Fréttablaðið - 24.11.2020, Side 121
Jón Guðmundsson opnaði um liðna helgi sýningu í Gallerí Göngum í Háteigskirkju. Hann
nefnir hana Áhrif að austan og til
einkar hana Fljótsdalshéraði, sér
staklega Hallormsstað og Vallanesi.
Þar eru bæði málverk og ljósmyndir.
Jón hefur verið þekktari fyrir
f lautuleik og kennslu en myndlist
en nú sýnir hann á sér nýja hlið.
„Haustið 1988 tókum við hjónin
þá ákvörðun að taka okkur upp frá
Reykjavík og f lytja austur á Hall
ormsstað. Ég hafði ekkert kynnst
landsbyggðinni og varla farið út
fyrir höfuðborgina nema í stuttar
sumarferðir. Austur á Hérað hafði
ég þó tvisvar komið,“ útskýrir Jón
og segir þessa dvöl hafa orðið lengri
en þau hjón grunaði í fyrstu því á
Hallormsstað hafi þau búið í sex
tán ár.
„Þessi ákvörðun er sennilega sú
gáfulegasta sem við höfum tekið,“
segir hann. „Börnin okkar þrjú
ólust upp í Hallormsstaðaskógi
og við hjónin kynntumst f ljótlega
fólki sem reyndist okkur afar vel
enn í dag og teljast til okkar bestu
vina.“
Fyrir austan fékk Jón andann yfir
sig og prófaði ýmislegt sem honum
hefði sennilega aldrei dottið í hug í
höfuðborginni, að eigin sögn. „Ég
steig meðal annars á leiksvið í Vala
skjálf á Egilsstöðum, söng í kirkju
kór Vallaneskirkju, skrifaði leikrit
og sögur, hélt ljósmyndasýningu
á Skriðuklaustri, fór að spila aftur
á f lautu og prófa að mála myndir.“
Eitt enn nefnir Jón sem hann hefði
alls ekki átt kost á í höfuðborginni,
það var að kynnast sveitalífi.
Nýjustu myndirnar á sýningunni
í Gallerí Göngum í Háteigskirkju
eru af kartöf luútsæði. Þær segir
Jón hafa orðið til þegar vinir hans,
Eymundur og Eygló, bændur í Valla
nesi, héldu jarðeplahátíð í október
síðastliðnum og sýndu meðal ann
ars ýmis litbrigði kartaf lna. „Svo
eru ljósmyndirnar úr Vallanes
kirkju en gömlu myndirnar gerði
ég á Hallormsstað.“ – gun
Áhrif að austan
Jón sýnir á sér nýja hlið á sýning-
unni í Gallerí Göngum.
MYND/ JÓHANNA ÞÓRHALLSDÓTTIR
Ein myndanna
á sýningunni.
Kannski gerð
undir áhrifum
frá „rauðri
íslenskri“!
Hefðbundinn kveðskapur á sitt vígi í tímaritinu Stuðlabergi. Nýlega kom hefti af því í hús til að kæta anda við
takenda. Forsíðuna prýðir Ragn
heiður Gröndal sem allir vita að er
ein af okkar bestu söngkonum, hitt
vita líklega færri að hún leikur sér
að því að yrkja limrur.
Ragnar Ingi Aðalsteinsson, rit
stjóri Stuðlabergs, kastaði fram
hverjum fyrripartinum
eftir annan í samkomu
banninu í vor og á 24
dögum bárust honum
ríf lega 900 botnar, takk
fyrir. Brot af þeim birtist
í þessu hefti.
R íót r íóssk á ld ið á
Raufarhöfn, Jónas Frið
rik, er í viðtali. Hann
gefur letilega mynd af
sér í bundnu máli sem
ekki er pláss fyrir hér.
Ómar Ragnarsson,
fréttamaður, skáld
og skemmtikraftur,
velur sín uppáhalds
ljóð og opnuviðtal
er við skáldið Valdi
mar Tómasson. Upp
lýst er í ritinu að hið
fræga Þórsmerkurljóð
Sig u rðar Þórar ins
sonar sé ort við Gríms
vötn og alþingismenn
yrkja hver í kapp við
annan á einni opnunni. Þá er getið
margra nýrra ljóðabóka, þar af sex
eftir sama höfund, Skagfirðinginn
Bjarna Stefán Konráðsson, sem
heitir öðrum eins skammti á næsta
ári. Þá mun tólf stafa titill bóka
flokksins koma í ljós því einn stafur
er á hverri bók!
Að sjálfsögðu er kveðið um kór
ónaveiruna í Stuðlabergi. Þessi vísa
er eftir Karl Kristensen:
Ég kemst ekki út að keyra,
hvað þá nú heldur meira.
Ég kúldrast hér inni
með konunni minni.
Hún er voðaleg þessi veira.
– gun
Níu hundruð botnar bárust í samkomubanni
Ragnar Ingi
ritstjóri frá
Vaðbrekku.
Benný Sif Ísleifsdóttir fer á kostum
í leiftrandi skemmtilegri skáldsögu sem
gerist á Vestfjörðum í upphafi 20. aldar.
Hansdætur segir af harðgerðum konum
og andans mönnum, sorgum og sigrum,
draumum og þrám.
„... vildi ég gjarnan að ég gæti gefið sögunni
eitthvað meira en fullt hús stiga.“
R AGNHILDUR ÞR ASTARDÓTTIR / MORGUNBLAÐIÐ
„Það er ekki oft sem ég klára bók
og þrái framhald en nú biðla ég
til höfundarins: Megum við fá
frekari frásagnir af Gratíönu?“
S Æ U N N G Í S L A D Ó T T I R / L E S T R A R K L E F I N N
„Vel skrifuð og áhrifamikil bók
sem erfitt er að leggja frá sér.“
B R Y N H I L D U R B J Ö R N S D Ó T T I R / F R É T T A B L A Ð I Ð
Innbundin Rafbók Hljóðbók
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga fram að jólum | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 25Þ R I Ð J U D A G U R 2 4 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0