Morgunblaðið - 25.06.2020, Qupperneq 26
REYKJAVÍK26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Reykjavíkurborg hefur hleypt af stokk-
unum metnaðarfullu átaki sem miðar að því
að bjóða landsmenn hjartanlega velkomna í
miðborgina í sumar. Verkefnið hefur fengið
yfirskriftina Sumarborgin og snýst m.a. um
að skipuleggja áhugaverða viðburði og
fegra miðborgina með ýmsum hætti, í góðu
samstarfi við rekstraraðila sem þar er að
finna.
„Við viljum laða fólk að miðborginni og
lengja dvalartíma þeirra sem leggja leið
sína þangað. Verið er að endurhanna og
bæta svæðin í borgarrýminu og gera þau
grænni og mannvænni, svo að fólk vilji
stoppa, njóta, vera og upplifa,“ segir Björg
Jónsdóttir. „Þá fá rekstraraðilar á svæðinu
stuðning til að gera að veruleika viðburði
sem þeir telja að borgarbúar og gestir muni
hafa gaman af og glæði miðborgina lífi.“
Björg stýrir verkefninu ásamt Sæunni
Ósk Unnsteinsdóttur en um er að ræða
samstillt átak þar sem fjölmörk ólík svið í
stjórnsýslu borgarinnar leggjast á eitt. „Við
efnum m.a. til markaðsherferðar þar sem
við hvetjum Íslendinga til að koma í borg-
arferð og minnum landsmenn á að í Reykja-
vík eru endalausir möguleikar til að njóta
lífsins, fyrirtaksgisting í boði og öll sú þjón-
usta og afþreying sem hugsast getur.“
Þurfa ekki að eiga sérstakt erindi
í miðborgina til að njóta hennar
Björg bendir á að heimamönnum hætti
oft til að gefa sér ekki ráðrúm til að njóta
miðborgarinnar með sama hætti og þeir
gera þegar ferðast er til útlanda. „Fólk er
svolítið gjarnt á það að heimsækja ekki
miðborgina nema að eiga þangað eitthvert
erindi, og halda svo rakleiðis heim frekar en
að skoða sig betur um og eiga ánægjulega
upplifun. En hvað gerum við t.d. þegar við
ferðumst til Kaupmannahafnar? Jú, við rölt-
um um miðborgina og rekumst á skemmti-
legar búðir, förum kannski í eitt eða tvö
söfn og borðum ljúffengan mat á góðum
veitingastöðum. Þetta er líka hægt að gera í
Reykjavík, og ef fólk lætur það eftir sér að
skoða og njóta þá er heimsókn í miðborgina
frábær upplifun.“
Benda má lesendum á vefsíðuna
www.borginokkar.is þar sem m.a. er að
finna ítarlegri upplýsingar um Sumarborg-
ina og um ýmsa viðburði og hátíðir sumars-
ins. Af viðburðum tengdum Sumarborginni
nefnir Björg t.d. ókeypis danstíma Kram-
hússins í viku hverri, pop-up jógatíma á göt-
um úti og tónleika á vegum verslunar 12
tóna alla föstudaga. Þá verða árvissar hátíð-
ir sumarsins á sínum stað, þótt sumar séu
með breyttu sniði vegna smitvarnaraðgerða.
Listahátíð í Reykjavík stendur yfir í sumar
og fram á næsta ár, með ótal viðbuðrum hér
og þar, og Hönnunarmars var að hefjast –
eftir að hafa verið frestað í þrjá mánuði
vegna kórónuveirufaraldursins – og hafa
m.a. 40 hönnuðir lagt Hafnartorg undir sig
og sýna þar sköpunarverk sín. Barnamenn-
ingarhátíð stendur líka yfir í allt sumar,
Hinsegin dagar verða á sínum stað snemma
í ágúst og Menningarnótt haldin hátíðleg í
framhaldinu. „Í ár dreifist Menningarnótt
yfir tíu daga frekar en einn og verður gam-
an að sjá hvernig það tekst til,“ segir Björg.
Upplifun að heimsækja miðborgina
Fólk ættti að njóta Reykjavíkur eins og það nýtur stórborga úti í heimi og gefa sér nægan tíma til
að rölta þar um, kíkja í söfnin, uppgötva spennandi búðir og heimsækja framúrskarandi veitingastaði
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Sumarskap Björg Jónsdóttir (f.m.) og Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir
(t.h.) verkefnastjórar Sumarborgarinnar ásamt Söndru Barilli (t.v.)
starfsmanni verkefnisins. Borg og fyrirtæki leggjast á eitt í sumar.
