Morgunblaðið - 25.06.2020, Síða 30
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Talsverð fyrirstaða virðist á Alþingi
við því að hleypa í gegn frumvarpi
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar-
ráðherra um breytingar á sam-
keppnislögum. Það staðfesta Jón
Steindór Valdimarsson, þingmaður
Viðreisnar, og Oddný G. Harðar-
dóttir, þingmaður Samfylkingarinn-
ar, í samtali við Morgunblaðið. Óli
Björn Kárason, formaður efnahags-
og viðskiptanefndar þingsins, fjallaði
um málið í Morgunblaðinu í gær og
sagði þar að með því að koma í veg
fyrir framgang málsins væri
stjórnarandstaðan í raun að koma í
veg fyrir að ríkisstjórn landsins gæti
staðið við gefin fyrirheit um stuðning
við lífskjarasamningana.
Segir breytingar ótímabærar
„Ég verð að viðurkenna að mér
finnst ekki tímabært að ráðast í
þessar lagabreytingar á þessum
tímapunkti og fyrir því eru nokkrar
ástæður. Í fyrsta lagi tel ég að það
þurfi að vanda betur til verka og
skoða gaumgæfilega og betur nokkr-
ar umsagnir sem bárust í tengslum
við frumvarpið. Nefni ég þar sér-
staklega athugasemdir frá Sam-
keppniseftirlitinu sjálfu,“ segir Jón
Steindór. Hann segir að það hafi ver-
ið til bóta að meirihluti þingnefndar-
innar hafi gert breytingar á frum-
varpinu og fallið frá þeirri hugmynd
ráðherra að nema úr gildi heimild
Samkeppniseftirlitsins til íhlutunar
án brots.
„Það blasir hins vegar við að frum-
varpið var upphaflega mjög stór-
fyrirtækjamiðað og í því ástandi sem
núna er, eftir Covid, er ekki rétt að
stíga skref af þessu tagi. Þá vantar
einnig gjörsamlega í löggjöf okkar
úrræði fyrir þá sem orðið hafa fyrir
barðinu á samkeppnisbrotum. Þar
stöndum við mörgum nágrannaríkj-
um okkar mjög að baki og það eru at-
riði sem ég vil taka inn í þessa
vinnu.“
Oddný Harðardóttir tekur í svip-
aðan streng og Jón Steindór og segir
að helsti ásteytingarsteinninn varð-
andi frumvarpið hafi verið fjarlægð-
ur og að hann hafi lotið að heimild
Samkeppniseftirlitsins til frum-
kvæðisathugana.
„Það var gott að sú breyting væri
gerð en meirihlutinn vill þó bæta
nýju ákvæði við 16. gr. laganna sem
fjallar um heimild stofnunarinnar í
þessum efnum. Þannig á hún ekki að
geta beitt íhlutun af þessu tagi nema
að undangenginni markaðsrannsókn
á grundvelli sérstakrar rannsóknar-
áætlunar, sem aftur þarf að fá stað-
festingu af stjórn Samkeppniseftir-
litsins. Það er stjórn sem ráðherra
skipar án tilnefninga og það finnst
okkur einfaldlega ekki ganga upp.“
Oddný ítrekar að önnur atriði í
frumvarpinu séu þess eðlis að nauð-
synlegt sé að staldra við.
„Veltumörkin á tilkynningar-
skylda samruna eru nú tveir millj-
arðar króna og meirihlutinn vill í
einni hendingu hækka þau mörk í
þrjá milljarða. Það finnst mér allt of
drastísk breyting á þessum tíma-
punkti, ekki síst þegar atvinnulífið er
í jafn viðkvæmri stöðu og nú. Þar
viljum við önnur viðmið, t.d. hækk-
anir í samhengi við vísitölu neyslu-
verðs eða vöxt þjóðarframleiðslu.“
Varasamt að hefta eftirlitið
Þá segir Oddný varasamt í núver-
andi ástandi að gera breytingar á
samkeppnislögum sem dragi úr
möguleikum Samkeppniseftirlitsins
til íhlutunar. „Andrúmsloftið er
mjög sérstakt og í raun allt á iði. Við
heyrum af því að það sé verið að
bjóða í fyrirtæki á undirverði og það
er von á talsverðri uppstokkun á
markaðnum. Það er ekki síst í ferða-
þjónustunni þar sem mörg fyrirtæki
standa nú höllum
fæti,“ segir
Oddný.
Samhljómur
virðist í þessu til-
liti milli Oddnýjar
og Jóns Stein-
dórs. Segir hann
að umrót sé óhjá-
kvæmilega fram
undan.
