Morgunblaðið - 25.06.2020, Síða 24
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Það er hæglætisveður og sléttur sjór
að kvöldi þriðjudagsins 28. júní 1960
þegar flutningaskipið Drangajökull
siglir um Pentlandsfjörð, norður af
Skotlandi, milli Orkneyja og megin-
landsins, á leið heim til Íslands.
Skipið hefur sótt farm til ýmissa
hafna í Evrópu og er drekkhlaðið.
Um borð er 16 manna áhöfn og þrír
farþegar. Allir eru í góðu skapi og
farnir að hlakka til heimkomunnar. Í
brúnni eru skipstjórinn Haukur
Guðmundsson og Georg Franklíns-
son stýrimaður og þar eru að auki
stödd Halldóra Gunnarsdóttir, kona
skipstjórans, og Gunnar, fjögurra
ára gamall sonur þeirra, Gylfi Páls-
son háseti er við stýrið og þarna er
líka nýfermdur frændi hans, Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, sem er í
sinni fyrstu sjóferð.
„Skyndilega tók Drangajökull,
sem var 600 tonn að stærð, að hallast
á bakborða.
Haukur og Georg reyndu að rétta
skipið af. Skipstjóri gaf skipun um
að hægja ferðina, stefndi því næst
upp í vindinn og setti á fulla ferð
áfram, en skipið seig sífellt meira á
bakborðshliðina. Við litum undrandi
hvert á annað og fáein orð féllu. Er
skipið virkilega að sökkva? Skip-
stjórinn sagði okkur að fara þegar í
stað upp á stjórnborðshliðina og í
björgunarbátana.
Flestir skipverja voru undir þilj-
um og engum þar datt annað í hug
en að skipið myndi rétta af. En þeg-
ar hallinn jókst stöðugt hlupu þeir
upp, margir fáklæddir.“
Hittust til að rifja upp
Þannig lýsir Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, nú 74 ára, síðar borgar-
stjóri í Reykjavík, aðdragandanum
að mestu lífsreynslu sinni á sjónum.
Nú eru liðin 60 ár frá því að Dranga-
jökull sökk með öllum farmi en
mannbjörg varð. Atburðurinn er Vil-
hjálmi enn ákaflega minnisstæður.
Sama er að segja um fjóra aðra sem
voru um borð og enn eru á lífi; það
eru fyrrnefnd Halldóra sem nú er 86
ára, Gunnar sonur hennar og Hauks,
rafvirki, nú 65 ára, hásetinn Gylfi, 80
ára, og Ævar Þorgeirsson, 85 ára
gamall rafvirki, sem var háseti um
borð. Fjögur þeirra hittust síðastlið-
inn þriðjudag og rifjuðu þessa lífs-
reynslu upp í fyrsta skipti saman á
heimili Ingibjargar, dóttur Hauks
skipstjóra og Halldóru. Ævar var
lasinn og komst ekki.
Vilhjálmur segir að hann hafi
fengið að fara í siglinguna með
Drangajökli vegna þess að hann átti
tvo frændur um borð, Gylfa Pálsson
og Finnboga Kjeld stýrimann. Móðir
hans, Helga Finnbogadóttir, hafi
ekki verið hrifin af hugmyndinni.
„Hún hafði á orði að skipið gæti
sokkið þegar ég þrábað hana um að
fá að fara í ferðina, en pabbi taldi
mig hafa gott af því að kynnast sjó-
mannslífinu,“ segir Vilhjálmur.
Faðir hans hafði verið til sjós á yngri
árum.
„Við höfðum siglt til Noregs, Hol-
lands, Englands og Belgíu. Síðasta
viðkomuhöfnin var Antwerpen þar
sem við lestuðum kartöflur. Það var
farið að skorta innlendar kartöflur
heima á Íslandi og því var innflutn-
ingur leyfður þangað til ný uppskera
kæmi á markaðinn um haustið.
Magnið var allverulegt, 350 tonn,
enda voru kartöflur á þessum tíma
ein helsta neysluvara landsmanna.“
Eftir að kartöflurnar fóru í sjóinn
varð kartöflulaust á Íslandi í heilar
tvær vikur meðan Grænmet-
isverslun ríkisins útvegaði farm
annars staðar frá. Auk kartaflanna
var farmur Drangajökuls á heimsigl-
ingunni dráttarvélar, margs konar
stykkjavara og þurrkaðir ávextir.
Hröð atburðarás
„Mér er minnisstætt,“ segir Vil-
hjálmur, „að þegar skipið byrjaði að
hallast skipaði stýrimaður Gylfa
frænda mínum að drífa sig út á
brúarvæng og fleygja kartöflupok-
unum í sjóinn til að létta á skipinu.
Gylfi rauk af stað og fleygði nokkr-
um pokum fyrir borð en hætti því
fljótlega enda hélt skipið áfram að
hallast. Á meðan hann var að þessu
sá ég einn traktor af tólf sem voru á
dekkinu og einu bifreiðina sem þar
var losna og falla í sjóinn.“
Atburðarásin næstu mínúturnar
er hröð. Þegar ljóst er orðið að skip-
ið muni ekki rétta sig af sendir loft-
skeytamaðurinn út neyðarkall og
gefur upp staðarákvörðun. Dranga-
jökull leggst á hliðina á um það bil
tíu mínútum og ljóst er að skipið er
að sökkva og bráð hætta á ferðum.
Vegna hallans er ekki hægt að losa
björgunarbátana tvo sem hanga á
davíðunum.
Haukur skipstjóri gefur skipun
um að setja út gúmmíbjörgunarbát-
ana tvo sem eru um borð. Fyrri bát-
urinn blæs upp um borð en brösug-
lega gengur að koma honum í sjóinn.
