Morgunblaðið - 25.06.2020, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 25.06.2020, Blaðsíða 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020 Þverholti 5 • Mosfellsbæ • Sími 898 1744 • myndo.is Við búum til minningar myndó.isljósmyndastofa BRÚÐKAUPS MYNDIR Magnús Guðmundsson magnusg@mbl.is Opna svæðið. Tímaritið Birtingur og íslenskur módernismi, nefnist nýút- komin bók eftir Þröst Helgason sem er byggð á doktorsritgerð hans í bók- menntafræði frá Háskóla Íslands. „Ég hef lengi haft áhuga á þessu fyrirbæri sem menningartímaritið er. Þetta er þvermenningarlegt fyrirbæri sem er í eðli sínu vettvangur þar sem ýmsar listgreinar mætast. Ég var sjálfur búinn að fást við að skrifa um ýmsar greinar og það var ekki síst fyrir þær sakir að þetta efni höfðaði til mín. Birtingur var menningartímarit, bókmenntatímarit og listtímarit auk þess að vera merkilegur listmiðill.“ Lítil tímarit með stórt hluverk Þröstur segir að tímaritið Birt- ingur, sem kom út á árunum 1955 til 1968, hafi verið meginviðfangsefni sitt en í rannsóknarferlinu uppgötvist iðu- lega eitthvað spennandi. „Ég upp- götva í ferlinu þetta nýja rannsókn- arsvið sem eru lítil tímarit eða módernísk tímarit. Þetta fyrirbæri á sér ríflega aldarlanga sögu en rann- sóknir á því hafa tekið að blómstra síðustu 20 árin. Þessi litlu tímarit urðu til í sögu- legu framúrstefnunni í byrjun síðustu aldar, flest sem boðberar liststefna á borð við súrrealisma og dadaisma. Seinna var farið að tala um þau sem módernísk tímarit því þau héldu áfram að koma út fram eftir öldinni og áttu stóran þátt í að kynna módern- isma til sögunnar og móta hann. Þessi tímarit eru kölluð lítil því oftast voru þau gefin út af litlum efnum, af litlum róttækum hópum, auk þess að koma út í stuttan tíma og rata yfirleitt til fárra lesenda. Þannig að þau voru lítil í ýmsum skilningi en höfðu hins vegar mjög mikil áhrif og gegndu stóru hlutverki í boðun módernisma á síðustu öld.“ Plægja akurinn Þröstur leggur áherslu á að Birt- ingur hafi verið lykiltímarit hér á landi en vissulega hafi komið út önnur áhrifamikil tímarit um miðja síðustu öld og er saga margra þeirra einnig rakin í bókinni. Kjarnahópur Birt- ingsmanna voru þeir Einar Bragi, Hörður Ágústsson, Thor Vilhjálms- son og Jón Óskar en Þröstur segir að þarna hafi verið á ferðinni ungir menn með skýrt markmið. „Markmiðið var að breyta íslenskum menningarvett- vangi og menningarlífi. Að opna þenn- an vettvang upp á gátt. Þangað og til ákveðinna þátta í fagurfræði módern- ismans sæki ég titil bókarinnar, Opna svæðið. Það varð vissulega opnun á Íslandi eftir stríð, ungt fólk streymdi í menn- ingartengt nám á sama tíma og mót- tökustöðvar Íslendinga voru í meira mæli stilltar á nýjar hugmyndir. Birt- ingur stökk inn á þetta svið og tók að sér það hlutverk að plægja akurinn fyrir nýja strauma og stefnur.“ Koma Íslandi í samband Þröstur segir að Birtingsmenn hafi einsett sér að vinna gegn þeirri ein- angrunarhyggju og fagurfræðilegu íhaldssemi sem var ríkjandi á fyrri hluta aldarinnar. Efnið var fjölbreytt og þar á meðal mikið þýðingarstarf. „Markmiðið var að fylla hreinlega upp í eyðurnar þar sem vantaði þýðingar á helstu módernísku skáldum aldar- innar. Þarna var unnið gríðarmikið starf en Birtingur varð sömuleiðis vettvangur fyrir umræðu um þessar bókmenntir, strauma og stefnur. Í rit- inu er líka unnið mikið innflutnings- starf á arkitektúr og myndlist. Hörður Ágústson þýddi til dæmis þá fjörugu umræðu sem átti sér stað í París á sjötta áratugnum um mynd- list, einkum abstraktið. Hann fór líka til Parísar og tók viðtöl fyrir Birting við helstu framámenn abstraktsins á þessum árum. Seinna kom svo Atli Heimir Sveinsson úr tónlistarnámi hjá Stockhausen í Þýskalandi með fullt af nýjum hugmyndum og byrjar að skrifa í Birting, ekki síst um framúr- stefnulega tónlist og flúxusinn. Með þessu móti komst íslensk menning í snertingu við það nýjasta og heitasta sem var að gerast í evrópsku og að einhverju leyti amerísku listalífi á út- gáfutíma Birtings.