Morgunblaðið - 25.06.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020
Hvatningarverðlaun
Sjávarútvegsráðstefnunnar og TM
Markmið verðlaunanna er að hvetja ung fyrir-
tæki og frumkvöðla til dáða, stuðla að nýbreytni
og vekja athygli almennings á gildi nýsköpunar
og þróunar í sjávarútvegi.
Hver sem er getur tilnefnt álitlegt fyrirtæki eða
sjálfstætt starfandi aðila til verðlaunanna.
Skilyrði er að tilnefndir aðilar séu starfandi á
Íslandi. Í innsendum tillögum þarf að lýsa
verkefninu, hverjir standa að því og jafnframt
færa rök fyrir því af hverju það ætti að koma til
greina. Eins getur dómnefnd verðlaunanna
tilnefnt álitlega aðila
Við mat á tilnefningum er tekið tillit til frum-
leika og áhrifa á virðisaukningu. Einnig er litið til
áhrifa á ímynd íslensks sjávarútvegs, sjálfbærni
og samstarfs.
Sex manna dómnefnd skipuð aðilum úr sjávar-
útvegsfyrirtækjum, rannsóknarstofnunum,
tæknifyrirtækjum og þjónustuaðilum við sjávar-
útveginn velur sigurvegara verðlaunanna úr
innsendum tillögum.
Frestur til að skila inn tillögum er 1. október
næstkomandi og eiga þær, ásamt fylgigögnum,
að berast á netfangið valdimar@sjavarutvegur.is.
Sjavarutvegsradstefnan.is
Hvatningarverðlaun Sjávarútvegsráðstefnunnar og TM eru veitt ungum fyrirtækjum eða sjálf-
stætt starfandi einstaklingum fyrir nýbreytni og þróunarverkefni sem þykja hafa skarað fram úr og
talið er að muni treysta stoðir greinarinnar. Verðlaunin eru í formi viðurkenningarskjals, verðlauna-
gripsins Sviföldunnar og aðgöngumiða á ráðstefnuna.
Svifaldan, verðlaunagripur
Hvatningarverðlauna
Sjávarútvegsráðstefnunnar og TM.
www.efling.is
Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Eflingar–
stéttarfélags og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu –
SFV hefst klukkan 12:00 á hádegi mánudaginn 29. júní og
lýkur kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 2. júlí.
Atkvæðisrétt eiga félagsmenn Eflingar sem vinna hjá SFV.
Fái einnhver sem telur sig eiga atkvæðisrétt ekki aðgang að
þessari rafrænu atkvæðagreiðslu, (með rafrænum skilríkjum eða
Íslykli) getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu Eflingar fram til
loka kjörfundar, og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði,
enda leggi viðkomandi fram nauðsynleg gögn.
Sjá nánari upplýsingar á www.efling.is
Reykjavík, 23. júní 2020.
Kjörstjórn Eflingar-stéttarfélags
Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning
Eflingar–stéttarfélags við Samtök
fyrirtækja í velferðarþjónustu – SFV
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Þrír valkostir við tengingu vegarins
úr Fjarðarheiðargöngum við veginn
um Egilsstaði verða skoðaðir í mati
á umhverfisáhrifum framkvæmdar-
innar. Það eru Miðleið sem fer í
gegnum Egilsstaði á núverandi stað,
Suðurleið sem tengist Austurlands-
vegi sunnan Egilsstaða og Norður-
leið sem liggur norðan Eyvindarár
og tengist þjóðveginum við Egils-
staðaflugvöll.
Vegagerðin hefur lagt fram drög
að tillögu að matsáætlun vegna lagn-
ingar Fjarðarheiðarganga og til-
heyrandi vega. Lega jarðganganna
hefur verið ákveðin og einnig stað-
setning gangamunna beggja vegna.
Tveir kostir gangamunna Héraðs-
megin voru til skoðunar, meðal ann-
ars í samvinnu við starfshóp á veg-
um bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs,
og varð niðurstaðan að staðsetja
hann við Dalhús í Eyvindardal.
Hefur áhrif á skipulag
Vegagerðin sýnir þrjá möguleika
á tengingu vegarins við Austur-
landsveg við Egilsstaði og verða þeir
allir skoðaðir í umhverfismatinu.