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Ævintýri Laugavegur hefur heldur betur vaknað til lífsins í sumar.
Morgunblaðið/Eggert
Öryggi Menningarnótt verður á sínum stað í ár en með breyttu sniði.
Það er hálfgerð synd að erlendir
ferðamenn hafi hér um bil setið einir
að upplifunarsiglingum út á Faxa-
flóa. Svanur Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Sea
Trips, segir að
það komi Íslend-
ingum oft mjög á
óvart hve fjöl-
breytt lífríki sé að
finna steinsnar
frá Reykjavíkur-
höfn. „Það þarf
ekki að sigla í
nema þetta fimm
eða tíu mínútur
og við erum komin í allt annað um-
hverfi, umkringd fuglum, selum og
hvölum,“ segir hann og bætir við að
margir landsmenn eigi það enn eftir
að sjá lifandi hval með eigin augum.
„Þegar fólk sér t.d. forvitinn hnúfu-
bak koma upp að skipinu og skoða
það vandlega taka margir andköf, og
aðrir hreinlega tárast af gleði.“
Sea Trips gerir út þrjú skemmti-
siglingaskip frá Ægisgarði og er sér-
stök áhersla lögð á að það fari mjög
vel um gesti sem geta t.d. komið sér
fyrir í mjúkum sófum á leið til fundar
við hvali eða lunda, og keypt sér
drykk eða létt snarl um borð. „Fjöldi
farþega í hverri ferð er töluvert und-
ir þeim hámarksfjölda sem skipin
okkar mega sigla með enda viljum
við að rúmt sé um gestina og ferðin
sem þægilegust,“ útskýrir Svanur.
Mjög góðar líkur á að sjá hval
Í sumar verður í boði ein dagleg
ferð á hvalasvæðin í Faxaflóa og lagt
af stað kl. 1.15 en reikna má með að
ferðum fjölgi ef erlendir ferðamenn
taka aftur að streyma til landsins.
„Siglingin út á flóann tekur um 40
mínútur og eru yfir 90% líkur á því
að hvalirnir láti sjá sig. Ef enga hvali
er að finna má fólk sigla með okkur
aftur án endurgjalds, eins oft og þarf
til að sjá hval með berum augum,“
segir Svanur. „Á föstudögum,
laugardögum og sunnudögum förum
við svo í sundasiglingu í kringum
Eyjarnar á Faxaflóa. Siglingin tekur
um einn og hálfan tíma og m.a. siglt
að Engey, Lundey, Þerney og kring-
um Viðey. Oft bregður fyrir smá-
hvelum eins og hnýsum, og selir
halda sig við eyjarnar að ógleymdum
alls konar fuglategundum.“
Skyldi lesendur langa til að fara í
siglingu en óttast að sjóveiki láti á
sér kræla þá segir Svanur að ferðum
sé aflýst ef sjólag er ekki nógu gott.
Þá er alla jafna mjög lítill öldugang-
ur á sundasiglingunni og heyrir til
undantekninga að farþegar finni fyr-
ir sjóveiki. Eru þá sjóveikipillur til
taks sem slá hratt og vel á einkennin
hjá flestum. Hvalaskoðunarferð
kostar 9.900 kr. og sigling um eyj-
arnar í Faxaflóa 4.990 kr., en láta má
ferðagjöf stjórnvalda ganga upp í
miðaverðið.
Það er til marks um hve gaman
það er að sigla út á Faxaflóa að sér-
ferðir Sea Trips njóta vaxandi vin-
sælda, en þar leigja hópar heilt skip
og hafa út af fyrir sig. „Í sumar hafa
þrjár brúðkaupsveislur verið bókað-
ar um borð í skipum okkar og er
þetta einnig vinsæll kostur fyrir hóp-
eflisferðir starfsmannafélaga, fyrir
útskriftarveislur, steggja- og gæsa-
partý, afmælisboð og svo einfaldlega
fyrir vinahópa sem vilja gera sér
glaðan dag,“ segir Svanur. „Oftast
kemur fólk með eigin veitingar, en
gott hljóðkerfi er um borð og öflugt
grill og hægt að eiga mjög eftir-
minnilegan dag í góðum félagsskap, í
friðsæld og fersku lofti.“ ai@mbl.is
Komin í allt
annan heim
Hvalir og lundar eru meðal þess sem
ber fyrir augu í siglingu út á Faxaflóa
Einstakt Að sjá hval fær marga til að tárast eða taka andköf af hrifningu.
Tilbreyting Margir borgarbúar eiga það alveg eftir að uppgötva Faxaflóann og fegurðina sem þar er að finna.
Svanur
Sveinsson
MVið elskum Ísland »40