“ Bjuggu til andstæðinga Birtingsmenn voru harðir í sinni afstöðu til listanna og Þröstur segir að þeir hafi jafnvel gert í því að sækja sér átök. „Þeir skilja ekkert í íhalds- sömum viðhorfum, af hverju menn vilja skrifa raunsæisleg verk og hvað þá sósíalrealisma Kristins E. Andrés- sonar. Þeir búa sér til andstæðinga og einn af þeim var Sigurður Nordal sem var fulltrúi hefðarinnar. Hið sama var með Stein Steinar sem vildi þó alveg vera með þeim í liði en þeir litu svo á að hann væri einhvers kon- ar jaðarmaður í þeirri baráttu fyrir nýrri ljóðlist sem þeir háðu. Og svo var það Kristinn og veldi Máls og menningar sem varð þeirra höfuð- andstæðingur.“ Þröstur bendir á að Birtingsmenn hafi jafnvel horft fram hjá ákveðnum verkum þessara manna sem voru tví- mælalaust módernísk, á borð við leik- ritið Uppstigningu eftir Nordal og ljóðlist Steins sem hafi verið í merki- legu samtali við abstrakt myndlist og ruddi að mörgu leyti brautina fyrir Birtingsmenn og var hlekkur á milli hefða og nýjunga, módernisma og sósíalísks raunsæis. „Kristinn var sannarlega einn þeirra helsti andstæðingur og skrif- aði gegn módernismanum. Hann bjó til forvitnilega hugmynd um andmód- ernískan módernisma sem var sósíal- ískar nútímabókmenntir sem sóttu ýmislegt til módernisma en höfnuðu honum jafnframt. Kristinn gerði með þessum skrifum tilraunir til að halda þeim Hannesi Sigfússyni og Sigfúsi Daðasyni innan vébanda Máls og menningar, bæði í fagurfræðilegum skilningi og öðrum. En þótt það fari varla fram hjá mörgum að þeir Hannes og Sigfús voru módernísk skáld, áttu þeir ekki heima í ritstjórn Birtings. Hannes var þar þegar fyrsta heftið kom út en Sigfús vildi aldrei ganga til liðs við Birting og eru settar fram tilgátur um ástæðurnar í bókinni. Í verkinu er virkni lítilla tímarita á borð við Birting sömuleiðis skoðuð í gegnum öll þessi átök. Þessi tímarit gátu svo sannarlega ruggað bátnum og gott betur.“ Óþolandi hlutleysi Á þessum tíma ríkti mikil harka á milli hægri og vinstri sinnaðra afla í íslenskri pólitík. Það er athyglisvert hvernig Birtingsmenn stilla sér upp gegn þessari tvíhyggju. „Þeir stilla sér upp þarna á milli, eru í raun land- lausir í pólitík og vinna út frá hug- myndinni um flokkspólitískt hlut- leysi. Þetta var á meðal þess sem fór í taugarnar á Máli og menningu. Það var ekki nóg með að ritstjórar Birt- ings væru með þessa nýju róttæku fagurfræði heldur höfnuðu þeir líka pólitíkinni sem var við lýði. Margir áttu erfitt með að sætta sig við það.“ Umræðan varð á stundum afar heiftúðug eins og kemur skýrt fram í bók Þrastar. Þarna eiga sér líka stað átök um góða liðsmenn og Þröstur bendir á að Birtingsmenn hafi óhikað sótt sér liðsafla. „Þeir fengu til að mynda Jóhann Hjálmarsson og Atla Heimi Sveinsson með sér inn í rit- stjórnina eftir að þeir höfðu stofnað tímaritið Forspil ásamt Degi Sigurð- arsyni og fleirum. Forspil var upp- runalega stofnað til höfuðs Birtingi en Birtingsmenn innlimuðu einfald- lega hluta af ritstjórn þessa nýja tímarits. Verður að menningarstofnun Þröstur segir að strax eftir að Birt- ingur byrjar að koma út 1955 hafi áhrifa tímaritsins farið að gæta, enda létu viðbrögðin ekki á sér standa. „Þetta má vel sjá í útgáfustarfi Al- menna bókafélagsins, í tímaritum á borð við Tímarit Máls og menningar, Eimreiðinni og Forspili. Það má jafn- vel líta á breytingar á Lesbók Morg- unblaðsins árið 1961 sem ákveðið við- bragð við Birtingi. Þannig að hann kallar á fullt af viðbrögðum og hefur mikil áhrif.