Fréttablaðið - 24.11.2020, Page 100

Fréttablaðið - 24.11.2020, Page 100
Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@ frettabladid.is Díana hefur alltaf verið mikið jólabarn og man eftir sér sem lítilli stelpu, þar sem hún lá undir jólatrénu og dáðist að ljósunum og skrautinu. „Jólin hafa alltaf heillað mig og eru minn uppáhaldstími á árinu. Ég er alin upp við danska jólasiði því mamma mín var frá Danmörku. Hún kom til Íslands sem au-pair, kynntist pabba og bjó hér alla ævi. Mamma hélt í jólahefðir frá sínu heimalandi. Við fengum svínabóg með öllu tilheyr- andi í jólamatinn og svo útbjó hún góðan eftirrétt. Hann var gerður úr eplamauki og ristuðu brauðraspi, þetta tvennt var sett í nokkur lög í skál og rjómi á toppinn. Þegar búið var að vaska upp eftir jólamatinn á aðfangadagskvöld var jólatréð dregið fram á mitt gólf, sungin jólalög og dansað í kringum tréð. Mamma söng eitt lag á dönsku og þetta var mjög skemmtilegt,“ segir Díana, sem hefur haldið þessum sið eftir að hún stofnaði sjálf fjöl- skyldu. Hins vegar ákváðu þau Smári B. Ólafsson, eiginmaður hennar, að fara eigin leiðir hvað varðar jólamatinn. „Hann var vanur því að fá lambakjöt svo við vildum finna eitthvað sem okkur finnst báðum gott. Síðustu þrjátíu árin höfum við því verið með kalkún, sem öllum í fjölskyldunni finnst löngu orðið ómissandi á aðfangadagskvöld,“ segir hún. Það hefur ekki farið fram hjá vinum og ættingjum Díönu að jólin eru hennar eftirlætistími. „Þegar ég varð fimmtug hvatti vinur minn mig til að bæta milli- nafninu Jóladís við nafnið mitt. Ég ákvað að slá til og sótti um það hjá Þjóðskrá en fékk ekki leyfi til Jólin hafa alltaf heillað Díana hefur safnað í skemmti- lega jólaþorp í nokkur ár. FRÉTTABLAÐIÐ/SIG- TRYGGUR ARI Hefð er fyrir því að dansa í kringum jólatréð á aðfangadagskvöld. Frábært jólaþorp hjá Díönu. Díana skreytir heimilið snemma. Díana Símonardóttir tekur jóla- skrautið upp viku fyrir aðvent- una og skreytir heimilið hátt og lágt en hún á 25 kassa af skrauti. Á aðfangadagskvöld dansar fjölskyldan í kringum jólatréð og hún segir það skapa mikla stemningu. þess að nota það sem millinafn og var bent á að sækja um það sem fornafn. Það varð að vísu ekki úr því en ég skrifa mig nær alltaf sem Díönu Jóladís. Hver veit nema ég sæki aftur um þegar ég verð sex- tug,“ segir Díana og skellir upp úr. Setur upp jólaþorp Díana á heilmikið af jólaskrauti sem fyllir tuttugu og fimm kassa. Hún hefur mikla ánægju af því að taka skrautið tímanlega upp og klæða heimilið í jólabúning. „Ég tek næstum allt annað niður og set upp jólaskraut, jólamyndir og jólasokka um leið og Léttbylgjan fer loksins að spila jólalögin sem ég bíð eftir allt árið. Ég sauma út jólamyndir allt árið um kring og í seinni tíð hef ég saumað jólasokka fyrir fjölskylduna. Við hjónin ákváðum að búa til jólaþorp fyrir mörgum árum og höfum safnað í það í gegnum tíðina. Jólaþorpið er í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég á líka gamalt jólaskraut sem ég erfði eftir mömmu og finnst vænt um það. Á tímabili var ég með tvö jólatré, sem ég setti upp vikuna fyrir aðvent- una. Annað var fjögurra metra hátt og var á miðju stofugólfinu en hitt var meira gamaldags jólatré sem stóð úti við glugga,“ segir Díana. Hún nýtur svo aðventunnar í rólegheitum og segist helst nýta tímann til að hitta vini í ekta dönskum „julefrokost“. „Mér finnst það ómissandi en það verður bara að koma í ljós hvort það verði hægt í ár. Við verðum bara öll að sigla í rólegheitum í gegnum þetta COVID-ástand. Á aðventunni baka ég eina til tvær sortir af smá- kökum, því krökkunum mínum finnst gott að hafa kökudósina hjá sér þegar þau hafa verið að læra fyrir jólaprófin. Á jóladag erum við svo heima á náttfötunum, fáum okkur kalkúnasamlokur og púslum. Okkur finnst þetta mjög huggulegt,“ segir Díana. Um síðustu jól fór fjölskyldan til Danmerkur, þar sem annar sonurinn er við nám. „Það var mjög gaman að breyta til en núna hlakka ég enn meira en vanalega til jólanna því við vorum ekki heima hjá okkur í fyrra. Ég er komin með mikinn jólafiðring,“ segir Díana Jóladís að lokum. Súkkulaðibitasmákökur 1 bolli smjör 1 bolli sykur 1 bolli púðursykur 3 bollar hveiti 2 egg 1 tsk. matarsódi 1/2 tsk. salt 1 bolli kókosmjöl 200 g saxað suðusúkkulaði Hrærið saman smjör, sykur og púðursykur þar til blandan verður ljós og létt. Bætið við hveiti, eggjum, matarsóda, salti, kókos- mjöli og suðusúkkulaði og hrærið varlega saman. Mótið í litlar kúlur. Klæðið ofnplötu með bökunar- pappír, raðið kúlunum á plötuna og bakið við 180 °C í 10–15 mínútur. Kókosdraumar Glúteinlausar smákökur 5 dl kókosmjöl 2 msk. maízenamjöl 11/2 dl sykur 2 msk. ósaltað smjör 3/4 dl síróp 1 tsk. vanilludropar 1/4 tsk. salt 2 eggjahvítur 150 g suðusúkkulaði Blandið saman kókosmjöli og maízenamjöli í skál. Setjið sykur, smjör, síróp, vanilludropa og salt í pott og látið suðuna koma upp. Sjóðið í 10–20 sekúndur. Takið þá pottinn af hitanum og bætið kókosblöndunni út í. Léttþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim síðan smám saman út í deigið. Hrærið vel í á meðan. Setjið pott- inn aftur á hitann og sjóðið áfram í 30–40 sekúndur. Látið síðan deigið kólna aðeins. Hitið ofninn í 200 °C og klæðið ofnplötu með bökunar- pappír. Takið litla bita af deiginu og mótið kúlur úr því. Raðið á ofnplötuna og bakið neðarlega í ofninum í 10–12 mínútur, eða þar til þær hafa tekið á sig gulbrúnan lit. Bræðið súkkulaðið yfir vatns- baði og dýfið kökunum í það þegar þær hafa kólnað alveg. Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Kjólar kr. 12.900 24. nóvember 2020 JÓL 2020 78 FRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.