Fréttablaðið - 24.11.2020, Page 86

Fréttablaðið - 24.11.2020, Page 86
Það eru nú liðin níu ár síðan þau Árni Árnason og Kolbrún Björns- dóttir gengu, eða ja, skelltu, í það heilaga, með ekki nema þriggja vikna fyrirvara, og það í miðri jólatörn. Eðlilega efuðust nákomnir þeim um andlegt heilbrigði þeirra beggja og sumir töldu þau gjör­ samlega vera búin að missa vitið. Nú, níu árum seinna, segir Árni þetta bestu ákvörðun sem þau hafi tekið. „Við höfðum verið trúlofuð í mörg ár og ástæðan fyrir því að við höfðum ekki drifið í þessu fyrr var sú að við vorum alltaf að bíða eftir rétta tímanum.“ Það liðu þrjú ár, svo liðu tvö í viðbót og eftir um sjö ára trúlofun var lífið enn þá að þvælast fyrir þeim skötuhjúum. Hann birtist aldrei, þessi rétti tími. „Það var því ekki neitt annað í stöðunni en að drífa í þessu sem fyrst,“ segir Árni. Það varð úr að Árni og Kolbrún gengu í það heilaga í viðurvist prests og votta, sunnudaginn 18. desember 2011, eingöngu sex dögum fyrir aðfangadag. „Dag­ setningin sjálf hefur svo sem enga þýðingu fyrir okkur, en þegar við tókum ákvörðunina vildum við síður hafa brúðkaupið inni í miðri jólahátíðinni. Það kom á daginn að þessi dagur var laus og þá hófst allur frekari undirbúningur. Við töluðum við prest, Ólaf Jóhann Borgþórsson í Seljakirkju, sem var meira en til í þetta með svona stuttum fyrirvara. Svo bókuðum við Lágafellskirkju, en sú kirkja er ótrúlega falleg. Margir sem við þekkjum hafa lýst því yfir að við höfum verið brjáluð að gera þetta allt í miðju jólastressi, en það hefur komið á daginn að það er alveg æðislegt að eiga brúðkaups­ afmælið í miðjum jólaundirbún­ ingi,“ fullyrðir Árni. Jólalegt brúðkaupsafmæli Árni og Kolbrún eru bæði mjög mikil jólabörn í anda og finnst þetta báðum yndislegur tími. „Við eigum okkur eina hefð á brúð­ kaupsafmælisdaginn og það er að verja deginum saman. Við vöknum saman, erum saman allan daginn og förum í rúmið saman. Þá gerum við hvað eina það sem við erum að bardúsa þá stundina, en oftast er það eitthvert stúss í anda jólanna. Jólahátíðin er tími þar sem við náum að slaka aðeins á og hægja á ferðinni, íhuga lífið og tilveruna. Það besta við jólin er friðurinn og róin. Mér finnst að áherslurnar hafi breyst almennt í þjóðfélaginu og fólk vill nú eiga rólegar og nota­ legar stundir saman í kringum jólin, í stað þess að gera allt, taka til í öllum hornum og þrífa og skrúbba allt. Þetta er einmitt tími til þess að hlúa að andlegu hliðinni og ekki hvað síst núna þegar faraldur skekur heimsbyggðina.“ Hélt að Jesú væri jólasveinn „Pétur Jesú sjálfur söng fyrir okkur í athöfninni og það er skemmtileg saga að segja frá því að dóttir okkar, sem á þessum tíma var rétt að verða tveggja ára og alger pabbagemlingur, sat í fanginu á mér alla athöfn­ ina og ríghélt í mig. Ástæðan var sú að hún var svo ofboðs­ lega smeyk við jólasveina og hún hélt að Pétur Jesú væri jólasveinninn.