“ Á þeim 14 árum sem Birtingur kom út gekk reksturinn upp og ofan og Þröstur segir það greinilegt að Einar Bragi hafi sinnt mest af rit- stjórnar- og útgáfuvinnunni. „Það vantaði ekki efnið í ritið og þeir vildu helst greiða fyrir það, en það var erf- itt að halda þessu gangandi. Reksturinn varð stöðugt þyngri þar til að endingu þeir gefast upp 1968. Og einmitt það gerist hjá litlu tímarit- unum vegna þess að þau eru óháð og hafa sjaldnast stofnanir eða peninga- veldi á bak við sig. En það er líka athyglisvert að um leið og Birtingur hverfur af sviðinu er farið að skoða hvað geti komið í stað- inn. Og það merkilega er að það má vel sjá gæta beinna áhrifa Birtings í sambærilegri útgáfu að minnsta kosti fram á níunda áratuginn þegar Ten- ingur kom út. Það tímarit var í nánast sama broti og það voru meðal ann- arra tveir synir Birtingsmanna sem stóðu að útgáfunni, þeir Gunnar Harðarson og Guðmundur Andri Thorsson. Hörður Ágústsson átti raunar hlut að máli þegar tímaritið var hannað. Þannig að Birtingur sem átti að vera umfram allt sjálfstæður og óháð- ur miðill varð að endingu að einhvers konar menningarstofnun.“ Nútíminn verður til Og hefð móderníska tímaritsins er enn lifandi, segir Þröstur. „Tímarit og hópar af þessu tagi eru enn starf- andi. Á þessari öld erum við með dæmi á borð við Nýhil, Meðgönguljóð og fleiri hópa og tímarit þeim tengd.“ Spurður hvað valdi því að við- brögðin við fagurfræðilegum út- spilum í dag séu ekki jafn heiftúðug og þau voru á tímum Birtings segir Þröstur að um miðja síðustu öld hafi andrúmsloftið verið eldfimt, bæði má tengja það stríðinu og það voru að verða einhvers konar skil í fagur- fræðilegum og menningarsögulegum efnum. „Fyrirbærið nútími var að verða til en á mismunandi tímum eftir menningarsvæðum. Nútíminn kemur seinna til Íslands en til dæmis Mið- Evrópu og ég vil meina að hann berist hingað af fullum þunga á eftir- stríðsárunum. Í menningu og listum á Birtingur stóran þátt í innleiðingu nýrra viðhorfa og það gerist í slíkum suðupotti að viðbrögðin verða með ýmsum hætti.“ Lifum áhugaverða tíma Þröstur leggur áherslu á að mód- ernisminn hafi opnað íslenskan menningarvettvang með nýjum við- horfum og fagurfræði. „Með tilkomu módernismans verður til meira svig- rúm fyrir fagurfræðilegar tilraunir. Línurnar voru þó tiltölulega skýrar, mun skýrari en þær urðu seinna á öldinni þegar póstmódernisminn kom fram á sjónarsviðið. Þá urðu öll mörk tiltölulega óljós og það ríkti fagur- fræðileg fjölhyggja eins og það var orðað. Allar hugmyndir voru ein- hvern veginn jafn réttháar. Og þarna var sannarlega enn verið að vinna innan opna svæðisins. Þetta olli deil- um um það bil fram að aldamótum en svo lognuðust þær að mestu leyti út af. Við erum enn í þessu logni, á opnu svæði en það hreyfist varla hár á höfði. Það þýðir samt ekki að það sé ekki ýmislegt að gerast í bók- menntum og listum. Sumir sakna átakanna og myndu kannski vilja segja að eins gott og opna svæðið hafi verið fyrir þróun ís- lenskrar menningar þegar það kom til sögunnar - gerði listina fjölbreytta og spennandi og færði henni mikið afl í þjóðfélaginu - sé það núna kannski farið að vinna gegn okkur,“ segir Þröstur og hlær við tilhugsunina. „Við erum núna að vinna á svæði þar sem hver og ein rödd er jafngild. Og segja má að það sé eitt af því fagra sem arfleið módernismans hefur skil- að okkur. En sumum þykir vafalítið erfitt að horfa upp á þetta. Sumir eiga vafalítið erfitt með að fóta sig á þessu opna svæði. Og vafalaust bíða ein- hverjir eftir því að eitthvað gerist. Eitthvað nýtt og spennandi. Sjálfum finnst mér við lifa ótrúlega áhuga- verða tíma. Við skulum vona að svæð- ið haldist opið.“ Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Fræðimaðurinn „Markmiðið var að breyta íslenkum menningarvettvangi og menningarlífi. Að opna þennan vettvang upp á gátt,“ segir Þröstur Helgason um Birting sem kom út á árunum 1955 til 1968 og hafði mikil áhrif. Listin varð fjölbreytt og spennandi  Þröstur Helgason sendi nýverið frá sér bókina Opna svæðið þar sem hann rannsakar tímaritið Birting, boðbera módernismans á Íslandi, sem hristi hressilega upp í menningarpólitík þjóðarinnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.