„Það verða
breytingar á skipan félaga á mark-
aðnum. Það er óhjákvæmilegt að
einhverju marki. Í slíku ástandi er
ótrúlegt að láta sér detta í hug að
ætla að slaka á þeim húsaga sem
Samkeppniseftirlitið hefur á grund-
velli samkeppnislaganna.“
Spurður út í stöðuna í þinginu seg-
ir Óli Björn að stjórnarandstaðan
nýti sér nú þetta mál sérstaklega í
þrátefli við meirihlutann um þinglok.
Það sé miður enda frumvarpið af
hinu góða.
„Það er mikilvægt að koma þess-
um breytingum á lögunum í gegn til
þess að liðka fyrir atvinnulífinu.
Þessi skref loka ekki fyrir frekari
skref í framhaldinu en veltumörkin
eru dæmi um mál sem fólk hlýtur að
sjá að þarf að laga. Upphæðin hefur
engum breytingum tekið frá árinu
2008 og nær yfir samanlagða veltu
fyrirtækja sem stefnt er að því að
sameina. Það er með öllu óþarft að
hafa þessi mörk svona þröng og get-
ur tafið fyrir eða komið í veg fyrir
eðlilega þróun markaðarins.“
Telja óvarlegt að breyta lögunum nú
Lög Breytingar á samkeppnislögum standa nú fyrir dyrum á Alþingi.
Fyrirstaða hjá stjórnarandstöðu á Alþingi við því að breytingar á samkeppnislögum nái fram að ganga
Fyrrverandi fjármálaráðherra segir undarlegt andrúmsloft í viðskiptalífinu og samruna yfirvofandi
Jón Steindór
Valdimarsson
Oddný G.
Harðardóttir
Óli Björn
Kárason
Bjartsýni að aukast í samfélaginu
vísitalan fyrir sex mánaða vænt-
ingar mælist yfir 100,“ segir Jón
Bjarki í greininni.
Tengist einkaneyslu
Hann segir að allsterkt samband sé
á milli þróunar vísitölunnar og
einkaneyslu enda ráði tilfinning al-
mennings fyrir stöðu og horfum í
efnahagsumhverfinu miklu um
neysluákvarðanir til skemmri tíma
litið. „Miðað við þróun væntinga-
vísitölunnar á fyrri helmingi þessa
árs má þannig búast við því að
einkaneysla láti undan síga á árinu.
Rímar það við aðra hagvísa á borð
við kortaveltutölur og er einnig í
samræmi við nýlega þjóðhagsspá
okkar sem hljóðar upp á 5,5% sam-
drátt einkaneyslu á árinu í heild.“
Samhliða Væntingavísitölunni
birti Gallup mælingu á stórkaupa-
vísitölu sinni, sem kannar m.a.
áætlanir um utanlandsferðir. Stór-
kaupavísitalan lækkar um nærri
þriðjung og er það nær alfarið
vegna snarprar minnkunar á áætl-
uðum utanlandsferðum lands-
manna. tobj@mbl.is
Samkvæmt væntingavísitölu Gallup
fyrir júnímánuð virðist sem bjart-
sýni landsmanna sé að aukast. Vísi-
talan hækkar um ríflega 16 stig á
milli mánaða og mælist nú tæplega
78 stig. Eins og Jón Bjarki Bentsson
aðalhagfræðingur Íslandsbanka út-
skýrir í grein um málið á vef bank-
ans, er það samt sem áður nokkuð
undir jafnvægisgildinu 100 sem
markar skilin milli þess hvort bjart-
sýni eða svartsýni ræður ríkjum.
Segir Jón Bjarki að sérstaka at-
hygli veki hins vegar að fleiri telji
að aðstæður í efnahags- og atvinnu-
málum verði betri en nú að sex
mánuðum liðnum, en að þær verði
verri eftir hálft ár. „Er það í fyrsta
skipti í tvö og hálft ár sem undir-
Einkaneysla láti undan síga á árinu
AFP
Frí Landsmenn munu draga verulega úr utanlandsferðum á árinu.
30 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020
25. júní 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 138.88
Sterlingspund 173.01
Kanadadalur 102.63
Dönsk króna 21.027
Norsk króna 14.592
Sænsk króna 14.921
Svissn. franki 146.85
Japanskt jen 1.2969
SDR 191.8
Evra 156.73
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 180.4333
Hrávöruverð
Gull 1756.6 ($/únsa)
Ál 1573.0 ($/tonn) LME
Hráolía 43.21 ($/fatið) Brent
VIÐ TENGJUMÞIG
KORTA býður uppá örugga greiðsluþjónustu og
hagkvæm uppgjör. Posar, greiðslusíður, áskriftagreiðslur
eða boðgreiðslur. Greiðslumiðlun er okkar fag.
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, 558 8000 / korta@korta.is / korta.is
Allt um sjávarútveg