Ákvörðun um hvaða leið verður farin
hefur áhrif á skipulag þéttbýlisins á
Egilsstöðum og hafa lengi verið um-
ræður um tengingu Seyðisfjarðar-
vegar. Starfshópur Fljótsdalshéraðs
sem fjallaði um gangamunnann vís-
aði umfjöllun um tenginguna til um-
hverfismats og tilheyrandi skipu-
lagsferlis.
Kostirnir þrír eru nefnir Norður-
leið, Miðleið um Háls og Fagradals-
braut og Suðurleið.
Seyðisfjarðarvegur liggur nú að
Hringvegi neðan af fjörðum áður en
hann fer um Fagradalsbraut í gegn-
um Egilsstaðaþorp. Nýr Seyðis-
fjarðarvegur mun vitaskuld fara
mun sunnar inn á hringveginn, um
nýja brú á Eyvindará, en vegurinn
mun síðan liggja í aðalatriðum á nú-
verandi leið.
Suðurleiðin er viðbót við Miðleið-
ina nema hvað gegnumstreymisum-
ferð yrði beint eftir nýrri leið suður
fyrir skipulagða byggð á Egilsstöð-
um. Þar er ekki síst hugsað til
þungaumferðar suður um land, að
sögn Björns Ingimarssonar, bæjar-
stjóra Fljótsdalshéraðs.
Norðurleið er hins vegar sjálfstæð
leið sem liggur frá gangamunnan-
um, meðfram Eyvindará að austan-
verðu, hjá Miðhúsum og tengist
hringveginum á milli Egilsstaðaflug-
vallar og byggðarinnar á Egils-
stöðum.
Verði Norðurleiðin fyrir valinu
færist hringvegurinn á hana og þarf
að leggja nýjan veg á tæplega níu
kílómetra kafla og byggja tvær nýj-
ar brýr á Eyvindará. Með honum
fæst ný tenging við Borgarfjarðar-
veg.
Þrír kostir við tengingu vegarins
Norðurleið og Suðurleið verða skoðaðar ásamt núverandi Miðleið í umhverfismati áður en ákveðið
verður hvernig vegurinn úr fyrirhuguðum Fjarðarheiðargöngum tengist veginum um Egilsstaði
1
1
93
93
94
95
EGILSSTAÐIR
FELLABÆR
Reyðarfjörður
Hrin
gveg
ur
Hrin
gveg
ur
Borgarfjörður
Se
yð
is
-
fjö
rð
ur
Ko
rt
ag
ru
nn
ur
: O
pe
nS
tr
ee
tM
ap
Möguleg vegtenging Fjarðarheiðarganga
Tillaga um þrjár leiðir
Héraðsmegin við Egilsstaði
Suðurleið
Miðleið
Norðurleið
Fjarðarheiðargöng
Lagarfljót
Lagarfljót
Fagradalsgöngin verða 13,3
kílómetrar að lengd og vegurinn
frá göngum til Seyðisfjarðar
verður 2,6 km. Vegirnir Héraðs-
megin verða 3,1 til 8,1 km að
lengd, eftir því hvaða leið verð-
ur fyrir valinu. Vegurinn frá
Seyðisfirði er nú 27,3 km. Verði
Miðleiðin í gegnum Egilsstaði
fyrir valinu verður leiðin 20 km
en 24,7 km ef Norðurleiðin nær
í gegn.
Stytting er vitaskuld ekki
ástæða gangagerðarinnar held-
ur eru göngin gerð til að tryggja
vetrarsamgöngur til og frá
Seyðisfirði og öryggi vegfar-
enda en vegurinn um Fjarðar-
heiði fer hæst í 620 metra yfir
sjó.
Fram kemur í drögum að til-
lögu um matsáætlun að kostn-
aður við gangagerðina og nauð-
synlega vegi er áætlaður 35
milljarðar króna. Í gildandi sam-
gönguáætlun til ársins 2033
eru 19,4 milljarðar ætlaðir til
verksins. Tekið er fram að rætt
sé um annars konar fjármögnun
að hluta.
Tuttugu kíló-
metra göng
og vegur
KOSTAR 35 MILLJARÐA
Vantar þig
pípara?
FINNA.is