Morgunblaðið - 25.06.2020, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég er á leið í hestaferð,við ætlum nokkrar prins-essur að ríða Húnavatns-sýslurnar og ég hlakka
mikið til, þótt ég sé hreinræktaður
Skagfirðingur. Föðurfólkið mitt er
frá Svaðastöðum, þaðan sem hið
mikla hestakyn Svaðastaðakyn er
komið, en móðurfólkið er frá Flata-
tungu þaðan sem Tungu-Glaður er
kominn,“ segir Sigríður A. Pálma-
dóttir, hjúkrunarfræðingur og dá-
leiðari, og hlær við, en hún er að
vonum nokkuð stolt af uppruna sín-
um. Þótt væntanleg hestaferð eigi
hug hennar allan núna er Sigga utan
síns frítíma starfandi dáleiðari þar
sem hún leiðir fólk í meðferðar- og
sjálfsdáleiðslu. Sigga tók nýlega við
sem formaður Félags dáleiðara.
„Félögin eru reyndar tvö hér á
landi, Félag dáleiðara var stofnað
11. maí 2011 af Ingibergi Þorkels-
syni sem stofnaði og rekur Dá-
leiðsluskóla Íslands. Virkir félagar
hafa verið á bilinu 110 -150 síðast-
liðin ár. Hitt félagið heitir Dáleiðslu-
félag Íslands, en skólarnir eru nú
orðnir þrír sem útskrifa allir full-
gilda dáleiðara. Ég skellti mér í
grunnnám í dáleiðslu fyrir fimm ár-
um og bætti við mig sérnámi tveim-
ur árum síðar, og sé ekki eftir því.
Ég hef alltaf talið mig góðan hjúkr-
unarfræðing en sá að ég náði meiri
árangri við að leiðbeina og hjálpa
fólki með dáleiðslunni, eftir að
hjúkrunarfræðingurinn og dáleið-
arinn sættust og gátu samnýtt
þekkingu sína,“ segir Sigga og bæt-
ir við að sumir hafi svolitlar rang-
hugmyndir um meðferðardáleiðslu.
„Ætli það komi ekki mest til
vegna sviðsdáleiðslu, en þótt grunn-
urinn sé að hluta til sá sami þá eru
markmiðin og vinnan allt önnur. Við
meðferðardáleiðslu þá tölum við
gjarnan um breytt vitundarástand,
líkt og að vera í svefnrofunum. Fólk
heyrir allt sem fer fram í kringum
það en er alveg afslappað. Öll dá-
leiðsla er leidd sjálfsdáleiðsla og
fólk verður að vilja ná fram breyt-
ingum hvort sem það er á líðan,
hegðun eða færni. Dáleiðarinn er
vegvísir á þessari leið.“
Hvað liggur að baki?
Sigga segir að dáleiðsla geti
víða komið að gagni en að dáleiðarar
vinni alltaf með undirvitundina, því
hún geymi allar minningar, alla
lærða hluti og stjórni ósjálfráða
taugakerfinu okkar.
„Dáleiðsla virkar vel fyrir fólk
sem vill losna við hræðslu, fælni eða
fóbíur. Hún kemur líka að gagni við
að bæta svefn, almenna líðan og
færni í keppnisíþróttum, nú eða litlu
hlutunum í hversdagslífinu. Með dá-
leiðslu kennum við fólki að láta
slæma líkamlega líðan ekki yfirtaka
lífið. Dáleiðsla virkar líka vel þegar
fólk vill breyta hegðun, hætta að
reykja, narta á milli mála, naga
neglur eða losna við þráhyggju-
hegðun. Einnig er hægt að ná betri
stjórn á viðvarandi verkjum og
ógleði og tileinka sér reiðistjórnun.
Ég fæ töluvert af fólki til mín í með-
ferð með áfallastreituröskun, þung-
lyndi og kvíða. Til dæmis er ótrú-
lega auðvelt að eiga við afmarkaðan
kvíða, eins og prófkvíða. Mér finnst
skemmtilegast þegar fólk kemur í
eitt skipti og þarf ekki að koma aft-
ur af því unnist hefur á vandanum.“
Sigga segist í dáleiðslunni leita
ástæðunnar að baki vandanum hjá
fólki. „Til dæmis er ástæða fyrir
flughræðslu og lofthræðslu oft líf-
hræðsla. Það getur verið nóg að
gera sér grein fyrir hvað veldur ótt-
anum, til að hafa fulla stjórn á
honum.
Lykt vekur upp minningar
Í dáleiðslumeðferð segist Sigga
hjálpa fólki að sækja minningar í
undirvitundina.
„Undirvitundin hlífir okkur
ekki, hún á það til að henda inn svo-
kölluðum kveikjum, sem fólk ræður
illa við, og það er nátengt ótta og
áföllum. Ef kveikjan, sem getur til
dæmis verið lykt, tengist einhverju
slæmu sem gerðist fyrir margt
löngu, vakna vondar minningar og
tilfinningar hjá fólki í hvert sinn
sem það finnur þessa lykt. Þá hverf-
ur fólk inn í sig í mikinn sársauka.
Dáleiðsla getur hjálpað fólki í þess-
ari stöðu mjög mikið.“
Stundum vinnur fólk í dá-
leiðslumeðferð hjá Siggu úr ein-
hverju erfiðu sem getur tengst
ákveðinni manneskju sem gerði við-
komandi eitthvað slæmt, eða ein-
hverjum atburði sem hafði mikil og
neikvæð áhrif.
