Morgunblaðið - 25.06.2020, Qupperneq 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020
Erum með þúsundir
vörunúmera inn á vefverslun
okkar brynja.is
GÆÐA AXIR FRÁ ÍTALÍU
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Opið
vir
dag
a frá
9-18
lau
frá 1
0-16
ka
3.019.20
Verð kr. 3.890
3.016.
Verð 24.900
3.043.e
Verð 8.330
3.043.d
Verð 4.960
3.003.d
Verð 7.340 3.051.d
Verð 4.980
3.038.t
Verð 5.900
Matthew Walker (47 ára),prófessor í taugavís-indum og sálfræði viðKaliforníuháskóla í
Berkeley, forstjóri Svefnrann-
sóknarstöðvarinnar og fyrrverandi
prófessor í geðsjúkdómafræði við
Harvard-háskóla, sendi þessa bók
frá sér haustið 2017. Hún kemur nú
út íslenskri þýðingu Herdísar M.
Hübner, grunnskólakennara á Ísa-
firði. Herdís bætir með bókinni enn
við þýðingar sínar sem hafa al-
mennt fengið góða dóma. Að ís-
lenska þessa bók á jafn lipran og
aðgengilegan hátt og hér er gert er
ekki heiglum
hent. Af erlend-
um umsögnum
um bókina má
ráða að Walker
sé fyrstur svefn-
fræðinga til að
fjalla um þetta
efni á þennan
hátt. Texti hans
er í senn fræði-
legur og ætlaður
almennum lesanda. Sé þetta braut-
ryðjandaverk á ensku á sama við
um íslensku. Textinn rennur lipur-
lega, er skýr og aðgengilegur.
Höfundur kynnir bók sína á þann
veg að hana megi lesa beint frá
upphafi til enda eða grípa niður í
einstaka kafla eftir áhuga lesandans
á að því sem um er fjallað.
Bókin skiptist í fjóra hluta: 1.
Það sem kallað er svefn; 2. Hvers
vegna þarftu að sofa?; 3. Um
drauma og 4. Frá svefntöflum til
samfélagsbreytinga. Hver hluti
skiptist í kafla og eru þeir alls 16 í
bókinni.
Skömmu áður en ég hóf lestur
bókarinnar heyrði ég af tilviljun
leikarann og fyrrv. ríkisstjóra Kali-
forníu, Arnold Schwarzenegger,
ræða um gildi þess að setja sér
markmið og vinna þrotlaust að því.
Boðskapur hans er að menn þurfi
ekki að sofa nema sex klukkustund-
ir og þá hafi þeir 18 stundir í sólar-
hring til að vinna að markmiði sínu.
Hann tekur fram að vissulega sé
sagt að átta tíma svefn sé bestur,
ekki þurfi að fara eftir því ef menn
venji sig á að sofa fastar!
Matthew Walker er alls ekki
þessarar skoðunar. Hvað eftir ann-
að minnir hann lesandann á að sjö
til níu tíma svefn sé það sem við
þurfum til að halda heilsu. Hann vill
að regla sé á svefninum, farið í
rúmið á sama tíma hvert kvöld og
sama gildi um fótaferðartíma. Það
sé misskilningur að unnt sé að
vinna upp lítinn svefn með því að
„sofa út“ um helgar. Menn lifi
hvern dag í senn á þeim svefni sem
þeir ná nóttina á undan. Líðan
þeirra ráðist af því. Það sé hvorki
hægt að bæta upp svefntap né
safna í eins konar svefnsarp.
Hann lýsir niðurstöðu rannsóknar
með þessum orðum:
„Frá samfélagslegu sjónarmiði
var frammistaða sex klukkustunda
hópsins mesta áhyggjuefnið – en
það er ekki óalgengur svefntími.
Tíu sólarhringar með sex klukku-
tíma svefni á nóttu nægðu til þess
að frammistaðan var jafn slæm og
hjá þeim sem höfðu ekkert sofið í
heilan sólarhring. Frammistöðu
hópanna sem fengu að sofa í fjóra
eða sex klukkutíma hrakaði sífellt
meira eins og hjá hópnum sem var
haldið vakandi í þrjá sólarhringa
samfleytt og engin merki sáust um
að hámarkshnignun hefði verið náð.