“ Þess má geta að á þessum tíma skartaði Pétur vígalegu skeggi, sem hefur styrkt stoðirnar undir grunsemdir stúlkunnar til muna. Gefst ekki tími í stress Árni segir að það sé í raun margt gott við að hafa ekki of langan fyrirvara þegar kemur að því að plana svona viðburð. „Það gefst enginn tími til þess að stressa sig á hlutunum. Maður verður bara að taka af skarið og velja það sem er í boði. Brúðkaup þurfa nefni­ lega ekki alltaf að vera risastór og flókin. Og ég mæli heilshugar með að fólk íhugi vetrarbrúð­ kaup. Þennan dag var veðrið alveg dásamlegt. Það var allt svo kyrrt og rótt og fallegt. Úti var jólaleg snjókoma og dúnmjúkur snjórinn á jörðinni brakaði undan skónum. Það voru miklir töfrar í loftinu. Ég geri mér grein fyrir að við vorum að sjálfsögðu heppin að fá svona gott veður, en ef það hefði gert vont veður þá ætluðum við bara að hafa það notalegt inni. Giftu sig í miðri jólatörn með 3 vikna fyrirvara Árni og Kolbrún giftu sig 18. desember 2011 með eingöngu þriggja vikna fyrirvara í miðri jólatörn. Veðurguðirnir blessuðu þetta brúðkaup, enda fengu þau stillt vetrarveður og jólasnjókomu. MYNDIR/ AÐSENDAR. Börnin þeirra: Theodóra, Helena, Arnór Blær og Sólveig María. MYND/SISSA Háspenna, lífs- hætta á Spáni er ný bók frá Árna og sjálfstætt framhald af Friðbergi for- seta sem kom út í fyrra. Jóhanna María Einarsdóttir johannamaria @frettabladid.is Einnig buðum við bara þeim allra nánustu. Þetta var í raun næstum eins og COVID­ brúðkaup, níu árum á undan sinni samtíð, því það voru ekki nema rétt um þrjátíu manns í kirkjunni. Þetta var bara lítið og náið með nánustu fjölskyldu og einum, tveimur vinum hvort sínum megin. Við hefðum að vísu ekki sloppið undir 20 manna samkomu­ bann í dag,“ segir Árni og kímir. Jólabrúðkaupsboð Brúðkaupsveislan var haldin heima hjá nýpússuðu hjónunum. Í stað þess að reyna að komast undan jólastemningunni var ákveðið að fara frekar alla leið í jólagleðinni. „Við buðum öllum heim til okkar í jólaboð eftir athöfnina. Það var hangikjöt, malt og appelsín, laufabrauð, jólalög og allur pakkinn. Jólin í kjölfarið voru svo alveg hreint yndisleg. Að verja jólahátíðinni í hveitibrauðsdagana var alveg frábært. Þetta var allt í allt stórkostlegur dagur og frábær ákvörðun enda vissum við bæði að við vildum verja restinni af ævinni saman. Við þurftum ekki að hugsa um það því það var ekki partur af ákvörðun­ inni. Það var bara tímasetningin sem þurfti að ákveða. Að vera gift hvort öðru er skuldbinding okkar gagnvart hvort öðru og ótrúlega rómantískt í þokkabót. Það var líka viss rómantík að gera þetta með svona stuttum fyrirvara og finna að maður væri tilbúinn að taka svona stóra ákvörðun með svo stuttum fyrirvara með mann­ eskjunni sem maður elskar. Í því er falið mikið traust, enda er þetta ákvörðun fyrir lífstíð ... vonandi,“ segir Árni og hlær. Vinsæl barnabók Árni er augljóslega sögumaður mikill enda kemur það á daginn að hann er að gefa út bók á vegum Bjarts bókaforlags núna í jóla­ törninni. „Bókin er nýlega komin út og er sjálfstætt framhald af barnabókinni Friðbergi for­ seta sem ég gaf út í fyrra. Þessi bók heitir Háspenna, lífshætta á Spáni og er ægilega spennandi og fyndin saga fyrir 8–13 ára. Bókin fjallar um systkinin Sóleyju og Ara sem eru á leið í frí til Spánar. En það breytist allt þegar þau komast í tæri við afar skuggalegan náunga sem hefur ekkert sérstaklega gott í hyggju.“ Bókin í fyrra var mjög vinsæl og því eru líklega margir krakkar spenntir að lesa þessa bók. Kolbrún Björnsdóttir, fyrrverandi útvarpskona á Bylgjunni, starfar nú sem framkvæmdastjóri hjá stéttarfélaginu Lífi. Einnig er hún leiðsögumaður og sinnir verk­ efnum fyrir Ferðafélag Íslands. 24. nóvember 2020 JÓL 2020 64 FRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.