Morgunblaðið - 25.06.2020, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020 55
Fjögur sveitarfélög
á Austurlandi, Djúpavogshreppur,
Borgarfjarðarhreppur, Fljótsdalshérað
og Seyðisfjarðarkaupstaður munu
sameinast og verður til um 4900
manna sveitarfélag. Áhersla er lögð
á skemmtilegt og skapandi samfélag
með góða þjónustu við íbúa, vandaða
stjórnsýslu og sterka byggðarkjarna
með greiðum samgöngum.
Sveitarfélagið hyggst verða leiðandi í
nýtingu rafrænna lausna í stjórnsýslu
sveitarfélagsins og þjónustu við íbúa.
Umsóknarfrestur er til
og með 30. júní nk.
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Leitað er að einstaklingi með leiðtogahæfileika og ríka umhverfisvitund. Þekking og reynsla af
málefnum sveitarfélaga nauðsynleg. Viðkomandi leiðir teymi sérfræðinga og annars starfsfólks
í skipulags-, bygginga-, framkvæmda-, viðhalds-, umhverfismálum og náttúruauðlindum nýja
sveitarfélagsins. Sveitarfélagið verður stærsta skipulagsumdæmi landsins.
FRAMKVÆMDA- OG UMHVERFISSTJÓRI
Helstu verkefni:
• Áætlanagerð og rekstur á sviði umhverfis-
mála og framkvæmda
• Starfar með umhverfis- og framkvæmdaráði
sveitarfélagsins
• Samstarf við heimastjórnir byggðakjarnanna
fjögurra
• Dagleg stjórnun verkefna og starfsfólks
• Ábyrgð á framkvæmdum og viðhaldi eigna
sveitarfélagsins
• Ábyrgð á þeim gjaldskrám er undir sviðið
heyra
• Samskipti og þjónusta við íbúa og fyrirtæki
• Ábyrgð á framkvæmd og eftirliti með
þjónustu sviðsins í skipulags-, byggingar- og
umhverfismálum
Menntun, hæfni og reynsla:
• Reynsla af stjórnun með mannaforráð
og leiðtogahæfni skilyrði
• Háskólamenntun á sviði bygginga- eða
skipulagsmála eða önnur háskólamenntun
sem nýtist í starfi skilyrði
• Þekking og reynsla af framkvæmda-
og skipulagsmálum sveitarfélaga
• Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
og lausnamiðuð nálgun
• Skipulagshæfni og drifkraftur í starfi
• Rík þjónustulund, áhugi og metnaður til að
byggja upp framúrskarandi sveitarfélag
Leitað er að einstaklingi með frábæra samskipta- og leiðtogahæfileika. Þekking og reynsla við
breytinga- og teymisstjórnun nauðsynleg.
VERKEFNASTJÓRI MANNAUÐS
Helstu verkefni:
• Innleiðing breytinga í samvinnu við
stjórnendur
• Framkvæmd, þjónusta og þróun mannauðs-
og vinnuverndarmála
• Innleiðing kjarasamninga og umsjón með
launaákvörðunum
• Stuðningur og þjálfun stjórnenda á sviði
mannauðstengdra verkefna
• Eftirlit með mannauðsupplýsingum og
skráningu upplýsinga í mannauðskerfi
• Innleiðing og yfirumsjón með jafnlaunavottun
• Yfirumsjón með skipulagi fræðslu-
og starfsþróunarsamtala
• Umsjón með árangursmælingum og
könnunum m.a. um líðan starfsfólks
• Aðkoma að stefnumótun og þróun
sveitarfélagsins
Menntun, hæfni og reynsla:
• Háskólamenntun í mannauðsstjórnun skilyrði
• Reynsla og þekking á mannauðsmálum og
breytingastjórnun skilyrði
• Leiðtogahæfni og reynsla af verkefnastjórnun
skilyrði
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu
æskileg
• Reynsla af stefnumótun og teymisstarfi
er æskileg
• Hæfni í mannlegum samskiptum og
samstarfsfærni
• Góð tungumálakunnátta og færni í tjáningu
í ræðu og riti
• Sjálfstæð vinnubrögð og lausnamiðuð nálgun
• Frumkvæði, skipulagshæfni og öguð
vinnubrögð
Leitað er að einstaklingi með leiðtogahæfileika og góða þekkingu á rafrænum tækifærum.
Þekking og reynsla af þróunar- og breytingstjórnun.
VERKEFNASTJÓRI RAFRÆNNAR
ÞRÓUNAR OG ÞJÓNUSTU
Helstu verkefni:
• Stýra teymi innleiðingar rafrænnar þjónustu
og notendamiðaðrar hönnunar
• Þróun og efling rafrænna þjónustuleiða
• Mótar stefnu og stýrir vefum og
samfélagsmiðlun á vegum sveitarfélagsins
• Þjálfun og handleiðsla samstarfsfólks
• Náið samstarf við aðrar deildir
sveitarfélagsins
• Aðkoma að stefnumótun í rafrænni þjónustu
Menntun, hæfni og reynsla:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi,
framhaldsmenntun kostur
• Reynsla af verkefnastjórnun og teymisstjórnun
skilyrði
• Reynsla og þekking á stafrænum lausnum
skilyrði
• Reynsla af þjónustuþróun og notendamiðaðri
hönnun
• Reynsla af þróun og innleiðingu breytinga
• Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
• Leiðtogafærni og skipulagshæfileikar
• Lausnamiðuð og skapandi hugsun
• Rík þjónustulund, áhugi og metnaður til að veita
framúrskarandi þjónustu
NÝTT SAMEINAÐ SVEITARFÉLAG Á AUSTURLANDI LEITAR
AÐ ÖFLUGUM EINSTAKLINGUM Í LYKILSTÖÐUR
Umsækjendur geta valið
aðalsstarfsstöð í einu af
sveitarfélögunum fjórum en munu
þjóna öllum íbúum og starfsfólki
nýja sveitarfélagsins.
Mikilvægt að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst og eigi síðar en í
september 2020.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits
til kyns, eru hvattir til að sækja um.