Morgunblaðið - 25.06.2020, Side 16

Morgunblaðið - 25.06.2020, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020 Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra, hefur gegnt starfi stjórnarformanns Yutong Eurobus Scandinavia AB (YES) í Svíþjóð frá árinu 2018. Össur kveðst ekki vilja tjá sig um starfið, hvorki hvernig það kom til að hann fékkst í það eða í hverju það felst. Benedikt Gísli Guðmundsson, aðaleigandi félagsins, segir í tölvu- pósti að Össur hafi verið fenginn til að gegna stöðu stjórnarformanns YES árið 2018. „Fyrir okkur eig- endur YES AB var það mikill og góður fengur að fá hann inn enda er hann bæði reynslumikill samn- ingamaður og með góða þekkingu á þeim markaði sem við vinnum hvað helst á, sem er Skandinvía. Össur hefur einnig mjög góða reynslu af samskiptum við Kínverja sem er mikilvægt enda vinnur Yu- tong Eurobus Scandinavia náið með Yutong í Kína,“ útskýrir hann, en í ráðherratíð sinni undirritaði Össur meðal annars fríverslunarsamning milli Íslands og Kína. Vissu ekki af Össuri Í nóvember 2018 fór fram formleg afhending 14 Yutong-rafvagna til Strætó bs. og voru þar meðal annars viðstödd Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra, Jin Zhijian sendiherra Kína, Björg Fenger stjórnarformaður Strætó og Össur Skarphéðinsson. Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, segir Össur ekki hafa átt í samskiptum við stjórnendur Strætó um rafmagns- vagna. „Við höfðum ekki hugmynd um að hann væri í þessu fyrirtæki fyrr en við vígslu verkefnisins við Hörpu.“ gso@mbl.is Össur stjórnarfor- maður umboðsins  Reynsla af samskiptum við Kínverja Morgunblaðið/Ómar Formaður Össur Skarphéðinsson hefur verið í stjórn YES frá 2018. Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Yutong Eurobus Scandinavia AS, norskt dótturfélag íslenska fyrir- tækisins GTGroup ehf., hefur nýlega gengið frá samningi um sölu 102 raf- magnsvagna til Bergen í Noregi. Fyrirtækið er umboðsaðili fyrir kín- versku rafknúnu strætisvagnana frá framleiðandanum Yutong í Noregi, en GTGroup er einnig aðaleigandi umboðanna Yutong Eurobus Scand- inavia AB í Svíþjóð og Yutong ehf. á Íslandi. Benedikt Gísli Guðmundsson, að- aleigandi GTGroup og framkvæmda- stjóri umboðanna, segir félagið í Sví- þjóð halda utan um sölu í Danmörku og Finnlandi og hefur það náð tveim- ur fyrstu stóru samningunum um rafvæðingu almenningssamgangna í þeim ríkjum. Benedikt segir samstarfið við Yu- tong hafa gengið „mjög vel og erum við fyrstu samtarfsaðilar Yutong inn á Evrópumarkað“. Hann segir að Yutong Eurobus ehf. hafi verið stofnað árið 2006 og séð um sölu og markaðssetningu á rútum og vögn- um fyrir Yutong til Skandinavíu. Bendir Benedikt á að félagið hefur unnið þrjú útboð hjá Strætó bs. um sölu og afhendingu á 14 rafmagns- vögnum til fyrirtækisins. Kallaði á breyttar forsendur Þess ber að geta að rafmagns- vagnar uppfylltu ekki í fyrstu skil- yrði rammasamnings um endurnýj- un strætisvagna sem var gerður árið 2013 og var til grundvallar síðari út- boða vegna fyrirætlana Strætó um endurnýjun vagna félagsins. Var fyrsta örútboðið haldið í mars 2015 og annað í júní 2016. Milli fyrsta og annars útboðs hafði hins vegar skil- yrðum rammasamnings útboðanna verið breytt, meðal annars með tilliti til drægi vagna sem sagði að þyrfti að vera 500 kílómetrar og nýtingar- tími 19 klukkustundir, og í kjölfar þeirra breytinga gat umboðsaðili Yutong hér á landi tekið þátt. Það var síðan í kjölfar þriðja örútboðsins í nóvember 2016 að gerðar voru at- hugasemdir við breytingar á skilyrð- um af hálfu samkeppnisaðila, B&L. Kærunefnd útboðsmála komst að þeirri niðurstöðu að athugasemdir við útboðin hefðu borist of seint auk þess sem B&L hefði ekki gert at- hugasemd strax þegar því var til- kynnt um fyrirhugaða breytingu. Engu að síður segir í niðurstöðu kærunefndarinnar: „Af gögnum málsins verður ráðið að skilmálum rammasamnings hafi verið breytt í örútboðum II og III sem fram fóru í júní og nóvember 2016.