlega eftir
eigin hefðum og bragðlaukum.“
Hnetusteik
1 laukur
2 hvítlauksrif
400 g gulrætur
1 pakki sveppir
200 g kartöflur
200 g rauðar linsubaunir, þurrar
4 dl vatn
1 grænmetisteningur
1 sveppateningur
1 msk. tómatpúrra
1,5 msk. tamarisósa
1 tsk. hlynsýróp
100 g hakkaðar heslihnetur
1,5–2 dl haframjöl,
glúteinlaust ef vill
100 g pekanhnetur
1 stór stilkur ferskt rósmarín
1 msk. ferskt timian,
(garðablóðberg)
2 stór blöð fersk salvía, (um 6 lítil)
1/2 tsk. karrýsalt og pipar
Undirbúningur:
Rífið grænmetið (lauk, hvítlauk,
gulrætur, sveppi og kartöflur)
niður á rifjárni eða skerið smátt
niður. Setjið linsubaunirnar í sigti
og skolið. Saxið hneturnar og
þurrristið á pönnu. Hrærið vel í
hnetunum og passið að þær brenni
ekki. Setjið þær svo til hliðar.
Saxið fersku kryddjurtirnar
smátt niður.
Eldun:
Mýkið lauk og hvítlauk á stórri
pönnu/potti upp úr olíu þar til
laukurinn brúnast. Bætið græn-
metinu út í og steikið þar til
sveppirnir hafa mýkst. Bætið vatni
og linsubaunum út á pönnuna
og látið malla í 10 mín. Fylgist vel
með blöndunni og hrærið í henni.
Reynið að bæta ekki við meira
vatni nema nauðsynlegt sé. Meðan
blandan mallar er grænmetis- og
sveppatening bætt út í ásamt tóm-
atpúrru, tamarisósu, hlynsýrópi
og þurrkuðum kryddum (karrý).
Þegar 10 mínútur eru liðnar frá
því að linsubaunirnar voru settar
á pönnuna, er ristuðu hnetunum
bætt út í ásamt fersku kryddunum.
Á þessu stigi er gott að smakka
blönduna til og bæta við kryddum
eftir smekk. Blandan er látin malla
í 5 mín. Loks er haframjölinu bætt
út í. Deigið á nú að vera orðið mjög
þykkt og ekki á að vera hægt að
hella því. Ef deigið er of blautt þarf
að bæta meira haframjöli við. Stórt
brauðform er klætt með bökunar-
pappír og allt úr pottinum/pönn-
unni er sett ofan í formið og dreift
vel úr því. Formið er klætt með
álpappír og svo sett inn í ofn við 180
°C í klukkutíma. Síðustu 10–15 mín.
er álpappírinn tekinn af forminu til
að baka yfirborðið.
Þegar hnetusteikin er komin úr
ofninum er henni leyft að kólna
örlítið og svo er henni hvolft á disk
eða bakka.
Gott að hafa í huga:
Heslihnetum og pekanhnetum
má skipta út fyrir aðrar hnetur,
eins og t.d. möndlur, valhnetur
og kasjúhnetur. Tamarisósu má
skipta út fyrir sojasósu (t.d. glú-
teinlausa sojasósu). Fersku krydd-
unum má skipta út fyrir þurrkuð
krydd. Ég nota oft timian,
rósmarín og Lamb Islandia frá
Pottagöldrum (þar er salvía í
aðalhlutverki). Dásamlegt er að
bragðbæta blönduna með smátt
skornum villisveppum og skvettu
af rauðvíni.
Verið velkomin á Árbæjarsafn á aðventunni Engin jóladagskrá í ár vegna COVID-19.
w
w
w
.b
or
ga
rs
og
us
af
n.
is
24. nóvember 2020 JÓL 2020 56 FRÉTTABLAÐIÐ