„Þá fæ ég viðkomandi í dá-
leiðslunni til að mæta einstaklingn-
um, og þá getur manneskjan skilað
þessum einstaklingi því sem hann
eða hún gerði, en það þarf ekki endi-
lega að fyrirgefa. Ég tek fram að
það er líka hægt að mæta ein-
hverjum sem er löngu dáinn, og losa
sig við erfiða líðan með því að segja
eitthvað við hann þegar hinn dá-
leiddi sér hann fyrir þér. Við burð-
umst með margt í gegnum lífið sem
er óþarfi og íþyngjandi. Við tökum
oft inn á okkur hluti sem við eigum
ekki að bera, sérstaklega það sem
gerist í bernskunni. Börn eru eins
og svampar, þau drekka allt í sig og
hafa ekki þroska til að sortera hvað
er gott og hvað vont, hvað rétt og
rangt. Þetta fylgir fólki oft út í lífið.
Stundum verðum við fyrir áföllum
sem valda skaða en oft getum við
staðið áföll af okkur.“
Þó nokkrir fordómar
Sigga segir að eftir Covid sitji
margt fólk uppi með áhyggjur og til-
finningar sem það kann ekki að taka
á, tilfinningar sem tengjast því að
hafa enga stjórn á því sem fram
undan er, til dæmis vegna atvinnu-
missis.
„Þarna getur dáleiðslan hjálpað
mikið, því í dáleiðslumeðferð get ég
gefið þessu fólki verkfæri til að tak-
ast á við líðan sína. Ég sýni fólki
fram á að það er alltaf að gera sitt
besta og ég fæ það til að skilja af
hverju því líður eins og því líður.
Fólk er vant að hafa stjórn á lífi sínu
og það er erfitt þegar það breytist,
en fólk getur lært þessi bjargráð.
Ég kenni fólki að sækja góðar til-
finningar þegar því líður illa í sínu
dalega lífi, að sækja tilfinninguna
þar sem viðkomandi var sterkur,
leið vel og var stoltur. Fólk veit al-
veg fyrir hvað það stendur, og við
hjálpum því að hafa þessa stjórn.“
Sigga segir þó nokkra fordóma
vera gagnvart dáleiðslu og stundum
sé fólk hrætt sem kemur til hennar.
„Ég man eftir manni sem kom
til mín í dáleiðslu og hann sá mig
eins og norn við grautarpott. Hann
sagði: Ertu hissa á að ég sé stress-
aður? Ég er hér hjá kerlingu út í bæ
sem er að hræra í hausnum á mér,“
segir Sigga og hlær.
„Draumur minn sem formaður
Félags dáleiðara er að dáleiðsla
verði viðurkennd af heilbrigðisyfir-
völdum hér sem eitt meðferðar-
úrræði af mörgum, rétt eins og
nudd, sjúkraþjálfun og sálfræði. Ég
treysti á að dáleiðsla sé komin til að
vera sem ein stór grein í okkar
sjálfshjálparúrræðum.“
Hann sá mig sem norn við grautarpott
„Við burðumst með margt í gegnum lífið sem er óþarfi
og íþyngjandi, sérstaklega það sem gerist í bernskunni,
því börn eru eins og svampar,“ segir Sigríður A.
Pálmadóttir, hjúkrunarfræðingur og dáleiðari.
Morgunblaðið/Eggert
Dáleiðandi „Ég fæ töluvert af fólki til mín í meðferð með áfallastreituröskun, þunglyndi og kvíða.“
Hestaferð Sigga er hreinræktaður Skagfirðingur og stolt af því.
Áhugasamir um að prófa dá-
leiðslu geta skoðað síðu Félags
dáleiðara, fdt.is, þar eru bæði upp-
lýsingar um félagsmenn og
skólana, eða haft samband við
Siggu: siggap@icloud.com Sími:
821-2300.
Atvinnubílar
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
0
0
1
4
6
Verð frá: 3.701.161 kr. án vsk. Verð frá:4.969.677kr. án vsk. Verð frá: 2.540.400kr. án vsk.Verð frá:5.390.000kr.m. vsk.
100%RAFBÍLL/drægi 200 km*
RENAULT TRAFIC DACIADOKKERNISSAN e-NV200
4.590.000kr.m. vsk. 6.150.000kr.m. vsk. 3.150.000kr.m. vsk.
ÞRIGGJAÁRAÞJÓNUSTUPAKKIFYLGIR
ÖLLUMNÝJUMATVINNUBÍLUMÍJÚNÍ
Kynniðykkurrekstrarleigukjöránýjumsendibíl
Viðbjóðumbíla íöllumstærðumtilaðtakastáviðfjölbreyttverkefni
BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 /www.bl.is*U
p
p
g
ef
na
r
tö
lu
r
um
d
ræ
g
it
ak
a
m
ið
af
ný
ju
m
W
LT
P
p
ró
fu
nu
m
.
A
ks
tu
rs
la
g
,
hi
ta
st
ig
o
g
ás
ta
nd
ve
g
a
he
fu
r
af
g
er
an
d
iá
hr
if
á
d
ræ
g
ir
af
b
íla
.
RENAULTMASTER