„Í þann mund birtist frændi minn,
Finnbogi Kjeld stýrimaður,“ segir
Vilhjálmur, „en hann hafði komist
við illan leik út úr káetu sinni.
Minnstu munaði að hann lokaðist
þar inni þegar þungur skápur rann
fyrir hurðina. Honum tókst með
naumindum að opna dyrnar og koma
sér út.“ Finnbogi hefur nýlokið nám-
skeiði í meðferð gúmmíbjörgunar-
báta og kemur kunnátta hans nú að
góðum notum. Það þarf að beita
miklu afli til að losa seinni bátinn og
koma honum útbyrðis. „Þrátt fyrir
bráða hættu var fólk rólegt,“ segir
Vilhjálmur. „Það er allra mál að þeir
sem stjórnuðu björguninni hafi sýnt
æðruleysi og brugðist við af snar-
ræði.“
Engir munir skipverja bjargast í
atganginum og þeir tapa öllum eig-
um sínum um borð. Nokkrir þeirra
mega hreinlega þakka fyrir að kom-
ast upp á dekk á nærbrókunum ein-
um saman.
Fjórir lenda í sjónum
„Þar sem skipið hallaðist mjög
komumst við með erfiðismunum út á
brúarvænginn og klöngruðumst yfir
kartöflupoka sem þar voru. Okkur
gekk þó vel að komast um borð í
björgunarbát. Loftskeytamaðurinn
þurfti að brjóta rúðu í loftskeytaklef-
anum til að komast frá borði.
Fjórir lentu í sjónum, þeirra á
meðal Haukur Guðmundsson skip-
stjóri sem yfirgaf skipið síðastur
allra. Stakk hann sér í sjóinn og
synti að björgunarbátunum. Hall-
dóra, kona hans, batt hollenska fán-
ann utan um Gunnar son sinn til að
hafa betra tak á honum,“ segir Vil-
hjálmur. Honum er minnisstætt
þegar gúmmíbjörgunarbáturinn,
sem hann var í, var smám saman að
fjarlægast Drangajökul og er kom-
inn um 25 metra frá skipinu, að þá
uppgötvast allt í einu að taugin úr
bátnum er enn bundin við rekk-
verkið á skipinu. „Enginn hnífur
fannst í bátnum og upphófst mikið
fát því búast mátti við því að skipið
sykki þá og þegar. Það var því mikill
léttir þegar Árni bryti dró óvænt
upp hníf og Georg Franklínssyni
stýrimanni tókst að sarga taugina í
sundur.“
Drangajökull sekkur tíu mínútum
síðar. Það hafa aðeins liðið um tutt-
ugu mínútur frá því að skipið tók að
hallast. „Skipið var enn ekki horfið
sjónum okkar og í hafið þegar við
sáum skoska togarann Mount Eden.
Hann var að koma úr tólf daga veiði-
för á Færeyjamiðum og var á leið til
Aberdeen. Um leið og okkur var
bjargað þar um borð sáum við
Drangajökul sökkva í sæ,“ segir Vil-
hjálmur.
Fá góðar móttökur
Vel er tekið á móti skipbrots-
mönnunum íslensku um borð í
skoska togaranum. Samt er þorska-
stríð Íslendinga við Breta í fullum
gangi og komið hefur til átaka á mið-
unum fyrir norðan Ísland. Land-
helgisdeilan er efst í huga allra Ís-
lendinga og þegar Morgunblaðið
skýrir frá sjóslysinu daginn eftir er
fimm dálka aðalfréttin á forsíðunni
átök varðskipsmanna á Þór við
breska sjóliða skammt frá Grímsey.
Fréttin vekur þó mikla athygli og
henni er fylgt eftir með stórri bak-
síðufrétt daginn eftir.
Vilhjálmur segir ferðina til Aber-
deen hafa verið eftirminnilega.
„Veðrið var snarvitlaust, togarinn
skókst til og hristist og þeirri hugs-
un skaut upp í kollinum hvort það
versta væri eftir og hann myndi
einnig sökkva.“
Þegar togarinn kemur til Aber-
deen og leggst að bryggju miðviku-
daginn 29. júní er þar mikill mann-
„Er skipið virkilega að sökkva?“
Sextíu ár frá því að flutningaskipið Drangajökull sökk í hæglætisveðri í Pentlandsfirði í júní 1960
Öllum 19 um borð giftusamlega bjargað af skoskum togara Aldrei skorið úr um orsakir slyssins
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Upprifjun Fjögur þeirra fimm sem voru um borð í Drangajökli og enn eru á lífi hittust á þriðjudaginn til að rifja atburðinn upp nú sextíu árum seinna.
F.v. Gylfi Pálsson háseti, Halldóra Gunnarsdóttir skipstjórafrú, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson farþegi og Gunnar, sonur Hauks skipstjóra og Halldóru.
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020
Pentlandsfjörður
norður af Skotlandi
Ko
rt
ag
ru
nn
ur
: O
pe
nS
tr
ee
tM
ap
Drangajökull sökk
í Pentlandsfi rði
milli Skotlands og
Orkneyja
Pentlandsfjörður
Morayfjörður
Aberdeen
ORKNEYJAR
S K O T L A N D
N
O
RÐ
VE
ST
UR
-
HÁ
LÖ
N
DI
N
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Fékk bíllinn
ekki skoðun?
Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl
Sameinuð gæði
BJB-Mótorstilling þjónustar
flesta þætti endurskoðunar
anngjörnu verði og að
ki förum við með bílinn
n í endurskoðun, þér
kostnaðarlausu.
á s
au
þin
að