Morgunblaðið - 25.06.2020, Blaðsíða 41
41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020
ReykjavíkVið
MARKAÐS- OG MATARTORG
Við erum að endurbæta Kolaportið og næstu
helgar munu breytingar sjást!
Kolaportið “breytist” í Kolaþorpið sem verður
vænt, grænt, girnilegt og skemmtilegt
REYKJAVÍK
SNEKKJUSIG
LINGAR FRÁ
AMELIA ROS
E & AXEL RO
SE
LÁTTU ÞETTAEKKI FRAM HJÁÞÉR FARA
Nánari upplýsingar og bókanir
á
og í síma
www.seatr ips. is
KOMDU Í SUND
VESTURBÆJARLAUG
FERÐAGJÖFINA HJÁ
FLYOVER ICELAND
Þótt sýningin FlyOver Iceland hafi
fyrst og fremst verið hönnuð með
erlenda ferðamenn í huga kom
fljótt í ljós að Íslendingum þykir
upplifunin ekki síður merkileg. „Ég
verð að játa að ég er svolítið hrif-
næm að eðlisfari, en þegar ég fékk
að sjá Ísland með þessum hætti í
fyrsta sinn hætti ég ekki að tárast,
klökk yfir því hvað landið okkar er
fallegt og ótrúlegt,“ segir Eva Ei-
ríksdóttir. „Þannig eru viðbrögðin
sem við fáum frá mörgum Íslensk-
um gestum: Þeir eru slegnir yfir
fegurð landsins og margt í sýning-
unni sem kemur þeim á óvart.“
Eva er markaðsstjóri FlyOver
Iceland sem opnaði úti á Granda
síðasta sumar. Um er að ræða
gagnvirka hátæknisýningu sem
þróuð var í samstarfi við hæfustu
erlendu sérfræðinga og sýnir gest-
um sögu landsins auk þess að fara
með þá í n.k. „flugferð“ á milli
náttúruperla. Til að gefa lesendum
hugmynd um hversu mikið var lagt
í sýninguna þá tók rösklega tvö ár
að byggja sérstakt sýningarhús úti
á Fiskislóð, en alþjóðlegt tökulið
var að störfum í 18 mánuði við að
mynda landið í bak og fyrir úr
þyrlu. „Veðurfarið var ekki alltaf
að hjálpa okkur og þurfti þrjár eða
fjórar tökuskorpur til að ná öllu
myndefninu og öllum árstíðum,“
útskýrir Eva en stofnkostnaður
FlyOver Iceland var um 3,5 millj-
arðar króna. Að rekstrinum standa
bæði innlendir og erlendir aðilar
og verkefnið því ein stærsta er-
lenda fjárfestingin í sögu íslenskr-
ar ferðaþjónustu.
Ilmur af grasi og blómum
Sýningin er þrískipt og byrjar á
tveimur forsýningum sem kynna
land og þjóð. „Þar er m.a. greint
frá því hvernig forfeður okkar
þurftu að búa við erfiðar aðstæður
og læra að takast á við nátt-
úruöflin. Þá tekur við sýning þar
sem tröllkonan Sú Vitra segir frá
samspili manna og náttúru á Ís-
landi,“ útskýrir Eva.
Loks eru gestir leiddir inn í risa-
stóran sal fyrir þriðju sýninguna
og fá sér sæti í sérstakri vél. Sætin
eru á tveimur hæðum og sitja allir
á fremsta bekk. Fyrir framan sæt-
in er 280 fermetra kúptur skjár
sem umlykur gesti og hreyfast
sætin í takt við það sem ber fyrir
augu á skjánum en upplifunin á að
líkjast því að svífa yfir landinu ein
og fugl. „Við virkjum öll skilning-
arvitin og þegar t.d. flogið er í
gegnum ský eða upp fossa þá finna
gestir mistrið á húðinni, og eins
finna þeir gras- og blómalyktina
þegar flogið er yfir tún og heiðar.“
Aðalsýningin blandar saman
kunnuglegum og minna þekktum
áfangastöðum og segir Eva að
jafnvel þeir sem hafa verið dugleg-
ir að ferðast um landið ættu að sjá
eitthvað alveg nýtt. „Við fengum
t.d. til okkar fjallgöngugarpa sem
fóru út af sýningunni mjög upp-
veðraðir, hafandi fundið nýja staði
til að heimsækja.“
Sýningarnar þrjár taka samtals
um 30-35 mínútur og býður Fly-
Over Iceland upp á tilboð sem eru
sniðin að ferðagjöf stjórnvalda. Er
annars vegar um að ræða aðgangs-
miða fyrir fullorðinn og barn, með
stafrænni mynd, á 5.000 kr. og hins
vegar kaffihúsapakka á sama verði
þar sem gestir fá aðgangsmiða og
svo kaffi og bakkelsi í lok sýningar.
Sælureitur úti á Granda
Eva mælir með að gestir geri
heimsókn í FlyOver Iceland að ein-
um af hápunktum dagsferðar út á
Granda en þar er margt skemmti-
legt að sjá á hæfilega smáu svæði,
allt í göngufæri. „Grandinn er
hverfi sem leynir á sér og hefur
tekið miklum breytingum á
skömmum tíma. Hér má finna söfn
á heimsmælikvarða, s.s. Sjóminja-
safnið, Sagnasafnið, Hvalasýning-
una, Norðurljósasetrið og skoða
listasýningar í Marshallhúsinu.
Súkkulaðiverksmiðja Omnom tekur
líka vel á móti gestum og sýnir
þeim hvernig framleiðslan fer
fram. Svo eru hér ýmsar búðir fyr-
ir sælkera, og ísbúðin Valdís í sér-
stöku uppáhaldi hjá mörgum.“
ai@mbl.is
Svífa yfir Íslandi eins og fugl
Öll skilningarvitin eru virkjuð í sýningu FlyOver Iceland og landið skoðað frá nýju sjónarhorni
Innlifun Risastór skjár umlykur gesti og hægt að finna ilm af grasi og úða frá fossum á flugi um náttúru landsins.
MVið elskum Ísland »45
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hrifin Eva varð klökk þegar hún
prófaði sýninguna í fyrsta sinn.