“ Hvergi var að finna í fundargerð- um stjórnar Strætó sérstaklega til- greint að fyrrnefndar breytingar hafi verið gerðar á forsendum út- boðanna þó að bókuð sé samþykkt fyrir því að útboðin fari fram. Jó- hannes Svavar Rúnarsson, fram- kvæmdastjóri Strætó, segir að breytingarnar hafi verið gerðar að frumkvæði stjórnenda fyrirtækis- ins sem lögðu útboðsgögnin fyrir stjórn til samþykktar. Ekki raunhæft að gera sömu kröfur „Við vorum fyrst og fremst að hugsa um rafmagnstæknina, vissum svo sem ekkert hver myndi bjóða í þetta. Það var fyrst og fremst það að í fyrsta örútboðinu hafi krafan verið þannig að rafmagnsvagn hefði þurft að geta gengið allan daginn, sem er krafa sem aldrei er hægt að uppfylla. Ég held að menn hafi gert nokkrar breytingar til þess að það væri möguleiki að bjóða tæknina,“ út- skýrir hann. Spurður hvort stefnubreyting hafi orðið til þess að atriðum útboðs var breytt svarar Jóhannes Svavar: „Það var alltaf möguleiki að bjóða dísil og rafmagn. Rafmagnið með ákveðnum skilmálum. Og þegar um- hverfisáherslur fara að breytast, bæði á Íslandi og annars staðar, var farið yfir þessar tæknilegu kröfur varðandi rafmagnstæknina og að- eins dregið úr þessu drægi, mönnum er leyft að hlaða yfir daginn, til þess að það væri raunhæft að bjóða raf- magnsvagna. […] Þetta var aldrei hugsað fyrir einhvern einn framleið- anda.“ Samkvæmt stigagjöf valnefndar kom Yutong best út í þremur útboð- um og festi Strætó bs. kaup á 14 vögnum frá félaginu fyrir tæplega milljarð króna. Í ágúst 2017 var haft eftir framkvæmdastjóranum í Fréttablaðinu að um tilraunaverk- efni væri að ræða, en tafðist tilraunin nokkuð þar sem vagnarnir voru ekki afhentir að fullu fyrr en í nóvember 2018. Sýningarbásinn „Það verður aldrei jafn mikil nýt- ing á rafmagnsvögnum og dísil- vögnum,“ svarar Jóhannes Svavar spurður um nýtingu vagnanna. „Hins vegar erum við að keyra þá um það bil 90% af keyrslu dísilvagna á mánuði. Dísilvagn getur verið um 10 þúsund kílómetrar og við erum að ná rafmagnsvögnunum upp í um 9 þúsund kílómetra á mánuði. Þetta hefur verið langt umfram væntingar hvað við höfum getað nýtt þetta vel. Rafmagnið er ódýrt og svo hafa þeir gengið eins og klukka.“ Í fréttatilkynningu framleiðand- ans Yutong frá 2018 vegna afhend- ingar vagnanna virðist Ísland hafa verið nýtt sem eins konar sýningar- bás fyrir strætisvagnana og evr- ópskum gestum boðið að koma og skoða rekstur þeirra. Þá segir kín- verska félagið stolt frá því að danskir fulltrúar pöntuðu 20 rafmagnsvagna í kjölfar þess að skoða rekstur vagn- anna hér á landi. „Afhending 14 Yu- tong-rafmagnsvagna til Íslands er aðeins fyrsta skref landsins í notkun rafmagnsvagna. Yutong mun einnig opna nýjan kafla í almenningssam- göngum á Íslandi og jafnvel Skand- inavíu allri,“ segir í tilkynningunni. Morgunblaðið/Valli Endurnýjun Framkvæmdastjóri Strætó segir rafmagnsvagna Yutong hafa reynst vel, en sala þeirra hefur aukist. Umfangsmikil sala Yutong-rafvagna  Íslenskt félag með Yutong-umboð á Norðurlöndum  Rafvæðing almenningssamgangna ýtir undir söluna  Tilraunaverkefni Strætó með 14 vagna nýtt sem sýningarbás fyrir skandinavíska kaupendur Benedikt G. Guðmundsson Jóhannes Svavar Rúnarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.