Allt benti til þess að ef tilraunin
hefði staðið lengur myndi frammi-
stöðunni halda áfram að hraka
næstu vikur eða mánuði.“ (S.153.)
Hér skulu ekki tíundaðir allir
sjúkdómarnir sem nefndir eru til
sögunnar til marks um hve mikil
heilsuvernd felst í sjö til níu tíma
svefni. Walker flytur svo sannfær-
andi rök fyrir máli sínu að hver
sem les bók hans hlýtur að líta í
eigin barm og íhuga hvort hann
þurfi að breyta svefnvenjum sínum
sér til góðs. Almennar vinsældir
bókarinnar, hún hefur ratað á met-
sölulista víða um lönd og einnig hér,
má örugglega rekja til þess hve vel
hún höfðar til lesandans. Hann get-
ur farið hratt yfir sögu, kjósi hann
það, þegar lýst er einstökum rann-
sóknaraðferðum og sökkt sér síðan
í niðurstöðurnar, sem Walker skýrir
á þann veg að hittir í mark.
Walker varar við því að skólar
hefji kennslu of snemma á
morgnana og nefnir dæmi frá
Bandaríkjunum sem sýna að hefjist
skóli klukkan 08.15 þurfi mörg börn
að vakna klukkan 5.30, 5.15 eða
„jafnvel enn fyrr og gera það árum
saman, alla virka daga vikunnar.
Það er brjálæði,“ segir hann. Þessu
sé þó erfitt að breyta vegna
rekstrarsjónarmiða hjá þeim sem
halda úti skólabílum og þeirrar
venju að koma börnum út úr húsi í
dagrenningu svo foreldrar komist
til vinnu. Þetta séu vissulega prakt-
ísk úrlausnarefni en ekki nægileg
„afsökun fyrir því að úreltu og
skaðlegu fyrirkomulagi sé viðhaldið
þegar allar upplýsingar mæla gegn
því“.
Undir bókarlok spyr hann:
„Hvað er þá til bragðs að taka ef
við viðurkennum að svefnskortur sé
hægvirk aðferð til að ráða sig af
dögum?“ Hann segir: „Hægt er að
fá fólk til að sofa lengur bæði með
virkum aðferðum, sem kosta svo-
litla fyrirhöfn, og aðferðum sem
viðkomandi þarf ekki að hafa neitt
fyrir og eru því æskilegastar.“ (S.
353.)
Matthew Walker er eindreginn
andstæðingur svefnlyfja. Verða
vafalaust margir undrandi þegar
þeir lesa hve hann telur þau skað-
vænleg. Þau varnaðarorð eiga er-
indi til íslenskra lesenda því að
svefnlyfjanotkun hér er sú hæsta á
Norðurlöndunum og áhyggjuefni að
mati landlæknis.
Þess má geta að á dagskrá
Hörpu kemur fram að 19. október
verði Matthew Walker aðalfyrirles-
ari á þriggja tíma ráðstefnu í Eld-
borg sem haldin er að frumkvæði
dr. Erlu Björnsdóttur, stofnanda og
framkvæmdastjóra Betri svefns.
Erla er klínískur sálfræðingur,
doktor í líf- og læknavísindum, sér-
fræðingur í svefnrannsóknum og
höfundur bókarinnar Svefn (2017).
Bókin Þess vegna sofum við –
um mikilvægi svefns og drauma
kemur út á íslensku á tíma þegar
COVID-19-faraldurinn hefur vakið
okkur til umhugsunar um úrræði til
að gæta heilsu okkar með jafn ein-
földum ráðum og að þvo okkur um
hendur. Með því einfalda ráði að
sofa sjö til níu tíma á nóttu getum
við varið okkur gegn fjölmörgum
öðrum sjúkdómum fyrir utan að
njóta hvers dags betur en séum við
svefnvana.
