Morgunblaðið - 25.06.2020, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 2 5. J Ú N Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 148. tölublað 108. árgangur
MENNINGAR-
PÓLITÍK OG
MÓDERNISMI
ORSAKIRNAR ENN Á HULDU SÆKIR MINN-
INGAR Í UNDIR-
VITUNDINA
DRANGAJÖKULL SÖKK 24-25 DAGLEGT LÍF 12MENNING 64
GRILLVEISLAN BYRJAR Í NETTÓ!
Folaldagrillsteik
Smjörlegin
1.899KR/KG
ÁÐUR: 3.798 KR/KG
Grísagrillsneiðar
Kryddlegnar
800KR/KG
ÁÐUR: 1.599 KR/KG
-50%
-50%
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 25. - 28. júní
-50% Ananas
Gold Del Monte
219KR/KG
ÁÐUR: 438 KR/KG
Benedikt G. Guðmundsson, aðal-
eigandi umboða Yutong á Norður-
löndunum í gegnum GTGroup ehf.,
segir að sala rafmagnsvagna frá
Yutong hafi gengið vel og hafa að
undanförnu verið gerðir samn-
ingar í Noregi, Danmörku og Finn-
landi. Áður hefur Strætó bs. fest
kaup á 14 rafmagnsvögnum frá Yu-
tong.
Yutong er framleiðandi strætis-
vagna og rútubíla og eru höfuð-
stöðvar félagsins í Zhengzhou í
Henan-héraði í Kína. Fyrirtækið
kveðst á heimasíðu sinni vera með
stærstu verksmiðju sinnar gerðar í
heimi og að það hafi framleitt yfir
70 þúsund farartæki, þar af hafi um
60 þúsund verið flutt út.
Össur Skarphéðinsson, fv. utan-
ríkisráðherra, hefur verið fyrir-
tækinu innan handar og gegnir
hann stöðu stjórnarformanns um-
boðsins í Svíþjóð. Reynsla Össurar
hefur komið að góðum notum, að
sögn Benedikts.
Benedikt segir umboðin fyrstu
samstarfsaðila Yutong vegna sölu í
Evrópu, en umboðsfyrirtækin eru
Yutong ehf. á Íslandi, Yutong Euro-
bus AS í Noregi og Yutong Eurobus
AB í Svíþjóð. Hann segir samstarfið
við Yutong ganga mjög vel. »16
Strætó Rafmagnslausnir Yutong í almenn-
ingssamgöngum er að finna víða.
Össur innan handar
við umboð á raf-
magnsvögnum
Dómsmálaráðherra hefur viðrað
þær hugmyndir við stjórnvöld í öðr-
um Schengen-ríkjum að Ísland opni
landamæri sín fyrir íbúum allra
ríkja þegar ytri landamæri
Schengen-svæðisins verða opnuð að
hluta 1. júlí.
Bandaríkin eru ekki á lista í
vinnslu yfir örugg ríki þaðan sem
fólk má koma til Schengen.
Þrír greindust smitaðir af
kórónuveirunni í landamæraskim-
un á þriðjudag. Öll smitin voru
gömul og þeir smituðu því ekki
smitandi. »4
Hefur rætt um að
hleypa öllum að
Reiknað er með að framkvæmdum sem ætlað er að
bæta aðstöðu Atlantshafsbandalagsþjóðanna á
Keflavíkurflugvelli ljúki næsta vor, að sögn Ásgeirs
Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgis-
gæslunnar. Ásgeir segir framkvæmdirnar nú í full-
um gangi eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Þær framkvæmdir sem standa yfir eða eru í undir-
búningi á og við öryggissvæðið við Keflavíkur-
flugvöll kosta þrettán til fjórtán milljarða.
Annars vegar er um að ræða verkefni á vegum
bandaríska sjóhersins og hins vegar verkefni
bandaríska flughersins. Í apríl hófust verkefni sjó-
hersins sem eru tvö, endurbætur á flugskýli 831
auk byggingar þvottastöðvar fyrir flugvélar á ör-
yggissvæðinu. Framkvæmdir á vegum bandaríska
flughersins við fyrsta áfanga viðhalds og endurbóta
á flughlöðum og akstursbrautum á Keflavíkur-
flugvelli hófust í fyrra.
Morgunblaðið/Eggert
Framkvæma fyrir NATO
Umsvif Framkvæmdirnar eru nú í fullum gangi enda umfangsmiklar og skammur tími til stefnu.
Malbikið brotið Þessi kröftuga sög sagaði búta úr malbikinu, en þarna á að leggja grunn fyrir væntanlega þvottastöð fyrir flugvélar á varnarsvæðinu.
Framkvæmdir í fullum
gangi Lýkur næsta vor