Morgunblaðið - 25.06.2020, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 25.06.2020, Blaðsíða 68
68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020 Erum með þúsundir vörunúmera inn á vefverslun okkar brynja.is GÆÐA AXIR FRÁ ÍTALÍU Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is Opið vir dag a frá 9-18 lau frá 1 0-16 ka 3.019.20 Verð kr. 3.890 3.016. Verð 24.900 3.043.e Verð 8.330 3.043.d Verð 4.960 3.003.d Verð 7.340 3.051.d Verð 4.980 3.038.t Verð 5.900 Matthew Walker (47 ára),prófessor í taugavís-indum og sálfræði viðKaliforníuháskóla í Berkeley, forstjóri Svefnrann- sóknarstöðvarinnar og fyrrverandi prófessor í geðsjúkdómafræði við Harvard-háskóla, sendi þessa bók frá sér haustið 2017. Hún kemur nú út íslenskri þýðingu Herdísar M. Hübner, grunnskólakennara á Ísa- firði. Herdís bætir með bókinni enn við þýðingar sínar sem hafa al- mennt fengið góða dóma. Að ís- lenska þessa bók á jafn lipran og aðgengilegan hátt og hér er gert er ekki heiglum hent. Af erlend- um umsögnum um bókina má ráða að Walker sé fyrstur svefn- fræðinga til að fjalla um þetta efni á þennan hátt. Texti hans er í senn fræði- legur og ætlaður almennum lesanda. Sé þetta braut- ryðjandaverk á ensku á sama við um íslensku. Textinn rennur lipur- lega, er skýr og aðgengilegur. Höfundur kynnir bók sína á þann veg að hana megi lesa beint frá upphafi til enda eða grípa niður í einstaka kafla eftir áhuga lesandans á að því sem um er fjallað. Bókin skiptist í fjóra hluta: 1. Það sem kallað er svefn; 2. Hvers vegna þarftu að sofa?; 3. Um drauma og 4. Frá svefntöflum til samfélagsbreytinga. Hver hluti skiptist í kafla og eru þeir alls 16 í bókinni. Skömmu áður en ég hóf lestur bókarinnar heyrði ég af tilviljun leikarann og fyrrv. ríkisstjóra Kali- forníu, Arnold Schwarzenegger, ræða um gildi þess að setja sér markmið og vinna þrotlaust að því. Boðskapur hans er að menn þurfi ekki að sofa nema sex klukkustund- ir og þá hafi þeir 18 stundir í sólar- hring til að vinna að markmiði sínu. Hann tekur fram að vissulega sé sagt að átta tíma svefn sé bestur, ekki þurfi að fara eftir því ef menn venji sig á að sofa fastar! Matthew Walker er alls ekki þessarar skoðunar. Hvað eftir ann- að minnir hann lesandann á að sjö til níu tíma svefn sé það sem við þurfum til að halda heilsu. Hann vill að regla sé á svefninum, farið í rúmið á sama tíma hvert kvöld og sama gildi um fótaferðartíma. Það sé misskilningur að unnt sé að vinna upp lítinn svefn með því að „sofa út“ um helgar. Menn lifi hvern dag í senn á þeim svefni sem þeir ná nóttina á undan. Líðan þeirra ráðist af því. Það sé hvorki hægt að bæta upp svefntap né safna í eins konar svefnsarp. Hann lýsir niðurstöðu rannsóknar með þessum orðum: „Frá samfélagslegu sjónarmiði var frammistaða sex klukkustunda hópsins mesta áhyggjuefnið – en það er ekki óalgengur svefntími. Tíu sólarhringar með sex klukku- tíma svefni á nóttu nægðu til þess að frammistaðan var jafn slæm og hjá þeim sem höfðu ekkert sofið í heilan sólarhring. Frammistöðu hópanna sem fengu að sofa í fjóra eða sex klukkutíma hrakaði sífellt meira eins og hjá hópnum sem var haldið vakandi í þrjá sólarhringa samfleytt og engin merki sáust um að hámarkshnignun hefði verið náð. Allt benti til þess að ef tilraunin hefði staðið lengur myndi frammi- stöðunni halda áfram að hraka næstu vikur eða mánuði.“ (S.153.) Hér skulu ekki tíundaðir allir sjúkdómarnir sem nefndir eru til sögunnar til marks um hve mikil heilsuvernd felst í sjö til níu tíma svefni. Walker flytur svo sannfær- andi rök fyrir máli sínu að hver sem les bók hans hlýtur að líta í eigin barm og íhuga hvort hann þurfi að breyta svefnvenjum sínum sér til góðs. Almennar vinsældir bókarinnar, hún hefur ratað á met- sölulista víða um lönd og einnig hér, má örugglega rekja til þess hve vel hún höfðar til lesandans. Hann get- ur farið hratt yfir sögu, kjósi hann það, þegar lýst er einstökum rann- sóknaraðferðum og sökkt sér síðan í niðurstöðurnar, sem Walker skýrir á þann veg að hittir í mark. Walker varar við því að skólar hefji kennslu of snemma á morgnana og nefnir dæmi frá Bandaríkjunum sem sýna að hefjist skóli klukkan 08.15 þurfi mörg börn að vakna klukkan 5.30, 5.15 eða „jafnvel enn fyrr og gera það árum saman, alla virka daga vikunnar. Það er brjálæði,“ segir hann. Þessu sé þó erfitt að breyta vegna rekstrarsjónarmiða hjá þeim sem halda úti skólabílum og þeirrar venju að koma börnum út úr húsi í dagrenningu svo foreldrar komist til vinnu. Þetta séu vissulega prakt- ísk úrlausnarefni en ekki nægileg „afsökun fyrir því að úreltu og skaðlegu fyrirkomulagi sé viðhaldið þegar allar upplýsingar mæla gegn því“. Undir bókarlok spyr hann: „Hvað er þá til bragðs að taka ef við viðurkennum að svefnskortur sé hægvirk aðferð til að ráða sig af dögum?