Svefn – vellíðan, heilsa og árangur
Höfundurinn „Walker flytur svo sannfærandi rök fyrir máli sínu að hver
sem les bók hans hlýtur að líta í eigin barm og íhuga hvort hann þurfi að
breyta svefnvenjum sínum sér til góðs,“ skrifar rýnir um bókina um svefn.
Heilsa
Þess vegna sofum við – um
mikilvægi svefns og drauma
bbbbn
Eftir Matthew Walker.
Þýðandi Herdís M. Hübner.
Bókafélagið, 2020. Kilja, 375 bls.
BJÖRN
BJARNASON
BÆKUR
Handan mannlegs tíma er heiti sýn-
ingar með nýjum vatnslitaverkum
eftir Ólaf Elíasson sem verður opn-
uð í i8 galleríi við Tryggvagötu í
dag, fimmtudag, klukkan 17.
Ólafur hefur lengi haft áhuga á
vatnslitamiðlinum og notað frá
árinu 2009 til þess að rannsaka liti,
hreyfingu og tíma. Verkin á sýning-
unni draga fram tilfinningu um
rými og birtu með því að lista-
maðurinn ber síendurtekið örþunnt
vatnslitalag á pappírsörk í mjög ná-
kvæmu og áþreifanlegu sköpunar-
ferli. Á sýningunni eru tvær seríur
og eitt stórt vatnslitaverk, unnið er
með bráðnandi jökulís.
Verkin sjö sem bera titilinn
„Skammtímaminni sólarinnar“ snú-
ast öll um skínandi hringform sem,
eins og segir í texta sem fylgir sýn-
ingunni úr hlaði, hvetur til frekari
íhugunar. Út frá þessu miðlæga
myndefni dreifast mislitir sam-
miðja hringir sem leiða það í ljós að
gráleiti flöturinn sem umlykur
myndefnið er í raun hvert litalagið
ofan á öðru. Ef áhorfandinn starir
inn í hringinn nokkra stund festist
myndin í sjónminnið í stutta stund.
Ný vatnslitaverk eftir
Ólaf Elíasson í i8
Birt með leyfi listamannsins og i8
Rannsókn „Handan mannlegs tíma“, 2020. Eitt hinna nýju verka eftir Ólaf
Elíasson á sýningunni í i8 galleríi. Vatnslitur og blýantur á pappír.
Listvinafélag Hallgrímskirkju
stendur fyrir hádegistónleikum
með íslenskum organistum alla
fimmtudaga í sumar frá deginum í
dag til 20. ágúst, undir heitinu
Orgelsumar 2020 í Hallgrímskirkju.
Á tónleikum sumarsins gefst
áheyrendum kostur á að heyra níu
íslenska organista sem starfa við
kirkjur víða um land leika listir sín-
ar í Hallgrímskirkju. Björn Steinar
Sólbergsson ríður á vaðið í hádeg-
inu í dag og helgar hann tónleikana
franska orgelsnillingnum Louis
Vierne í tilefni af því að í ár eru 150
ár síðan Vierne fæddist. Auk verka
Vierne verður flutt nýtt orgelverk
eftir Sigurð Sævarsson tónskáld.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Snjall Björn Steinar Sólbergsson.
Björn Steinar leik-
ur á Orgelsumri
Hljómsveitin
Góss, þau Sig-
urður Guð-
mundsson,
Sigríður
Thorlacius og
Guðmundur
Óskar, fagna
sumrinu með
tónleikum í
Bæjarbíói í
Hafnarfirði í kvöld, fimmtudag, og
hefjast þeir klukkan 20.30.
Góss hefur haldið tónleika víða út
um landið og verið afar vel tekið.
Fyrsta plata tríósins, Góssentíð,
vakti mikla athygli og var meðal
annars tilnefnd sem plata ársins á
Íslensku tónlistarverðlaununum.
Á tónleikunum verður boðið upp
á létt prógramm þar sem aðalmark-
miðið er að skapa hugljúfa kvöld-
stund fyrir tónleikagesti.
Hljómsveitin Góss
í Bæjarbíói í kvöld
Góss