“ Hann segir: „Hægt er að fá fólk til að sofa lengur bæði með virkum aðferðum, sem kosta svo- litla fyrirhöfn, og aðferðum sem viðkomandi þarf ekki að hafa neitt fyrir og eru því æskilegastar.“ (S. 353.) Matthew Walker er eindreginn andstæðingur svefnlyfja. Verða vafalaust margir undrandi þegar þeir lesa hve hann telur þau skað- vænleg. Þau varnaðarorð eiga er- indi til íslenskra lesenda því að svefnlyfjanotkun hér er sú hæsta á Norðurlöndunum og áhyggjuefni að mati landlæknis. Þess má geta að á dagskrá Hörpu kemur fram að 19. október verði Matthew Walker aðalfyrirles- ari á þriggja tíma ráðstefnu í Eld- borg sem haldin er að frumkvæði dr. Erlu Björnsdóttur, stofnanda og framkvæmdastjóra Betri svefns. Erla er klínískur sálfræðingur, doktor í líf- og læknavísindum, sér- fræðingur í svefnrannsóknum og höfundur bókarinnar Svefn (2017). Bókin Þess vegna sofum við – um mikilvægi svefns og drauma kemur út á íslensku á tíma þegar COVID-19-faraldurinn hefur vakið okkur til umhugsunar um úrræði til að gæta heilsu okkar með jafn ein- földum ráðum og að þvo okkur um hendur. Með því einfalda ráði að sofa sjö til níu tíma á nóttu getum við varið okkur gegn fjölmörgum öðrum sjúkdómum fyrir utan að njóta hvers dags betur en séum við svefnvana. Svefn – vellíðan, heilsa og árangur Höfundurinn „Walker flytur svo sannfærandi rök fyrir máli sínu að hver sem les bók hans hlýtur að líta í eigin barm og íhuga hvort hann þurfi að breyta svefnvenjum sínum sér til góðs,“ skrifar rýnir um bókina um svefn. Heilsa Þess vegna sofum við – um mikilvægi svefns og drauma bbbbn Eftir Matthew Walker. Þýðandi Herdís M. Hübner. Bókafélagið, 2020. Kilja, 375 bls. BJÖRN BJARNASON BÆKUR Handan mannlegs tíma er heiti sýn- ingar með nýjum vatnslitaverkum eftir Ólaf Elíasson sem verður opn- uð í i8 galleríi við Tryggvagötu í dag, fimmtudag, klukkan 17. Ólafur hefur lengi haft áhuga á vatnslitamiðlinum og notað frá árinu 2009 til þess að rannsaka liti, hreyfingu og tíma. Verkin á sýning- unni draga fram tilfinningu um rými og birtu með því að lista- maðurinn ber síendurtekið örþunnt vatnslitalag á pappírsörk í mjög ná- kvæmu og áþreifanlegu sköpunar- ferli. Á sýningunni eru tvær seríur og eitt stórt vatnslitaverk, unnið er með bráðnandi jökulís. Verkin sjö sem bera titilinn „Skammtímaminni sólarinnar“ snú- ast öll um skínandi hringform sem, eins og segir í texta sem fylgir sýn- ingunni úr hlaði, hvetur til frekari íhugunar. Út frá þessu miðlæga myndefni dreifast mislitir sam- miðja hringir sem leiða það í ljós að gráleiti flöturinn sem umlykur myndefnið er í raun hvert litalagið ofan á öðru. Ef áhorfandinn starir inn í hringinn nokkra stund festist myndin í sjónminnið í stutta stund. Ný vatnslitaverk eftir Ólaf Elíasson í i8 Birt með leyfi listamannsins og i8 Rannsókn „Handan mannlegs tíma“, 2020. Eitt hinna nýju verka eftir Ólaf Elíasson á sýningunni í i8 galleríi. Vatnslitur og blýantur á pappír. Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur fyrir hádegistónleikum með íslenskum organistum alla fimmtudaga í sumar frá deginum í dag til 20. ágúst, undir heitinu Orgelsumar 2020 í Hallgrímskirkju. Á tónleikum sumarsins gefst áheyrendum kostur á að heyra níu íslenska organista sem starfa við kirkjur víða um land leika listir sín- ar í Hallgrímskirkju. Björn Steinar Sólbergsson ríður á vaðið í hádeg- inu í dag og helgar hann tónleikana franska orgelsnillingnum Louis Vierne í tilefni af því að í ár eru 150 ár síðan Vierne fæddist. Auk verka Vierne verður flutt nýtt orgelverk eftir Sigurð Sævarsson tónskáld. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Snjall Björn Steinar Sólbergsson. Björn Steinar leik- ur á Orgelsumri Hljómsveitin Góss, þau Sig- urður Guð- mundsson, Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar, fagna sumrinu með tónleikum í Bæjarbíói í Hafnarfirði í kvöld, fimmtudag, og hefjast þeir klukkan 20.30. Góss hefur haldið tónleika víða út um landið og verið afar vel tekið. Fyrsta plata tríósins, Góssentíð, vakti mikla athygli og var meðal annars tilnefnd sem plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. Á tónleikunum verður boðið upp á létt prógramm þar sem aðalmark- miðið er að skapa hugljúfa kvöld- stund fyrir tónleikagesti. Hljómsveitin Góss í Bæjarbíói í kvöld Góss
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.